Morgunblaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Fyrir nokkrum dögum lauk íDanzhou í Kína afar öfl-ugu skákmóti en úrslitþess beina athyglinni enn
og aftur að hinum kornunga Kín-
verja Wei Yi sem fyrir mótið sat í 20.
sæti heimslistans með 2.738 elo-stig.
Wei Yi hlaut 6 ½ vinning úr níu
skákum en eftir sex umferðir virtust
úrslit mótsins ráðin; hann hafði þá
hlotið fimm vinninga og hægði á
ferðinni með þrem jafnteflum í loka-
umferðunum. Lokaniðurstaðan varð
þessi: 1. Wei Yi (Kína) 6 ½ v. (af 9 )
2.-3. Quang Liem (Víetnam) og Ding
Liren (Kína) 5 ½ v. 4. – 6. Naiditsch
(Aserbaídsjan), Hao (Kína) og
Yangyi (Kína) 5 v. 7. Ivantsjúk
(Úkraína) 4 ½ v. 8. Ponomariov
(Úkraína) 3 ½ v. 9. Shanglei (Kína) 2
½ v. 10. Malakhov (Rússland) 2 v.
Það er til marks um styrkleika
þessa móts að Úkraínumennirnir og
Rússinn enda í neðri hluta töflunnar.
Kínverjar, sem unnu opna flokk Ól-
ympíumótsins í Tromsö í Noregi ár-
ið 2014, eiga marga frábæra skák-
menn sem af einhverjum ástæðum
hafa ekki náð að ógna þeim allra
fremstu. Wei Yi hefur tvisvar mætt
Magnúsi Carlsen við skákborðið,
hafði svart í bæði skiptin, náði jafn-
tefli í Wijk aan Zee í fyrra en tapaði
viðureign þeirra á sama vettvangi í
ár. Hann virðist njóta sín best á
heimavelli. Hann kom hingað til
lands ásamt fríðum flokki kín-
verskra skákmanna í ársbyrjun
2013, tók þátt í landskeppni Íslend-
inga og Kínverja og tefldi síðan á
Reykjavíkurskákmótinu, þá aðeins
15 ára gamall, og fékk staðfestan
stórmeistaratitil eftir frammistöðu
sína þar. Glæsilegar sóknarskákir
hrifu menn þegar þessi ungi maður
var að hasla sér völl. Síðan hefur stíll
hans dýpkað en áfram situr í fyr-
irrúmi áherslan á frumkvæðið og
þessi „stefnuyfirlýsing“ kínveskra
skákmanna – að taka slaginn
óhræddir. Í eftirfarandi skák við Po-
nomariov sem varð heimsmeistari
FIDE árið 2002 fá allir þessir þættir
notið sín:
Wei Yi – Ruslan Ponomariov
Katalónsk byrjun
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2
dxc4 5. O-O Rbd7 6. Dc2
Hægt er að ná peðinu aftur með 6.
Da4 en reynslan hefur kennt mönn-
um að þá fær svartur jafnað taflið án
mikilla erfiðleika.
6. … Rb6 7. a4 a5 8. Ra3 Bxa3 9.
Hxa3 O-O 10. e4 e5!?
Gefur peðið til baka. Annar mögu-
leiki var 10. … Bd7.
11. Rxe5 Dd4 12. Dc3 Dxc3 13.
Hxc3 Be6 14. d4 Rxa4 15. Ha3
Varkárari sálir hefðu valið 15. Hc2
með hugmyndinni 15. … b5 16. d5
Bc8 17. Be3 með þægilegri stöðu.
15. … b5 16. f4 Rb6 17. g4!?
Fórnar peði og opnar 3. reitaröð-
ina fyrir hrókinn.
Rxg4 18. f5 Rxe5 19. dxe5 Bd7 20.
Hg3
Hér er áætlunin fram komin, hvít-
ur hótar 21. Bh6 en í krafti peða-
meirihluta svarts á drottningarvæng
teljast horfur svarts nokkuð góðar.
20. … Bc6 21. Bh6 g6 22. Hg5!?
Dularfullur leikur. Það virðist
eina skýringin að hrókurinn stefni á
c5 eftir e5-e6 framrás.
22. … c3?
Alger óþarfi. Eftir 22. … Ra4! er
svartur í góðum málum.
23. bxc3 Rc4 24. fxg6 fxg6 25.
Bxf8 Hxf8 26. e6!
Áætlunin hefur gengið upp, c5-
reiturinn er til reiðu fyrir hrókinn.
26. … Be8 27. Hd1 Hf6 28. Hd8
Kf8 29. Hxb5
Eftir þetta er úrslitin ráðin og
Wei Yi fatast ekki úrvinnslan.
29. … Ke7 30. Hbb8 Bc6 31. Hdc8
Hxe6 32. Hxc7 Kd6 33. Hxh7 a4 34.
Ha7 Kc5 35. e5 Bxg2 36. Kxg2 a3
37. Hc7 Hc6 38. Hxc6 Kxc6 39. Hc8
Kd5 40. e6
- og svartur gafst upp.
Enn beinist at-
hyglin að Wei Yi
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Golli
Wei Yi að tafli á Reykjavíkurskákmótinu 2013.
Á hálfri öld eða svo
hefur hin tölvuvædda
upplýsingatækni tröll-
riðið þjóðfélagsþróun-
inni á öllum sviðum.
Ekki þarf að orðlengja
um þann þátt framfara
í framleiðslu, viðskipt-
um, flutningum eða
menntun, sem hvílir á
upplýsingatækninni.
Frelsi okkar sem ein-
staklingar byggist mjög á óheftum
aðgangi að tölvuheiminum. Netið er
eða ætti að vera til ánægju og fróð-
leiks fyrir unga sem aldna. En því
miður ber mikið út af þeirri beinu
braut í þeim vefjum og spjallrásum,
sem yngri kynslóðin iðkar. Brýnt er
að við og öll samsinnuð þjóðfélög
vinnum af alefni gegn klámburði og
hvers kyns óþverra á netinu.
Það stendur samt mesta óhugnaði
næst, að þær bylgjur meiriháttar
hryðjuverkaárása, sem hafa riðið yf-
ir Evrópuborgir síðustu misseri,
skuli hafa náð sínum illa tilgangi
ekki síst af netvæðingu við undir-
búning og framkvæmd fjöldamorða.
Það vekur almennan ótta og örygg-
isleysi að Frakkland, Belgía, Þýska-
land og Bretland séu varla einu
árásarmörkin. Um er að ræða hat-
ursáróður spúið út af vef- og spjall-
síðum ofsafenginna hópa múham-
eðstrúarmanna í ISIS-hreyfingunni,
sem berst hatrammt fyrir stofnun
sjálfstæðs íslamsks ríkis.
ISIS stærir sig á netinu af þjálfun
í því nýjasta í vopnaburði og villi-
mannlegri aflífun gísla. Þetta hefur
reynst hvatning fyrir óreynda að
fara á vettvang til frekari kynningar
á bardögum og morðum. Nú hefur
hins vegar tölvufræðsla
náð þeim ótrúlega ár-
angri að ISIS-áróðurs-
sellur senda fullþjálfaða
liðsmenn reiðubúna til
hvers og eins, og launin
eru paradísarvist. Einn
ólíklegur upptöku-
staður þessa ólánsfólks
er Minneapolis, frið-
sældarsamfélag
margra af norrænum
uppruna. Velmegunin í
Minnesota hefur hins
vegar ekki náð til sam-
félags flóttafólks frá Sómalíu með
mikið atvinnuleysi og tengingar við
hryðjuverkasamtök í heimalandinu
En gætum þess vel að alhæfa ekki
um íslam út frá athæfi sáralítils
minnihluta þeirra. Íslam er eingyð-
istrú, sem viðurkennir einn guð, All-
ah, og Múhameð sem hans síðasta
spámann og Kóraninn það endanlega
guðsorð. Þessa trú játa 1,8 milljarðar
eða 24,1% mannkyns og eru aðaltrú-
arhreyfingarnar súnníar og sjítar.
Múhameðstrú er játuð um heim allan
en er fjölmennust í Indónesíu. Sam-
skipti við aðra, að undanteknum
Austurlöndum nær, eru að virðist
friðsamleg og ekki frásagnarverð. Í
Bandaríkjunum eru yfir þrjár millj-
ónir manna múhameðstrúar en aðal-
moska þeirra í Washington var rétt
hjá íverustað okkar fjölskyldunnar
og mér vitanlega ekki neinum til ama
í hverfinu.
Meiriháttar tölvuárásir á heims-
vísu, sem gerðar voru í maí og júní,
hafa vakið umræðu um aukið net-
öryggi (cyber security). Þessar net-
árásir styðjast að sögn við forritin
Petya og WannaCry og framkvæma
dulkóðun á skjalavistun í harðdiska-
drifi tölva sem endurræsa sig og sýna
þá þau skilaboð að gögn öll séu dul-
kóðuð. Notandi eigi að senda til-
skilda fjárupphæð innan ákveðins
dagafjölda til að opna læsinguna og
gera gögnin aðgengileg. Árásin
heldur síðan áfram í netþjóna af
handahófi dreifandi sömu gíslatöku
um heiminn með kröfu um lausnar-
gjald. Netárásin í maí fór á banka og
fjármálastofnanir á meginlandinu og
heilbrigðisþjónustuna í Bretlandi og
fjölda annarra árásarmarka. Ástæða
er til að ætla að tölvuárásir hafi náð
árangri m.a. vegna þess að tölvur
hafa ekki verið uppfærðar, minnis-
kubbar borið vírusa eða af úreldingu
lykilorða. Umfang tjóns vegna tölvu-
árása er óþekkt, væntanlega vegna
þess að fyrirtæki eru treg til að veita
upplýsingar sem skerða viðskipta-
álit og trúverðugleika.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, alþm. og
fyrrv. utanríkisráðherra, birti 15.
júlí í Mbl. tímabæra áminningu um
nauðsyn sterkara fjármálaeftirlits.
Svo sem hún bendir á sætir það eft-
irlit harðri gagnrýni Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins. Í raun er smæð þjóð-
félagsins og fámenni stjórnsýslunn-
ar okkur hár þröskuldur í stjórn
þjóðmála, sem reyndar eru sama
eðlis og hjá hinum stærri. Leið í
þeim vanda er nýting stuðnings af
samstarfi við sérhæfðar alþjóða-
stofnanir eða jafnvel útvistun sér-
stakra verkefna. Gefur ný ógn tölvu-
árása ekki tilefni til umræðu um það
netöryggi sem völ er á?
Netöryggi og ný ógn
Eftir Einar
Benediktsson » ISIS stærir sig á
netinu af þjálfun í
því nýjasta í vopnaburði
og villimannlegri aflífun
gísla.
Einar Benediktsson
Höfundur er fyrrverandi sendiherra.
Á næsta ári ganga
sveitarstjórnarmenn til
fundar við kjósendur.
Einstakt tækifæri er í
uppsiglingu fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn í
Reykjavík.
Sjaldan hafa verið
uppi eins viðamikil
vandamál í rekstri
borgarinnar, ásamt því
að almennt viðhald
virðist í algjörum ógöngum. Það
skiptir varla máli hvar fæti er niður
drepið.
Í gatnakerfinu eru unnin hver
skemmdarverkin á fætur öðrum;
hvort sem það eru holurnar eða
þrengingarnar. Borgaryfirvöld vilja
hægja enn á umferð þrátt fyrir að
mengun sé orðin meiri en í borgum
sem telja milljónir. Á sama tíma og
bifreiðaframleiðendur berjast fyrir
hverri prósentu í eldsneytisnýtni
virðast borgaryfirvöld telja eldsneyt-
issóun umhverfisvæna. Þá hefjast
gatnaþrif um mitt sumar með tilfall-
andi óþarfa sótmengun.
Snjómokstur hefur verið með þeim
hætti yfir kjörtímabilið að ófært er
fyrir fólk með barnavagna að komast
út úr húsum svo dögum skiptir, hvað
þá hreyfihamlaða sem treysta á hjóla-
stóla. Virðist vera að borgin hreinlega
treysti á að veðurguðirnir sýni mis-
kunn. Það á sama tíma og talað er
fyrir bíllausum lífsstíl.
Sorphirða er orðin að einhverri af-
gangsþjónustu og rusl ekki tæmt fyrr
en ruslatunnur eru orðnar yfirfullar.
Ástæðurnar eru ókunnar en kannski
menn vilji sjá varginum fyrir hlað-
borði.
Það er satt að segja alvarlegt
áhyggjuefni að yfirskuldsett borgin
sé, á sama tíma og nánast allir inn-
viðir grotna niður, að ræða hug-
myndir um mörg hundruð milljarða
framkvæmdir, svokallaða borgarlínu,
fyrir almenningssamgöngukerfi sem
aðeins lítið hlutfall borgarbúa notar.
Hvernig væri að nota
þessa milljarða í Sunda-
braut, eða mislæg
gatnamót sem löngu er
kominn tími á?
Húsnæðismálin eru
einnig í algjörum ógöng-
um. Hafa menn þrengt
svo að einkaframtakinu
að menn treysta sér
varla í að reisa íbúðar-
húsnæði lengur.
Byggingarreglugerðum
og opinberum gjöldum
ásamt sjálfsköpuðum
lóðaskorti er þar um að kenna.
Það væri miður ef Sjálfstæðis-
flokkurinn hér í borginni myndi ekki
nýta þessi pólitísku tækifæri sem eru
að skapast. Sennilega stærstu póli-
tísku tækifæri þessarar aldar í borg-
inni. Væntanlega verður prófkjör
flokksins nú á haustmánuðum. Þá
þurfa flokksmenn að vanda valið.
Stefna flokksins er skýr, hún var
mótuð á Reykjavíkurþinginu. Nú
þarf, ásamt reynslunni sem fyrir er,
baráttuglaða og kjarkaða einstakl-
inga til þess að koma þessari stefnu á
framfæri.
Sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi
fær.
Tækifæri
Eftir Viðar
Guðjohnsen » Sjaldan hafa verið
uppi eins viðamikil
vandamál í rekstri borg-
arinnar, ásamt því að al-
mennt viðhald virðist í
algjörum ógöngum.
Viðar H. Guðjohnsen
Höfundur er fyrrv. formaður félags
sjálfstæðismanna í Smáíbúða-, Bú-
staða- og Fossvogshverfi.
Kæli- og frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666