Morgunblaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
LANGVIRK SÓLARVÖRN
ALLT AÐ � TÍMA VÖRN
ÞOLIR SJÓ, SUNDOG LEIK
Gunnformúlan er læknisfræðilega skráð. Meðmæli húðlækna.
Engin umhverfis- eða hormónatruflandi efni, engar nanóeindir, ilm- eða litarefni.
UVA
Evy fæst í Fríhöfninn, Apótekum, Hagkaup, Nettó, Fjarðarkaup, Melabúðinni, Græn heilsa og víðar
Handfræsi
tennur
-
Dósaborar
fyrir ti b
málma
flísar
Þjónusta við tréiðnaðinn í yfir 30 ár
MEIRI HRAÐI - LENGRI ENDING
Flísaborar
Demantsborar
m ur,
og
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur • Sími 564 1212 • asborg.is
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
50-60% afsl.
Skipholti
50-70% afsl.
Laugavegi
Skoðið Facebook.laxdal.is
Laugavegi 63 • Skipholt 29b
S: 551 4422
SUMARÚTSALA
Jakkar - frakkar - kápur
Gerry Weber – Betty Barclay
MEIRI OG MEIRI
AFSLÁTTUR
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Vegna mikillar þátttöku landsmanna
í almennum bólusetningum barna
hefur ekki verið talin þörf á að gera
bólusetningu að skyldu.
Langflest börn á Íslandi fá allar
þær almennu bólusetningar sem heil-
brigðisyfirvöld mæla með og af þeim
sökum hefur vel tekist að halda far-
sóttum og barnasjúkdómum niðri. Þó
ber að athuga að ekki endast allar
barnabólusetningar ævilangt og
einnig eru til fullorðinsbólusetningar
sem almennt er mælt með. Þar ber
helst að nefna af almennum barna-
bólusetningum sjúkdómana barna-
veiki, mænusótt og stífkrampa en
einnig endist bólusetning við kíg-
hósta aðeins í 10 ár í senn.
Starfsstéttir eins og t.d. dýralækn-
ar og bændur þurfa aðgát vegna stíf-
krampa og þungaðar konur gagnvart
ónæmi fyrir rauðum hundum vegna
hættu á fósturskaða.
Kíghósti óútrýmanlegur
„Kíghósti er sérlega erfiður viður-
eignar og jafnvel þó svo að lands-
menn allir mundu bólusetja sig við
honum reglulega, þá væri ekki hægt
að útrýma sjúkdómnum,“ segir Þór-
ólfur Guðnason sóttvarnarlæknir,
sem telur að almennt sé ekki talið
nauðsynlegt að endurbólusetja gegn
kíghósta eða öðrum sjúkdómum, að
inflúensu undanskilinni, nema
ferðast sé til áhættusvæða þar sem
sjúkdómarnir séu landlægir.
„Börn fara verst út úr kíghósta og
lögð er mikil áhersla á að þau séu
bólusett reglulega við honum,“ segir
Þórólfur. „Á öðrum löndum á Norð-
urlöndunum og hérlendis er ekki al-
menn endurnýjun barnabólusetninga
fyrir fullorðna og ekkert land í heim-
inum endurtekur kíghóstabólusetn-
ingar hjá fullorðnum, nema hjá ferða-
löngum,“ segir Þórólfur jafnframt.
Skráð tilfelli kíghósta á Íslandi árið
2016 voru 14, en aðrir sjúkdómar sem
myndu þarfnast endurnýjaðrar bólu-
setningar eftir barnabólusetningu
voru skráð barnaveiki eitt tilfelli
(fannst í húð, enginn veiktist) en eng-
in af mænusótt og stífkrampa.
Skráning bólusetninga
Sóttvarnarlæknir er ábyrgur fyrir
miðlægri skrá um allar bólusetningar
á Íslandi skv. sóttvarnarlögum.
Í skránni skal koma fram hver var
bólusettur, hvaða bóluefni var gefið,
hvenær það var gefið, hvort auka-
verkanir hafi hlotist af og
ástæðu ef bólusetningu var hafnað.
Bólusetningar barna sem eiga lög-
heimili á Íslandi eru forráðamönnum
þeirra að kostnaðarlausu en fullorðn-
ir og ferðamenn greiða fyrir þær
sjálfir. Sérstakar bólusetningar, sem
gripið er til vegna opinberra sótt-
varnaráðstafana, eru fólki að kostn-
aðarlausu. Ítarlegri upplýsingar um
tölfræði smitsjúkdóma, sóttvarnir og
bólusetningar er að finna á vef Land-
læknisembættisins.
Endingartími almennra bólusetninga
Mælt er með
bólusetningu fyrir
Börn Fullorðna
Barnaveiki (Diphtheria) x
Haemofilus influenzae sjúkdómur af gerð b (Hib) x
Hettusótt (Parotitis epidemica, mumps) x
Hlaupabóla (Varicella-Zoster) x* x*
HPV (Human Papilloma Virus) fyrir stúlkur x
Inflúensa
Kikhósti/Kíghósti (Pertussis) x
Lifrarbólga A
Lifrarbólga B
Mænusótt/Lömunarveiki (Polio) x
Meningókokkar C x
Mislingar (Morbilli, measles) x
Pneumókokkar x x
Rauðir hundar (Rubella) x
Stífkrampi (Tetanus) x
*Ekki hefur verið tekin ákvörðun um almenna bólusetningu en hægt er að fá bóluefni gegn lyfseðli.
**Þeir sem ekki hafa enn verið bólusettir eða fengið mislinga. *** Gegn hluta af þeim.
Heimild: Embætti landlæknis
Kíghóstabólusetning
þarf 10 ára endurnýjun
Þátttaka í almennum bólusetningum barna á Íslandi góð
Sveinn Gestur
Tryggvason, sem
grunaður er um
að hafa orðið
Arnari Jónssyni
Aspar að bana í
Mosfellsdal 7.
júní síðastliðinn,
var úrskurðaður
í áframhaldandi
fjögurra vikna
gæsluvarðhald í
héraðsdómi í gærmorgun.
Sveinn Gestur mun því sæta
gæsluvarðhaldi í að minnsta kosti
tíu vikur, en nú þegar eru sex vikur
liðnar frá því hann var dæmdur í
varðhald. Gefa þarf út ákæru innan
tólf vikna frá því að menn eru
dæmdir í gæsluvarðhald.
Grímur Grímsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn segir að rannsóknin
sé langt komin og verið sé að hnýta
síðustu enda málsins. Beðið sé eftir
síðustu niðurstöðum tæknirann-
sókna.
Verður áfram í
gæsluvarðhaldi
Frá vettvangi máls-
ins í Mosfellsdal.
Hæstiréttur
staðfesti í gær
úrskurð Héraðs-
dóms Reykja-
ness að bras-
ilískur
karlmaður skuli
sæta gæslu-
varðhaldi, á
meðan áfrýj-
unarfrestur varir og mál hans sætir
meðferð fyrir Hæstarétti, komi til
þess, en eigi lengur en til 11. októ-
ber. Maðurinn var í fyrradag
dæmdur í þriggja og hálfs árs fang-
elsi fyrir stórfellt fíkniefnalaga-
brot. Er manninum gefið að sök að
hafa staðið að innflutningi á sam-
tals 1.950 ml af kókaíni sem hafði
69% styrkleika, ætluðu til söludreif-
ingar hér á landi í ágóðaskyni.
Svo segir í úrskurðinum að fallist
hafi verið á það með héraðs-
saksóknara að „ætla megi að dóm-
felldi muni reyna að komast úr
landi, leynast eða koma sér með
öðrum hætti undan málsókn eða
fullnustu fari hann frjáls ferða
sinna“.
Brasilíumaður sett-
ur í gæsluvarðhald
Atvinna