Morgunblaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 sem við kveðjum í dag Hrafnhildi Þorgrímsdóttur eftir áratuga kynni og vináttu. Margs er að minnast frá ferða- lögum og öðrum samverustund- um sem okkar góði hópur, Tækni- klúbburinn, hefur átt. Þar fóru skólabræður Rafns og eiginkonur þeirra sem hafa hist reglulega í svokölluðum saumaklúbbi. Við höfum átt margar dýrmætar ánægjustundir saman. Mjög hef- ur nú fækkað í þeim hópi og mjög munum við sakna Habbýjar sem alltaf gat hleypt fjöri í samkund- una, með sínum snöggu og bein- skeyttu tilsvörum. Á hótelum byrjuðum við Habbý iðulega á að finna hentug- an stað til að spila á. Habbý hafði mikla ánægju af að spila brids og tókum við einu sinni í spil uppi á Zugspitzen í um 2.500 m hæð. Margar gleðistundir höfum við Jón einnig átt með þeim hjónum við Vesturhópsvatn, sem við þökkum nú af heilum hug. Þegar við dvöldum þar síðasta haust nutum við ótrúlegrar veðurblíðu í sól og stafalogni. Fegurðin var allsráðandi. Fjöllin, báturinn og veiðimennirnir spegluðust í vatn- inu. Síðan var grillað, spilað og glaðst á góðri stundu. Habbý var mikill lestrarhestur og vel að sér um bókmenntir al- mennt, m.a. Íslendingasögurnar og ljóð. Gaman var að ræða við hana um bækur og oft gaf hún ábendingar um áhugavert lesefni og iðulega var ég með bækur að láni frá henni. Habbý var kennari af guðs náð. Nýlega áttaði ég mig á að það var ekki bara vegna þekkingar henn- ar á íslenskri tungu og þess hversu skipulögð hún var alltaf. Það var einnig vegna þess hversu mikla ánægju hún sjálf hafði af kennslunni og umhyggju hennar fyrir hag nemenda sinna. Habbý var félagslynd, hrein og bein, skýr í tali og áhugasöm um menn og málefni. Hún gekk að hverju verki af áhuga og gleði og því var skemmtilegt að njóta ljúfra stunda með henni. Ferð þín er hafin. Fjarlægjast heimatún. Nú fylgir þú vötnum sem falla til nýrra staða. Og sjónhringar nýir sindra þér fyrir augum. (Hannes Pétursson.) Elsku Rafn, Ásdís og Ólafur, við sendum ykkur og fjölskyld- unni allri okkar dýpstu samúðar- kveðjur. F.h. saumaklúbbsins, Guðbjörg Jónsdóttir. Fallin er frá kær samferða- kona og vinur, Hrafnhildur Þor- grímsdóttir kennari, og langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum Hrafnhildur var sterkur per- sónuleiki, hreinskiptin, stóð fast á sínum skoðunum, hlý, notaleg og vinur í raun. Mér hlotnaðist að sitja með henni í sóknarnefnd Seljakirkju um tíma, en þá tókst með okkur vinátta sem ég mat mikils og aldr- ei féll skuggi á. Hrafnhildur var mjög sam- viskusöm í starfi fyrir kirkjuna okkar og ræktaði starf sitt af mik- illi einurð og festu. Hún var fylgin sér og hafði alltaf hagsmuni safn- aðarins að leiðarljósi. Hrafnhildur reyndist syni mín- um einstaklega vel er kom að samræmdu prófunum, las hún með honum Gísla sögu Súrssonar þar til hann kunni utanbókar, ein- kunnin varð 10. Þetta var bara eitt af þeim verkefnum sem hún tók að sér. Engin verkefni sem hún tók að sér voru skilin eftir í lausu lofti. Efst er mér í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast henni og njóta vináttu hennar í áratugi. Margs er að minnast, margs er að sakna úr samvistum við Hrafn- hildi sem kölluð var burt alltof fljótt. Bjartar minningar lifa ævina á enda. Samúðarkveðjur til fjölskyld- unnar. Hvíl í friði. Guðríður Guðbjartsdóttir. Kveðja frá Seljaskóla Sólin hefur sest í hinsta sinn í lífi Hrafnhildar kennara og hún kemur ekki upp aftur þó við hin fáum að sjá hana rísa og hníga enn um sinn. Lífsgöngu þessarar einstöku konu er lokið, of snemma. Lokabaráttan var stutt og snörp. Ég kom til hennar þar sem hún lá á Landspítalanum og færði henni kveðjur frá okkur vin- um hennar í Seljaskóla. Það var mjög dýrmæt stund fyrir mig. Hrafnhildar eyddi stærstum hluta lífsstarfs síns sem íslensku- kennari við Seljaskóla. Hún hætti kennslu fyrir allnokkrum árum vegna veikinda. Seljahverfið var hennar hverfi og Seljaskóli henn- ar skóli. Hún bjó í Lækjarselinu á einstaklega fallegu heimili ásamt Rabba manninum sínum, Ásdísi dóttur sinni og Óla syni sínum sem bæði gengu í Seljaskóla. Hrafnhildur er mjög eftir- minnileg persóna og afburða- kennari, um það geta samstarfs- menn hennar og nemendur vitnað. Það var ákveðin glaðværð sem fylgdi Hrafnhildi og það gustaði af henni hvort sem var á kennarastofunni eða annars stað- ar. Hún var svo sterkur persónu- leiki, hrósaði, „skammaði“, lagði lífsreglur, benti manni á villur í málfari, hló, naut lífsins, spilaði, las mikið og spjallaði, gjafmild, hélt í hefðir, vildi fá að vita um ættir og uppruna. Var stolt af vesturhúnvetnskum uppruna sín- um, sagði sögur. Hún var líka á undan okkur hinum í umhverfis- málum, t.d. hvað varðar pappír, nýtti alla afganga í bak og fyrir og lét í sér heyra ef við gerðum það ekki líka. Hún var sannkallaður vinur vina sinna og samstarfs- manna. Nemendur hennar báru mikla virðingu fyrir henni og orð hennar voru lög. Hún fylgdist vel með þeim eftir að námi í grunn- skóla lauk, hvernig þeim vegnaði í lífinu. Einum nemendahópnum fylgdist hún sérstakleg vel með en það var 1975-árgangurinn, HÞ bekkurinn, umsjónarbekkurinn hennar sem hún hafði fylgt upp í unglingadeild úr barnadeildinni og kenndi hún þeim íslensku alla unglingadeildina. Stolt var hún af þeim. Ég var svo lánsöm að dóttir mín Inga Rún var í þessum bekk ásamt Ásdísi dóttur Hrafnhildar en þær voru miklar vinkonur. Ég fylgdist því bæði með henni sem kennara, samstarfsmanni og góðri vinkonu. Mín dóttir lagði síðan fyrir sig blaðamennsku þar sem maður þarf að hafa gott vald á íslensku máli. Þar hafði Hrafn- hildur lagt góðan grunn. Hún var fagmaður í sínu fagi íslensku fram í fingurgóma og börnin námu fagið. „Munið að það á að segja hvor um tvo en hver um fleiri en tvo,“ sagði Hrafnhildur. Okkur í Seljaskóla eru líka minn- isstæðar „þulurnar“ sem hún kenndi nemendum: LANGAFAT, um fallorðin, og FASUN, um smáorðin. Þeir gátu þá ekki annað en lært þau. Eitt árið gáfu nem- endur sem voru að útskrifast henni útskorið glas með þessum skrítnu orðum. Það veit ég að henni þótti mjög vænt um. Þeir eru margir nemendurnir í Selja- skóla sem námu íslensku hjá henni Hrafnhildi. Við gömlu sam- starfsmennirnir í Seljaskóla biðj- um Guð að blessa og styrkja hennar góða fólk, Rabba, Ásdísi, Óla, tengdabörnin og öll barna- börnin. Blessuð sé minning Hrafnhildar Þorgrímsdóttur. Margrét Árný Sigursteins- dóttir, aðstoðarskólastjóri. Ég kom ný í Seljaskóla í 12 ára bekk (þá 6. bekk) og lenti í bekk hjá Hrafnhildi. Það var mikil gæfa. Í bekknum voru einstak- lega góðir og vandaðir krakkar, sem tóku mér reglulega vel og svo var Hrafnhildur umsjónarkenn- arinn okkar. Þegar ég kem til Hrafnhildar var ég ekki góð í staf- setningu og málfræði, líklega með snert af lesblindu. Ég man að strax í 12 ára bekk byrjuðum við að orðflokkagreina eina setningu heima á hverjum degi og vorum með sérstaka bók til þess. Allt í skipulagi. Mér fannst þetta mjög erfitt til að byrja með en smám saman urðum við öll góð í að orð- flokkagreina. Það sem þurfti að læra utanbókar setti Hrafnhildur okkur fyrir að gert skyldi. Til dæmis öll fornöfnin, atviksorðin, forsetningarnar (og hver stýrði hvaða falli), i-hljóðvörp, eins orð með -y- og -i- en með ólíka merk- ingu (skildi - skyldi) og svo margt, margt fleira. Allt gert jafnt og þétt og stutt próf tekin til að ganga úr skugga um að við hefð- um náð þessu. Sérstaklega gaman fannst mér að fara yfir stafsetningaræfingar. Við gerðum það öll saman. Hver og einn tók eina setningu (upp- hátt) og greindi hana í öreindir og Hrafnhildur hjálpaði ef maður lenti í bobba. Allar stafsetningar- reglur tilteknar, málfræðireglur og við skrifuðum fyrir ofan með rauðum penna. Smám saman náð- ust miklar framfarir hjá öllum í stafsetningu. Það syngur enn í hausnum á mér: „Skíta, skeit, míga, meig, líta, leit eru hljóðskiptasagnir! - aldrei -y-!“ Það var gaman að bæta sig í ís- lenskunni og ná betri tökum á henni. En Hrafnhildur var líka svo góð við okkur. Hún ætlaðist til að við ynnum já, manni datt nú ekki til hugar að koma ólærður í tíma. En hún vildi okkur svo vel og lagði svo mikið á sig sjálfa, til að kenna okkur, koma öllu til skila, æfa okkur og gera allt eins vel og hægt væri til að við næðum góðum tökum á móðurmálinu okkar. Mér fannst alltaf skína í gegnum allt hjá henni metnaður hennar fyrir okkar hönd, kærleik- ur og velvild. Það var mikið öryggi sem fylgdi því að vera í bekk hjá Hrafnhildi, hún var svolítið eins og mamma okkar í skólanum. Hún bar hag okkar ótvírætt fyrir brjósti og lagði mikið á sig fyrir okkur, eins og mömmur gera, án þess að telja það eftir sér. Mér þótti þetta notalegt og ég var þakklát fyrir hana og verð alltaf. Vegna Hrafnhildar ákvað ég sjálf að fara í kennaraháskólann, mig langaði að verða svona góður kennari eins og hún og hafa svona góð áhrif. Eftir útskrift fékk ég þann heiður að kenna nokkur ár íslensku við hlið hennar í mínum gamla skóla, Seljaskóla. Ég held- ur betur naut góðs af að kenna með Hrafnhildi sem og öðrum góðum kennurum sem höfðu kennt mér. Það var dýrmætur tími. Ég sendi fjölskyldu Hrafnhild- ar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Hrafnhildur var líka þar að auki mjög skemmtileg kona. Mér fannst alltaf svo gaman að heim- sækja hana. Ég veit að hennar er afar sárt saknað og ég bið góðan Guð að styrkja ykkur í sorginni. Minningin um framúrskarandi kennara lifir áfram í hjörtum og vitsmunum okkar sem fengum að njóta. Kærleikskveðja, Ebba. Ég ólst upp í Lækjarseli 1, í húsinu á móti bjuggu Hrafnhildur og fjölskylda. Fyrir mér var hún mamma Ásdísar og Óla. Í skól- anum var hún Hrafnhildur kenn- ari. Við Ásdís urðum strax bestu vinkonur þótt hún væri árinu eldri. Alla mína æsku átti ég ann- að heimili á nr. 2 þar sem ég gekk inn og út eins og hver annar heim- ilismaður, ávallt velkomin og end- aði stundum með að gista þótt það væru nokkur skref yfir götuna heim til mín. Einar elstu minningar mínar úr Lækjarselinu eru úr bílskúrn- um hjá Hrafnhildi, en þá var þar eldhús áður en flutt var upp á aðra hæð. Á þessum tíma stóðu ennþá grunnar í götunni og allt hverfið var í byggingu. Ég og Ás- dís sátum við risastórt eldhúsborð og teiknuðum löngum stundum og Hrafnhildur hrósaði okkur fyr- ir teikningarnar, seinna hrósaði hún mér fyrir fallega skrift og góðan námsárangur. Þegar efri hæðin var tekin í notkun hafði Hrafnhildur betra útsýni úr eldhúsglugganum og fylgdist grannt með okkur krökk- unum í götunni. Hún lét sig börn- in í hverfinu varða, rétt eins og nemendur sína í skólanum. Hrafnhildur kenndi mér aldrei í Seljaskóla. En ég sat samt stundum við eldhúsborðið hjá henni og lærði heima, með Ásdísi. Fyrir próf voru oft krakkar í aukatímum hjá henni og þétt setið eldhúsið. Fyrir samræmdu prófin fékk ég að sitja með og læra og fékk alls konar æfingarverkefni. Ég man eftir Hrafnhildi rífa upp útidyrahurðina hjá sér og gala yfir götuna, þegar ég var að koma heim einn daginn, ein- kunnina mína úr samræmdu próf- unum sem hún hafði fengið að sjá á undan okkur nemendunum. Gott ef hún var ekki jafn stolt. Það gladdi hana mikið þegar nemendur stóðu sig vel. Hún var kennari af Guðs náð. Hrafnhildur var algjörlega ein- stök, það er engin eins og hún og það var heldur engin mamma eins og hún. Hún var ákveðin, krakkar hlýddu henni og það voru hreinar línur í hennar húsum. En hún var líka ljúf og ég man eftir að hún spjallaði við okkur krakkana um ýmislegt, hún hafði áhuga á því sem við vorum að gera og fólkinu í kringum sig. Það eru forréttindi að alast upp með jafn góða nágranna í næsta húsi og við þökkum Hrafnhildi samfylgdina. Blessuð sé minning hennar. Hanna Björk Valsdóttir. Elsku Habbý. Margt fer í gegnum hugann þegar maður horfir til baka. Það var alltaf gam- an að koma í heimsókn til ykkar, afmælis- og jólaboðin standa upp úr. Það er skrýtið að hugsa til þess að við eigum aldrei eftir að koma í jólaboð í Lækjarselið aft- ur. Habbý, þú varst hrjúf á yfir- borðinu en silkimjúk að innan, hreinskilin og með mjög skemmtilegan húmor. Þú varst alltaf boðin og búin til að hjálpa manni. Þú last t.d. yfir BS-rit- gerðina mína og baðst bara um að ég myndi kaupa fingurbjörg í safnið þitt fyrir alla vinnuna sem þú lagðir í að yfirfara ritgerðina. Ég elskaði það hvað þú varst ströng í yfirlestrinum enda fékk ég mjög góða einkunn fyrir hana og þá einkunn á ég mikið að þakka þér. Einnig lánaðir þú okk- ur bílinn þinn þegar við komum til landsins og vildir ekki sjá að taka greiðslu fyrir það. Ég vona að þér líði betur þar sem þú ert núna. Ég á eftir að sakna þín. Hvíldu í friði, elsku Habbý. Samúðarkveðjur til ykkar, elsku fjölskylda og vinir. Hugur minn er hjá ykkur. Ég enda þessi fátæklegu orð á litlu ljóði. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Ólöf Sigríður Einarsdóttir. ✝ Halla Kjartans-dóttir fæddist á Glúmsstöðum II 30. janúar 1956. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skóg- arbæ 12. júlí 2017. Foreldrar henn- ar voru Þórhalla Gunnarsdóttir, f. 1.5. 1927, d. 17.12. 2001, og Kjartan Hallgrímsson, f. 30.5. 1919, d. 1.4. 1987. Systkini Höllu eru Bergljót, f. 21.3. 1948, Hallgrímur, f. 9.3. 1949, d. 12.12. 2008, Björk, f. 23.6. 1950, Sigurbjörg, f. 12.2. 1952, Mekk- in, f. 30.1. 1950, Hjörleifur, f. 30.1. 1958, Dögg, f. 5.12. 1960, Gunnar, f. 15.12. 1962, Ingunn, f. 12.9. 1964, Kjartan Glúmur, f. 11.2. 1969, og Þórhalla Agla, f. 28.9. 1971. Sambýlismaður Höllu var Guðmundur Már Hansson Beck, f. 6.4. 1950. Foreldrar hans voru Hans Ríkarð Kristinsson Beck, f. 16.2. 1901, d. 21.2. 1971, og Hallfríður Guðmundsdóttir, f. 17.2. 1915. Halla og Guðmundur eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Þórhalla, f. 23.11. 1976. Sonur Þórhöllu og Finns Trausta Finn- bogasonar er Ýmir Dreki, f. 18.3. 2009. 2) Sól- veig, f. 12.12. 1978. Sonur Sólveigar og Unnars Arnar Harðarsonar er Úlfar Már Unn- arsson Beck, f. 24.7. 2008. 3) Hall- fríður, f. 3.10. 1981. 4) Hans Ágúst, f. 22.8. 1986, d. 26.3. 2012. Sonur Hans Ágústs og Nönnu Ingibjargar Viðarsdóttur er Viðar Nói, f. 27.12. 2007. Stjúp- sonur Hans Ágústs og Birnu Sifjar Björnsdóttur er Björn Smári Gunnarsson, f. 9.5. 2003. 5) Inga Mekkin, f. 8.3. 1988. Halla ólst upp á Glúmsstöðum II í Fljótsdal, og var í heimavist í barnaskólanum á Hallormsstað. Hún fór í Húsmæðraskólann á Laugalandi og flutti svo í Reyð- arfjarðarkaupstað. Þar tók við búskapur og veðurathugun- arstörf á Kollaleiru. Þar ólust upp öll börn hennar og Guð- mundar, en 2006 fluttu þau til Akureyrar. Hún eyddi síðustu árum sínum á hjúkrunarheimil- inu Skógarbæ í Reykjavík. Útför Höllu fer fram í Val- þjófsstaðarkirkju í dag, 22. júlí 2017, klukkan 13. Elsku mamma mín. Að eiga að kveðja þig í orðum er mér næst- um um megn. Þú varst kona fárra orða en mikilla tilfinninga þótt það sæist kannski ekki alltaf á yfirborðinu. Það sem lifir hvað sterkast í huga mér er lófinn þinn. Lófinn þinn þegar við geng- um saman um sveitina okkar og þú sýndir mér blómin, sagðir mér nöfnin: Bláklukka, smjörgras, lambagras, hrútaberjalyng, kollaleirurós. Lófinn þinn sem umlukti minn og varði gegn vetr- arkulda, lófinn þinn sem ég fékk alltaf að leiða þegar mig skorti hugrekki og styrk. Eftir að þú veiktist var ég lengi að sætta mig við mitt nýja hlutverk, að vera sú sem veitti stuðning og aðstoð frekar en þáði og það leið þó nokkur tími áður en ég gat af ör- yggi tekið um höndina þína og haldið fast, veitt þér þann styrk sem þú þurftir. En þegar ég lít til baka á öll þau skipti sem við gengum hönd í hönd, jafnvel þeg- ar ég var aðeins lítil písl, og þú hélst mér þétt við hlið þér finnst mér sem ég hafi jafnvel á stund- um veitt þér jafn mikinn styrk og þú veittir mér. Ég hélt í höndina þína þegar þú kvaddir okkur í hinsta sinn, en nú mun ég aldrei finna hlýju hennar og styrk aftur. Ég sakna þín nú þegar. Inga Mekkin Guðmunds- dóttir Beck. Halla Kjartansdóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.