Morgunblaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 Nú er þrauta- göngu Ólafs föður míns loksins lokið. Eftir erfið og marg- þætt veikindi sem hafa staðið yfir næstum áratug er pabbi búinn að kveðja í síðasta sinn. Pabbi var mér bæði mikil fyrirmynd og kær vinur. Hann byrjaði snemma að koma fram við mig sem jafningja og var það einkennandi fyrir hann að setja sig hvorki yfir né undir menn, koma vel fram við alla og að sama skapi óhræddur að nálgast alla til að skiptast á skoðunum og fróðleik. Hann var um margt óvenju- legur, eflaust, og alls ekkert full- kominn, frekar en neinn. Hann var renaissance-maður af gamla skólanum, hæfur myndlistar- maður, beittur penni, mikill fróðleiksmaður og alltaf þyrstur að læra meira og miðla því sem hann vissi. Eitt af því sem ég er þakklátur honum í uppeldinu er að hafa smitað okkur systkinin af óbifandi forvitni hans á lífinu, efnisheiminum og helst þá mannfólkinu. Pabbi sá það já- kvæða í öllu. Oft gat okkur greint á um merkileika og gagn- semi hluta. Í kvikmyndum, sem öðrum gat fundist óaðgengilegt torf sá hann djúpar allegoríur og metnaðarfull efnistök. Í fólki sem öðrum fannst kannski sér- vitringar fann pabbi spekinga og sérfræðinga sem breikkuðu sjóndeildarhring hans og tókst að fá okkur til að sjá það líka. Í einföldu grjóti sá hann jarðsög- una og uppruna Íslands. Og í óhörðnuðum vandræðaunglingi sem var í eilífu veseni með sjálf- an sig sá hann í mér efnilegan mann sem næði langt. Pabbi átti mörg líf, á mismun- andi vettvangi, og vini um allt land og víðar, sem ég hef ekki tölu á. Oft hef ég talið mig þekkja pabba ágætlega en svo hitt vini hans úti í bæ sem hrópa „Ertu sonur Ólafs?!“ og hafa þá sagt mér ótrúlegar sögur og aus- ið hann lofi, hvort sem var af uppátækjum úr skólaárum í MR, róttækum hippaárum í Kaup- mannahöfn, sem grunnskóla- kennari í Stykkishólmi, virðuleg- ur ritstjóri á Heima er best og Þjóðviljanum, sem fjölmiðlamað- Ólafur Hermann Torfason ✝ Ólafur Her-mann Torfason fæddist 27. júlí 1947. Hann lést 17. júlí 2017. Útför Ólafs fór fram 21. júlí 2017. ur eða úr hinum mörgu vinahópum sem pabbi átti hlut að. Þær eru ótelj- andi minningarnar, sem ég á, um að vera stundum treg- ur dreginn með honum hingað og þangað, að sjá vinnustaði, mennta- stofnanir, menning- arviðburði, skrítnar kvikmyndir og heimsækja og ræða við ólík- legasta fólk, sem eftir á að hyggja var ómetanlegur undir- búningur fyrir lífið. Hann lagði mikið upp úr því að kynna okkur börnin fyrir tækni og tölvum snemma, sem varð beinn grunn- ur að starfsvettvangi mínum seinna meir. Ég er óendalega þakklátur maka hans, Sigríði Dóru Jó- hannsdóttur, fyrir fórnfýsi sína og stuðning við pabba síðustu ár í veikindum hans. Ást hennar og kærleikur var pabba mikil lífs- gjöf síðustu 12 ár ævi hans. Torfi Ólafsson, afi minn, lést fyrir nokkrum árum og hafði oft á orði, vel heilum áratug áður, hversu sáttur hann væri við lífið og reiðubúinn að kveðja, því hann hefði áorkað svo miklu og skilið svo margt gott eftir sig. Þó svo að ævi pabba hafi verið allt of stutt, og honum eflaust fundist margt óklárað lít ég svo á að pabbi hafi átt góða ævi, lýst upp og bætt líf ótal fólks, með kær- leika sínum, fróðleik og vinskap og kveð hann sáttur og þakklátur fyrir samveruna. Torfi Frans Ólafsson. Persónutöfrar eru flókið fyr- irbæri og koma víst aldrei að ut- an, ævinlega að innan. Þá átti Óli í ríkum mæli og að honum laðaðist auðveldlega fólk af öllu tagi. Fundum okkar Óla bar fyrst saman í Hagaskóla, en barna- skólanum hafði hann varið hjá kaþólskum í Landakoti, enda átti hann til kaþólskra að telja. Æskuheimilið var sérstakt, for- eldrar hans höfðu skilið sem þá var að miklum mun sjaldgæfara en nú og jók enn á sérstöðuna að faðirinn,Torfi, annaðist heimilis- hald og forsjá barnanna. Jafnlyndari mann en Torfa var erfitt að hugsa sér. Morgun hvern steig hann á bak sínum hjólhesti og hélt til vinnu í seðla- bankanum. Þegar hann kom heim að vinnudegi loknum þurfti einatt að klofa yfir haf af skótaui og skólatöskum því börnin voru vinmörg og heimilið griðastaður þar sem hvorki ríktu boð né bönn og ekkert yfirsjálf. Til marks um hve börnin skipuðu ríkan sess á Melhaga 4 vantaði alveg þetta mubleraða tómarúm sem kallast betristofa, börnin höfðu hvert sitt herbergi og unglingurinn Óli breytti stof- unni umsvifalaust í listasmiðju þar sem var samið, málað, kvik- myndað og þar sem hin ríka söfnunarástríða hans fékk útrás. Vistarveruna nefndi hann „The Memory Congress Palace“ eða Minnisþinghöllina. Jafnframt kvikmyndagerð fékkst Óli við skáldskap og var þar svo bráðþroska að við félagar hans vorum eins og barnaskóli í samanburði. Á meðan við vorum enn í Alistair MacLean og Fimmbókunum var hann að brjótast í Ulysses og Finnegans Wake. Í menntaskóla hafði hann kynnst æskuástinni, henni Sig- nýju, og að stúdentsprófi loknu héldu þau utan til Kaupmanna- hafnar þar sem Óli hóf að nema kvikmyndafræði og Signý leik- hús. Þetta voru umbrotatíma- rnir miklu í kjölfar ’68. Flest okkar létu sér nægja að heim- sækja þá atburðarás þegar vel stóð á, en í dæmi Óla og Signýj- ar má segja að atburðarásin hafi tekið hús á þeim, Krónprins- essugata nr. 39 varð brátt eins og útvíkkuð mynd af Melhaga 4. Og Óli var skiptiborð allra þess- ara hræringa með sinn rauða makka sem óx beint upp í loftið og breiddist út til hliðanna eins og laufmikil króna á voldugum baðmi. Heimkominn var starfsvett- vangur Óla lengst af í fjölmiðlum og hlustendur Rásar 2 minnast vikulegra kvikmyndapistla þar sem hann miðlaði af yfirburða- þekkingu sinni á mönnum og málefnum. Af fræðiverkum hans ber hæst 800 bls. rit sem Sankti Jósefssystur fólu honum að taka saman í tilefni af 100 ára starfs- afmæli þeirra á Íslandi, en varð í höndunum á Óla að alhliða sam- félagslýsingu, þrátt fyrir hinn hógværa titil: St. Jósefssystur á Íslandi 1896-1996. Óli og Signý áttu saman tutt- ugu gjöful ár og börnin sem al- þjóð þekkir, Melkorku leikhús- fræðing, Torfa hugbúnaðarsmið og Guðrúnu Jóhönnu söngkonu. Þá settu þau bú saman Óli og Þorgerður Sigurðardóttir, mynd- listarmaður, en hún lést árið 2003. Lífsförunautur Óla eftir það var Sigríður Dóra Jóhanns- dóttir sem átti með honum góð ár, en líka árin erfiðu undir lokin þar sem hún umvafði Óla allt til hinsta andvarps. Um þær þrautir sem lögðust á Óla undir lokin kemur manni í hug biblíusagan um Job. Að þessar listfengu hendur skyldu missa máttinn og hugurinn snjalli minnið, sögumaðurinn málið. Nú er sú þrautaganga á enda og sá Óli sem var heldur áfram. Og er. Pétur Gunnarsson. Vinnustaðurinn er stór þáttur í lífi manna. Þar kemur saman fólk sem stefnir að sameiginleg- um markmiðum, oft úr ólíkum áttum og hefur ólíka sýn á við- fangsefnin. Orð Einars Bene- diktssonar að með öðrum sé maðurinn meiri en hann sjálfur, kristallast í góðu samstarfi þar sem margir leggja skerf til mál- anna. Það á við vinnufundi en einnig samfundi á kaffistofunni, hjarta vinnustaðarins, þar sem tekið er upp óformlegt spjall. Þannig var að vinna með Ólafi H. Torfasyni. Kynni okkar hóf- ust er Ólafur kom heim frá námi í kvikmyndagerð árið 1975 ásamt fjölskyldu sinni með börnin Mel- korku Teklu sér við hönd og Torfa Frans á handlegg. Guðrún Jóhanna var ekki enn fædd. Við Ólafur kenndum saman við Grunnskólann í Stykkishólmi um sex ára skeið. Í minningunni verða þessi ár á litlu kennara- stofunni að opnum háskóla. Ný sýn opnaðist á myndlist, Ólafur var afar hagur vatnslitamálari; trúmál, Ólafur var kaþólikki; jarðfræði, landafræði, sögu, heimspeki og fleiri fræðigreinar, Ólafur bjó yfir náðargáfu fræðarans. Hann varpaði nýju ljósi á málin og hóf umræðuefnið upp yfir hversdagsleikann. Börn- in okkar urðu leikfélagar og fjöl- skyldurnar áttu ófáar stundir saman. Börn mín dásömuðu ferð- ir með Ólafi og ferð að Rauða- sandi varð að ævintýri í hugum þeirra. Oft fer svo að kunningsskap- urinn dvínar þegar samstarfinu lýkur en ekki vinskapurinn við Ólaf. Hann gat lyft umræðuefn- um yfir kvöldverði upp í hæðir með fróðleik sínum og ferskri sýn. Eftir að hann varð kvik- myndarýnir RÚV var óbrigðult að leita til hans um álit á kvik- myndum. Svo varð hann félagi í gönguklúbbnum Fet fyrir fet, þar sem hann auðgaði göngu- ferðirnar með margháttuðum fróðleik. Hann þekkti sagnir og rústir, minjar um horfna veröld, oft í næsta nágrenni alfaraleiða. Eftir er aðeins að þakka góð- um félaga langa og dýrmæta vin- áttu og harma ótímabært fráfall hans. Við Halldór og göngu- klúbburinn allur vottum börnum hans, aldraðri móður og Siggu Dóru, félaga okkar og vinkonu, og tryggum lífsförunaut Ólafs síðustu árin, innilega samúð. Minning hans lifir. Kristín Bjarnadóttir. Tíminn stendur í stað við úti- dyrnar okkar þar sem tengda- pabbi minn er að kveðja okkur. Það kyngir niður snjó og orðið hvasst úti og ég held að tengda- pabba sé að snjóa niður þar sem hann stendur rétt fyrir utan dyrnar hjá okkur. En hann hagg- ast ekki, hann er í miðri sögu. Sonur hans kinkar kolli, hlær og virðist jafn laus við að átta sig á því að menn geta orðið úti í svona kulda en ég kann ekki við að benda honum á að drífa sig aftur inn um dyrnar og klára söguna innandyra. Þetta eru þeir feðgar í hnotskurn, djúpt sokknir í sam- tal og sögur og jafnvel ofsaveður eða bílstjórar sem liggja á flaut- unni geta hvorki haggað sögu- manninum, né hlustandanum. Það kom því ekki á óvart að þegar sonarsonurinn, Konráð Bjartur, mætti á svæðið var Óli afi fljótur að kveikja í þorstanum eftir góðum sögum. Drengurinn sem var aðeins nokkurra ára gamall þegar hann stakk lítilli hendi í afalófa og þeir gengu saman inn í stóru kvikmyndahús borgarinnar. Þar rýndu þeir saman og ræddu um nýjustu teiknimyndirnar og allt í einu var Ólafur Torfason bíógagnrýnandi Rásar 2 farinn að fjalla óvenju oft um barnamyndir í vikulegri umfjöllun sinni um það heitasta í bíósenu heimsins. Í útvarpinu vitnaði hann ósjaldan í afasoninn sem gaf hverri mynd einkunn á sinn barnslega hátt „milljón stjörnur, geggjað góð, en dálítið hræðileg“ og svo hló afi í beinni útsendingu. Við sátum ósjaldan í bílnum á leiðinni heim úr leik- skólanum og hlustuðum á afa fara yfir síðustu bíóferð. Barnið ljómaði í aftursætinu, hann fann sem var að hann var risastór hluti af lífi afa síns. Þá tilfinningu þekktu hans nánustu vel. Hann var alltaf með sitt fólk ofarlega í huga, sama hversu mikið var að gera hjá honum. Ósjaldan hafði hann séð eitthvað sem hann taldi að gæti vakið athygli manns, klippt út grein eða safnað saman heilu ári af Time Magazine svona ef ske kynni að mann vantaði gott lesefni. Hann hafði einlægan áhuga á sínu fólki sem og sam- félaginu öllu og öllum, ekki síst þeim sem voru efni í góða sögu. En afinn Óli var líka óspar við að týna sér í leik með barnabörn- unum, bak við sófa, úti í garði eða sitja yfir sömu misgóðu barnamyndunum í sjónvarpinu. Þegar nafni hans Árni Ólafur fæddist, kraftmikill og snar í snúningum, elti Óli hann skelli- hlæjandi um allt. Þegar þarna var komið var sjúkdómurinn far- inn að láta á sér kræla en aldrei skorti þolinmæðina við barnið sem hafði endalausa orku. Tengdapabbi minn átti nefni- lega það sem okkur finnst okkur alltaf skorta, nægan tíma handa öllum sínum. Hann var aldrei að flýta sér og gaf af tíma sínum rausnarlega, nákvæmlega eins og fullkominn afi á að vera. Blessuð sé minningin um elsku tengdaföður minn. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir. Á unglingsárunum var Ólafur Torfason Listamaðurinn með stórum staf í vinahópi sem seinna óx upp í að verða fyrir- ferðarmikill í heimi listanna. Sem myndlistarmaður hafði hann náttúrugáfu, sem gaf honum aukatekjur á yngri árum, þegar hann teiknaði nokkra árganga af Menntaskólafánunni. Löngu síð- ar, þegar hann bjó í Stykkis- hólmi, fór hann að mála með vatnslitum – með þeim árangri að áður en langt um leið hafði hann fengið pantanir héðan og þaðan frá bændum sem vildu eignast mynd eftir Óla af bænum sínum og nánasta umhverfi. Hann fór að gera 8 mm stutt- myndir á undan okkur hinum, og þær myndir voru fyndnari og frumlegri en allt sem aðrir voru að gera. Það var upphafið að miklu grúski um kvikmyndir, hann vissi brátt allt um bíó, og því var einsýnt að til hans yrði leitað þegar Rás 2 vantaði kvik- myndagagnrýnanda. Því starfi sinnti Ólafur um árabil, var sann- gjarn, uppfræðandi og vel met- inn af öllum sem gátu haft gagn af umsögnum hans. Bestur var hann þegar hann kom í spjall í síðdegisútvarpið og sagði skoðun sína á myndum þeim sem þá voru í sýningu, mælskur, skýr og smellinn. Síðast lágu leiðir okkar saman í Kvikmyndaráði, þar sem Ólafur var tilnefndur formaður af þá- verandi menntamálaráðherra. Þau störf vann Ólafur af alúð og meðfæddri sanngirni sem hafði góð áhrif á aðra í ráðinu. Því mið- ur voru veikindi hans þá komin fram og þau fóru sýnilega að há honum áður en skipunartíma okkar í ráðinu lauk – þó aldrei þannig að það truflaði þetta jafn- aðargeð sem ævinlega prýddi manninn, né heldur starfið sem þurfti að sinna. Ólafur var alinn upp í kaþ- ólskri trú og var alla tíð hand- genginn söfnuðinum. Mér var sagt að nunnurnar í Stykkis- hólmi hefðu séð hann sem helgan mann, sem er í rauninni ekki skrýtið: hann umgekkst þær æv- inlega sem helgar konur. Hann gerðist söguritari kaþólskra á Ís- landi og vann þar mikið starf af nákvæmni og yfirgripsmikilli þekkingu. Sá tími sem fór í þau fræðastörf var aldrei mældur, enda var Ólafur aldrei háður tím- anum. Það sem hann sinnti hverju sinni átti hug hans allan. Svona var hann strax á unglings- árunum, og þá gafst til dæmis ekki alltaf tími til að fara í skól- ann: Óli Torfa hafði um annað að hugsa. Þó er ótalið það sem er mest um vert, en það er lunderni þessa hægláta manns, hlýja og hæverska. Í návist hans vildi maður ekki vera að blaðra neitt, maður hafði á tilfinningunni að hann hlyti að vita allt um við- komandi málefni betur en maður sjálfur, þótt hann hefði ekki á því orð. Mér er næst að halda að nunn- urnar í Stykkishólmi hafi haft rétt fyrir sér. Ágúst Guðmundsson. Ólafur H. Torfason eða Óli Torfa sem við kölluðum hann daglega er einn þeirra sem mað- ur er innilega þakklátur fyrir að hafa kynnst og átt samleið með. Það var mikill fengur að fá þau Óla og Signýju til kennslu- starfa við Grunnskólann í Stykk- ishólmi haustið 1975. Við Ingi- björg vorum þá við búskap í Bjarnarhöfn og börnin sóttu skóla í Stykkishólm. Fljótlega tókst náin og góð vinátta milli fjölskyldnanna. Og næstu árin voru þau Óli og fjölskylda eins og hluti af okkar fjölskyldu í Bjarn- arhöfn. Óli var einstakt ljúfmenni, náttúrubarn með glöggt auga listamannsins, ljósmyndarans, sögumannsins, já mannvinarins. Hann færði okkur nýjar víddir í að sjá náttúruna og njóta fjöl- þættra mynda hennar. Óli var með okkur í smalamennsku, eyjaferðum, sauðburði o.s.frv., og varla var sú fjölskyldusam- koma í Bjarnarhöfn að þau Óli og fjölskylda væru ekki mætt sem ein af okkur. Þá gjarnan var myndavélin á lofti. Börnin dáðu Óla sem kennara og fræðara. Hann var eins og hluti af hópnum, spurði sömu spurning- anna og börnin vildu fá svör við. Það voru einmitt sérkenni Ólafs og gerði hann að einum vinsælasta útvarpsmanni, þátta- stjórnanda og fjölmiðlamanni um árabil. Ólafur hafði svo einstak- lega góða návist, kankvísa bros- ið, leiftrandi góðleg augun og yf- irveguð framkoma gæddi umhverfi hans hlýju en jafnframt þrungið eftirvæntingu. Málverk Óla frá tímunum fyr- ir vestan prýða veggi heimilis okkar. Sumarið 1982 koma þau Óli og fjölskylda við hjá okkur á Hólum í Hjaltadal, Óli var kaþólskur og við sammála um að hver blettur á Hólastað væri heilagur. Signý var þá að sækja um leik- hússtjórastöðu á Akureyri og þau spennt hvort staðan félli henni skaut. Í anddyri Hóladómkirkju er áheitabaukur. „Nú heitum við á Jón Arason biskup að þú fáir stöðuna, Signý.“ Og það gekk eftir og þau Óli fluttust til Akureyrar. Minnt- umst við oft á þetta síðar meir. Jón Arason bregst ekki sínum. Og vináttan og samstarfið dafnaði áfram eftir að Óli og fjöl- skylda fluttu til Akureyrar og við á Hólum. Óli var mikill vinur Hóla í Hjaltadal og þau ár sem hann vann hjá Ríkisútvarpinu á Akureyri og hjá Heima er best voru þau ófá myndaskotin, við- tölin og fréttirnar sem hann miðl- aði landsmönnum um það sem var að gerast á Hólum. Sama var einnig í ritstjóratíð hans á Þjóð- viljanum og sem forstöðumaður Upplýsingaþjónustu landbúnað- arins. Óli vann fyrsta kynningar- myndbandið um Hólaskóla og Hólastað sem sýnt var í sjónvarpi og í skólum landsins til að trekkja að nemendur heim að Hólum. Náttúran í allri sinni fjöl- breyttu dýrð, sagan og aldalöng menning þjóðarinnar léku grunnstefið í öllu því sem Ólafur tók sér fyrir hendur. Færni hans sem blaðamanns, þátta- stjórnanda, fræðimanns, ljós- myndara, myndlistarmanns og rithöfundar lék honum á fingri. Við fjölskyldan öll minnumst Ólafs með djúpu þakklæti og virðingu og þökkum einlæg og góð kynni í gegnum árin. Guð gefi landi voru marga slíka. Blessuð veri minning góðs vin- ar, Ólafs H. Torfasonar. Fjölskyldu Ólafs sendum við einlægar samúðarkveðjur. Ingibjörg Kolka og Jón Bjarnason. Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfarar- og lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánar- bússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Sigrún Óskarsdóttir, guðfræðingur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.