Morgunblaðið - 22.07.2017, Qupperneq 16
STANGVEIÐI
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Feikileg veiði hefur verið í Miðfjarð-
ará upp á síðkastið. Þegar veiðitölur
voru uppfærðar sl. miðvikudag voru
1.202 laxar færðir til bókar. Mið-
vikudaginn 12. júlí síðastliðinn stóð
fjöldi veiddra laxa í Miðfjarðará í
749. Aukningin er því 453 laxar milli
12. og 19. júlí. Ævintýraleg veiði
varð einn daginn í Miðfjarðará.
Þann dag veiddust 99 laxar, en veitt
er á tíu stangir í ánni.
Rafn Valur Alfreðsson, leigutaki
Miðfjarðarár, segir að miklar laxa-
göngur hafa verið að koma í ána og
aðstæður á staðnum hafi verið ágæt-
ar. Aðspurður hvernig hann sjái
framhald næstu vikna, segist Rafn
vera bjartsýnn. „Það er fullt af fiski
og fólki, þannig að ef það verður
vatn og veður þá erum við í góðum
málum,“ segir Rafn Valur.
Lax er dreifður um alla Norðurá,
segir Einar Sigfússon, leigutaki ár-
innar. „Búið er að rigna af og til í
sumar og það hefur gert það að
verkum að vatnsyfirborð hefur að-
eins hækkað. Þannig að það er fisk-
ur um alla á, sem er mjög ánægju-
legt,“ segir Einar. Hann segist
vonast til þess að fá miklar lax-
agöngur með næsta stóra straumi.
Þá er fiskur einnig vel dreifður um
alla Haffjarðará, að sögn Einars.
Allt á góðri leið í Ytri-Rangá
Jóhannes Hinriksson, staðarhald-
ari við Ytri-Rangá, segir að um 50
laxar veiðist á dag og fer veiði vax-
andi með hverjum deginum. Að hans
sögn komst veiði í ánni yfir þúsund
laxa markið í gær, föstudag. „Ég
myndi segja að það væri allt í mjög
góðum gír,“ segir Jóhannes um gang
mála og segir árið í ár vera nokkuð
hefðbundið. Árið í fyrra, að hans
sögn, var algjört einsdæmi í sögu
Rangár um það gríðarlega magn
laxa, sem var í ánni í júní og júlí. Þá
segir Jóhannes að staðan sé þannig
að nánast sé uppselt fyrir næsta ár.
Veiðivatn
Stanga-
fjöldi Veiði
13. júlí
2016
15. júlí
2015
Þverá og Kjarrá 14 1.153 735
Miðfjarðará 10 1.459 1.221
Norðurá 15 880 1.530
Ytri-Rangá&Hólsá,vesturbakki 18 2.549 959
Blanda 14 1.492 1.638
Langá 10 623 867
Urriðafoss í Þjórsá 2 * *
Haffjarðará 6 704 651
Grímsá og Tunguá 8 251 362
Elliðaárnar 6 394 351
Laxá á Ásum 4 225 367
Laxá í Kjós 8 227 362
Laxá í Aðaldal 18 517 359
Víðidalsá 8 425 335
Selá í Vopnafirði 6 250 204
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is * Tölur liggja ekki fyrir
Staðan 19. júlí 2017
0 250 500 750 1.000 1.250
1.238
1.202
966
902
745
731
583
547
503
475
375
344
317
315
267
Feikileg aukning á
laxveiði í Miðfirði
Fiskur er dreifður um alla Norðurá
Ljósmynd/Júlíus Þór Jónsson
Veiði Agnes Viggósdóttir með 80
sentímetra hrygnu í Svalbarðsá.
Sr. Páll Ágúst Ólafsson varð
hlutskarpastur í kosningu um
embætti sóknarprests í Staða-
staðarprestakalli í Vestur-
landsprófastsdæmi í nóvember
árið 2013. Upp komst um myglu
í prestsbústaðnum að Staða-
stað við lok árs 2015 og flutti
Páll úr húsinu. Helgi Helgason,
framkvæmdastjóri Heilbrigð-
iseftirlits Vesturlands, staðfesti
í samtali við mbl.is árið 2015 að
húsið hefði verið metið óíbúð-
arhæft. Verkfræðistofan Efla
gerði aðra rannsókn á húsnæð-
inu og innanstokksmunum 6.
júlí 2017 en beðið er eftir að
niðurstöður rannsóknarinnar
verði birtar.
Húsnæðið
óíbúðarhæft
PRESTSBÚSTAÐURINN
SVIÐSLJÓS
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Séra Páll Ágúst Ólafsson, fyrrver-
andi sóknarprestur á Staðastað,
hefur ekki afhent kirkjuráði
prestsbústaðinn á Staðastað en
deilur eru milli Páls og kirkjuráðs
um hvenær honum sé skylt að af-
henda bústaðinn.
Páll var fluttur úr starfi sókn-
arprests í Staðastaðarprestakalli
og í starf héraðsprests í
Vesturlandsprófastsdæmi 1. júlí sl.
og leysir séra Hjálmar Jónsson af í
Staðastaðarsókn þar til búið er að
kjósa nýjan sóknarprest.
Að sögn Biskupsstofu var Páli
gefinn frestur til 12. júlí til að fjar-
lægja lausamuni úr prestsbústaðn-
um og skila húsinu. Með svarbréfi
3. júlí neitaði Páll að afhenda lykla
að íbúðarhúsinu og lýsti því yfir að
ábúðarlög ættu við og hann gæti
setið staðinn fram að fardögum á
vori 2018. Kirkjuráð hafnar þeirri
lögskýringu en Páll hefur ekki búið
í prestsbústaðnum síðan í október
2015 að hvatningu heilbrigðiseftir-
litsins eftir að upp komst um raka í
veggjum hússins. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Biskupstofu hefur
kirkjan greitt rekstrarkostnað
hússins og ekki innheimt leigu af
Páli síðan í lok árs 2016.
Útiloka ekki aðgerðir
„Dagsetningin sem við gáfum til
þess að fráfarandi sóknarprestur
skilaði húsnæðinu til okkar er lið-
inn. Það stendur til að inna eftir því
núna hvernig á því standi að hann
skilaði ekki af sér. Við þurfum tíma
til að undirbúa húsið fyrir næsta
sóknarprest,“ segir Oddur Einars-
son, framkvæmdastjóri kirkjuráðs.
Aðspurður hvort kirkjuráð muni
setja af stað ferli þar sem húsið
verður losað án samþykkis Páls
segir hann geta komið til þess. „Við
hljótum að gera það, það er úti-
lokað annað. Kirkjumálasjóður á
húsið. Við þurfum að fá það form-
lega til okkar. Auðvitað viljum við
gera það með góðu en gerist það
ekki með góðu eigum við enga aðra
kosti en að fara í þær aðgerðir sem
þarf til þess að fá húsið til okkar,
hverjar sem þær eru,“ segir Oddur
og bætir við að þær aðgerðir gætu
orðið tímafrekar. „Í versta falli
myndi það þýða útburð og innsetn-
ingu okkar en það tekur óratíma í
dómskerfinu. Ef við neyddumst til
að fara í þá aðgerð er útséð um að
séra Hjálmar næði að flytja inn.“
Séra Hjálmar hefur óskað eftir því
að vera í húsinu á meðan hann
gegnir stöðu sóknarprests Staða-
staðar.
Að ósk Páls var gerð önnur út-
tekt á myglu í bústaðnum af Verk-
fræðistofunni Eflu 6. júlí sl. og í
samtali við Morgunblaðið segist
Páll ekki vilja tjá sig um málið fyrr
en niðurstöður úr myglurannsókn-
um og úttektarskýrslu verkfræði-
stofunnar séu ljósar. Hvað varðar
afhendingu á prestsbústaðnum
segist hann vænta þess að lögum
og starfsreglum sem gilda um að-
stæður sem þessar verði fylgt.
Óvíst hvort ábúðarlög eiga við
Í svarbréfi Páls til kirkjuráðs
dags. 3. júlí segir hann ábúðarlög
eiga við í málinu og áskilur sér rétt
til að sitja í bústaðnum fram að far-
dögum á vori 2018, sem fyrr segir.
Guðmundur Þór Guðmundsson,
sviðsstjóri lögfræðisviðs Biskups-
stofu, hafnar þeirri lögskýringu og
telur að ábúðarlögin eigi ekki við í
þessu tilfelli.
„Mitt mat og túlkun á starfs-
reglum kirkjuþings sem fjalla um
prestssetrin, um þau gilda sérstak-
ar reglur og ábúðarlögin gilda eins
og við getur átt eins og segir í
regluverkinu. Við teljum að það sé
augljóst mál að fardagareglurnar
eigi ekki við um presta sem fá hús-
næði í gegnum embætti sín,“ segir
Guðmundur.
Kirkjuráð ekki fengið
bústaðinn afhentan
Vildu fá prestsbústaðinn á Staðastað afhentan 12. júlí
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Staðastaður Prestsbústaður sóknarprestsins á Staðastað er talinn með fal-
legri eignum á svæðinu. Enginn býr í húsnæðinu eins og er.
Guðmundur Þór
Guðmundsson
Oddur
Einarsson
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Rafstöðvar í ferðalagið
EUROPOWER EPSi2000
1.7 kVA, - Honda mótor - Inverter
12 v / 220 v - 68 dB(A)@7m - 22 kg
Kr.: 180.000 m/vsk
Handhægar, léttar og liprar
EUROPOWER EPSi1000
1.0 kVA – Honda mótor
12 v / 220 v - Inverter
64 dB(A)7m – 14 kg
HONDA EU20i
1.6 kVA – Honda mótor
12 v / 220 v - Inverter
64 dB(A)@7M – 21 kg
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Góð makrílveiði
hefur verið á
miðunum suð-
austur af land-
inu. Víkingur
AK var vænt-
anlegur til
Vopnafjarðar
seint í gærkvöldi
með rétt tæp-
lega 600 tonn af
makríl, segir á vef HB Granda.
Skip frá Vestmannaeyjum og
tveir togarar hafa m.a. verið að
makrílveiðum í Grindavíkurdjúpi.
„Við vorum að veiðum á Papa-
grunni, í Lónsdjúpi og Beru-
fjarðarál og fengum strax 170
tonn í fyrsta kasti,“ segir Hjalti
Einarsson, skipstjóri á Víkingi, á
vef HB Granda. „Síðan tregaðist
veiðin og hlutfall síldar jókst. Það
er búin að vera kaldafýla á mið-
unum marga undanfarna daga og
það hefur torveldað okkur leitina.
Í [gær]morgun fengum við hins
vegar 100 tonn af hreinum mak-
ríl.“
Góð makrílveiði suð-
austur af landinu
Víkingur AK.