Morgunblaðið - 22.07.2017, Síða 24

Morgunblaðið - 22.07.2017, Síða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 Í Morgunblaðinu 3. júlí sl er sagt frá því að BHM-félögin „ætli að semja hvert fyrir sig“ og er á greininni að skilja að ýmsir hugsi sér nú gott til glóðar- innar í komandi kjara- samningum einkum í kjölfar stórhækkunar launa hæst launuðu embættismanna og með hana sem aðal- hvatann. Í frásögninni segir m.a. „… má fastlega gera ráð fyrir að hitni í kolunum fljótlega …“ og „… ýta nýir úrskurðir kjararáðs undir stormviðri á vinnumarkaði á komandi vetri“. „Forystumenn … segja forsendur samninga brostnar eftir þetta, úrskurðir kjararáðs hafi „hvellsprengt“ launa- rammann og hleypt af stað nýjasta höfrungahlaupinu“ „Meginkrafa BHM-félaganna er að menntun verði metin til launa“ Þessi gamli frasi var endurtekinn í nefndri blaðgrein og maður spyr sig um lógíkina? Venjulega eða svo ætti að vera þá borga hin ýmsu störf vinnulaun samkvæmt þeim verð- mætum sem starfið skapar. Menn fara í nám og velja sér sitt svið að eigin vilja og á eigin ábyrgð. Fólk er metið þegar það er ráðið í vinnu á ýmsum forsendum þ.m.t. kunnáttu, reynslu, almennum hæfileikum og ýmsum persónulegum þáttum. Það þarf alls ekki að vera að fólk sækist eftir að ráða sig eða fái vinnu við sérfag það sem að það lærði til í skóla. Pétur heitinn Blöndal alþing- ismaður gerði grín að því að vera oft kallaður stærðfræðingur þótt hann hefði lært slíkt á löngu liðnum tíma því hann væri stjórnmála- og alþing- ismaður. Pétur þáði auðvitað kaup þingmanns en ekki ein- hverra stærðfræðinga, sem að eru sjálfsagt misjafnlega launaðir eftir við hvað þeir starfa. Ég þekki marg- an manninn sem vinn- ur við allt önnur störf en menntun hans stóð til, þ.m.t. einn með meistaragráðu. Verður ekki að vísa þessum áróðursfrasa á bug sem dellu eða hvernig í ósköpunum á að eyrna- merkja fólki vinnulaun fyrirfram eingöngu á grundvelli menntunar? Margt umhugusnarvert Embættismenn eru hátt launaðir margir hverjir en bera samt litla sem enga ábyrgð á gjörðum sínum, sem marka má ef ég veit rétt m.a. af því að stjórnsýslulögin eru við- urlagalaus, þ.e. að þrátt fyrir að ein- hver þeirra fari rangt að þá ber hann enga persónulega refsiábyrgð. Þetta veitir lítið aðhald og er í and- stöðu við það sem almenningur verður eðlilega að standa fyrir. Sög- ur fara af margri misjafnri reynslu fólks af samskiptum sínum við hið opinbera og almennt talað finnst mörgum embættismenn síður vera þeir almenningsþjónar (ensk: public servants) sem þeir ættu auðvitað að vera, en vera að ýmsu leyti orðnir að einhvers konar ósnertanlegu ofur yfirvaldi eða elítu sem almenningur á að þjóna. Er ekki hlutunum þann- ig snúið á haus? Er hætt að líta svo á að valdið komi frá fólkinu og að stjórnmála- og embættismenn séu í vinnu hjá því en ekki öfugt? Viljum við að almenningur sé settur skör- inni lægra og eigi erfitt með að verj- ast ofurvaldinu þegar að svo ber undir, t.d. vegna misjafnra laga og reglugerða sem sömu aðilar smíð- uðu sem og flækjustiga og seina- gangs kerfisins og svo óviðráðan- legs kostnaðar? Er skynsamlegt að ofurlauna opinbera starfsmenn? Flestum finnst rétt að þurfa ekki að borga hærri skatta en nauðsyn- legt er í sameiginlegan rekstur og vilja vera frjálsir að því að ákveða sjálfir í hvað fé þeirra fer. Sumir stjórnmálamenn vilja hins vegar stöðugt þenja báknið út bæði í nafni hugmyndafræði og sem popúlískt svar við endalausum kröfum, oft þeirra sjálfra, á meira skattfé al- mennings og þá undir þeirra stjórn á meðan aðrir veigra sér við að taka af festu á gæluverkefnum og ónauð- synlegum útgjöldum og rekstri, sem er vel hægt að vera án. Gagnrýnin og stefnan eru þannig að mestu eða eingöngu í eina átt. Í þessu sam- bandi má minnast þess að alþingis- mennirnir ágætu þau Guðlaugur Þór Þórðarson og Vigdís Hauks- dóttir komust hvorki lönd né strönd með sparnaðarnefndina sálugu því engu mátti breyta sama hve vitlaus útgjöldin voru: kerfið varði aðkomu sína að kjötkötlunum og stundum eiginlegri sjálftöku sinni með öllum ráðum. Það er bæði gömul saga og ný að spilling þrífst vel í skjóli valds. Það þarf vart að taka það fram að auðvitað þarf hið opinbera á hæfu starfsliði að halda, enda margur starfinn þar mikilvægur og það eru embættismenn sem eru hinir raun- verulegu daglegu stjórnendur landsins, en það er á hinn bóginn áleitin spurning hversu hollt og skynsamlegt það er að hafa jafnt stórt, fyrirferðarmikið og kostnað- arsamt opinbert bákn og hér er og þá ekki síður hvers vegna fólkið eigi að standa undir því að almennings- þjónar þess hafi betri kjör en aðrir í landinu njóta eins og sum krafan stendur til eða kjararáð hefur úr- skurðað? Hefur enginn eftirlit með fyrirbærinu? Það verður að upplýsa eftir hvaða stefnu og reglum Kjararáð vinnur, hvort fyrirbærið sé eftirlitslaust og hvers vegna úrskurðir þess eigi að vera að mestu óafturkræfir? Kjar- aráð þykir margsinnis hafa farið fram úr sér, hugsanlega vegna þess að þeir sem ráðið skipa hafa eigin hagsmuna að gæta? Margir eru því marki brenndir að þeir verða fyrst óánægðir með hlutskipti sitt ef að þeir telja að einhver annar fái meira en þeir og búa sér þá til einhver við- miðunarfræði eftir hentugleikum. Það blasir við að það er nauðsynlegt að endurskoða strax með festu og kjarki allt það sem kjararáði við kemur og stjórnmálamenn axli þá ábyrgð sem þeir buðu sig fram til að taka. Annars breytist ekkert og við hjökkum í sama farinu sem svo mik- il óánægja er með. Spurningin er hvort það sé ekki líka skynsamlegt eða jafnvel lífsspursmál að endur- skoða vinnulöggjöfina frá grunni og að koma því m.a. þannig fyrir að all- ir kjarasamningar allra stétta verði gerðir á sama tíma? Mun stöð- ugleiki og friður nokkru sinni nást án slíks eða erum við ekki löngu bú- in að fá upp í kok af sérgreindum meintum réttlætisrökum sem og af skærum sérhagsmunaseggja? Hinir veikburða sitja alltaf eftir Það er eins og enginn hafi raun- verulegan vilja til að þess að útrýma fátækt og forgangsraða þannig að þeir sem minnst hafa fari a.m.k. einu sinni alfarið fram fyrir í röðinni í stað þess að launahækkanir gangi upp allan skalann og til þeirra efstu eins og venjulega. Er tillitssemin við bágstadda einungis í orði kveðnu nema þá helst að viðkomandi séu út- lent landleitarfólk, en þá vantar aldrei neitt að því er best verður séð? Með því að leggja óraunhæfa nýja ofurklafa á hagkerfið hærri en framleiðniaukningin er og ofan á þær rúmu kauphækkanir á meðalhá og hærri laun sem verið hafa veittar á undanförnum misserum fer ekki öðruvísi en aukin dýrtíð, sem leggst auðvitað þyngst á bágstadda, en vonandi bera ríkisstjórn og Alþingi gæfu til þess að leiðrétta úrskurði kjararáðs og draga með því úr hvat- anum til „stormviðris á vinnumark- aði“. Innlendir sem erlendir ráð- gjafar hafa einmitt lagt ríka áherslu á meiri hófstillingu en brandarnir gefa nú til kynna að sé framundan og benda einnig á að vinnulaun hér séu í mörgum tilfellum orðin hærri en í nágrannlöndunum, sem aug- ljóslega hefur mikil áhrif á sam- keppnishæfni þjóðarinnar. Stenst þetta til lengdar eða vilja menn vís- vitandi hætta á aðra fjármálaupp- lausn, að fleiri fyrirtæki flytjist úr landinu, aukna verðbólgu, ennþá hærri vexti og aðra óáran? Á að knýja vilja sinn fram og láta afleið- ingarnar sem og fátæktina lönd og leið? Verkalýðsleiðtogarnir eiga væntanlega vandasamt verk fyrir höndum vegna ólíkra en stórra kröfuóskalista þeirra sem hæst láta, en ábyrgð þeirra er mikil og þeir eru oft síst barnanna bestir. Þá þvingar hið opinbera svo alltaf sitt fram þegar upp er staðið og hagar sér oft ósæmilega eins og mýmörg dæmin sanna. Endum við ekki bara með flotta príslista sem enginn vill kaupa af og háa kauptaxta sem eng- inn hefur ráð á að borga og svo hina þurfandi auðvitað í sínu gamla horni. Ætla Íslendingar aldrei að læra? Ætla Íslendingar að skjóta sig í fótinn eina ferðina enn? Eftir Kjartan Örn Kjartansson »Endum við ekki bara með flotta príslista sem enginn vill kaupa af og háa kauptaxta sem enginn hefur ráð á að borga? Kjartan Örn Kjartansson Höfundur er fyrrv. forstjóri. Það er ekki af öfund sem ég sest niður og set orð á blað, mér er einfaldlega ofboðið. Á sama tíma og kjararáð hrúgar afturvirkum launahækkunum á embættismenn og for- stjóra ríkisstofnana og skilanefndir klessa fá- ránlegum bónusgreiðslum á stjórnendur eign- arhaldsfélags LBI, já og sumir fá tugi milljóna bónusa bara fyrir að hafa mætt í vinnu, lepur hinn al- menni örorkulífeyrisþegi dauðann úr skel. Hvar er sómatilfinning þeirra sem þiggja endalausar við- bætur á laun sín sem voru þó fei- kihá fyrir og þeirra sem útdeila þeim? Ég gef lítið fyrir ábyrgða- stöðu þessa fólks, við vitum í dag að umtöluð ábyrgð er lítil eða engin þegar á hólminn er komið. Það er með ólíkindum hvað kjararáð er taktlaust, eða er þetta í raun stjórn- laust sjálftaka í skjóli þeirra sem peningavöldin hafa? Við erum smáþjóð 340.000 manns, er okkur algjörlega fyrir- munað að sýna sanngirni, að sam- félagi okkar sé ekki stýrt þannig að þeir ríku verða ríkari og þeir fátæk- ari verði fátækari. Ég var þeirrar skoðunar einu sinni að við ættum besta heilbrigðiskerfi í heimi, ég var veruleikafirrt og mötuð á fag- urgala stjórnvalda, því heilbrigð- iskerfi okkar er gloppótt og gluf- urnar stórar. Þegar fólk virkilega lendir í heilsufarsáföllum sem snúa lífi þess al- gjörlega á hvolf, þá er tryggingin lítil. Örorkustimpillinn er dýru verði keyptur, því örorkubætur, sem stjórnvöld skammta fólki, eru svo smán- arlega lágar að ekki er í raun hægt að lifa af þeim. Að hafa húsa- skjól er ekki sjálfgefið og því miður hafa margar fjölskyldur og ein- staklingar í okkar samfélagi ekki þak yfir höfuðið og biðlistar öryrkja eftir húsnæði lengjast stöðugt. Kannski að tími sé til kominn að sett verði á laggirnar kjararáð sem úrskurði um og ákveði launakjör þeirra sem minnst hafa í þessu samfélagi, öryrkja og ellilífeyr- isþega, ég get ekki séð að stjórn- völdum sé treystandi til þeirra ákvarðana. Íslenskur ömurleiki er öryrkjans veruleiki Eftir Þuríði Hörpu Sigurðardóttur »Kannski að tími sé til kominn að sett verði á laggirnar kjararáð sem úrskurði um og ákveði launakjör þeirra sem minnst hafa í þessu samfélagi. Þuríður Harpa Sigurðardóttir Höfundur er varaformaður Sjálfsbjargar lsh. Þegar í ljós kom að Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Björt framtíð höfðu náð saman um stjórn- arsáttmála fögnuðu margir hægrimenn og jafnvel frjáls- hyggjumenn. Nú væri loksins komin stjórn sem tækist á við kerf- ið, einkavæddi í rík- isrekstrinum, gæfi einkaaðilum auk- ið svigrúm, drægi saman reglugerðabókasafnið og eftirlits- báknið, lækkaði skatta, drægi rík- isvaldið út úr framleiðslu landbún- aðarvarnings, borgaði upp skuldir hins opinbera, setti hömlur á pen- ingaframleiðslu bankanna og reisti varnir gegn því að komandi vinstri- stjórn gæti skuldsett allt upp í rjáf- ur aftur. Í stuttu máli má segja að mjög lítið af þessu hafi gengið eftir og að biðin eftir hægristjórninni standi enn yfir. Blasir hættan af risavöxnu ríkisvaldi ekki við? Framundan er stór fjármálakreppa á heimsvísu þar sem ekki bara bankar fara á hausinn heldur heilu ríkissjóðirnir. Það er ekki hægt að skatt- leggja meira eða prenta peninga hraðar, skuldirnar eru gríð- arlegar og teikn á lofti um að þær fari smátt og smátt að lenda á gjalddaga sem enginn ræður við. Íslendingar geta mögulega komið sér í skjól en þeir þurfa að bregðast við núna. Ríkið má helst ekki skulda neitt að ráði þegar kreppan skellur á, og atvinnulífið og einstaklingar þurfa að fá að halda sem mestu eftir af tekjum sínum til að setja í vara- sjóði eða eignir sem fara ekkert, sama hvað gengur á í fjármálaheim- inum, og auðvitað greiða niður skuldir. Ríkið þarf að hætta að gefa út gjaldmiðil svo fólk geti dreift áhættunni af pappírspeningum sín- um sem mest. Fólk á líka að fá að taka út eignir sínar í lífeyrissjóð- unum í auknum mæli og þar með hlutabréfum í fyrirtækjum í áhætturekstri sem munu mörg fara illa út úr stórum áföllum í fjár- málaheiminum. Svo þarf líka að fækka reglum og leyfisskyldum til að auka aðlögunarhæfni hagkerf- isins í breyttu árferði og breyttum ytri aðstæðum. Einnig er mikilvægt að minnka ríkisreksturinn mikið. Lítill rík- isrekstur í hallarekstri og skuld- setningu er ódýrari fyrir skattgreið- endur en stór ríkisrekstur í hallarekstri og skuldsetningu. Þeg- ar næsta fjármálakreppa ríður yfir er hætt við að Íslendingar kjósi aft- ur yfir sig hreina vinstristjórn og hún má ekki geta gengið að útþönd- um ríkisrekstri til að sökkva í skuldir eins og gerðist seinast. Nei, ríkið þarf að koma sér úr rekstri – þar á meðal rekstri spítala og skóla – og ýmist einkavæða alveg með til- heyrandi skattalækkunum eða bjóða út þjónustuna og leyfa einka- aðilum að sjá um reksturinn. Það þarf að vera sem minnst eftir sem stjórnmálamenn geta veðsett til að fjármagna hallarekstur. Ekkert af þessu er að fara gerast með hina svokölluðu hægristjórn við völd. Sú hægristjórn er á fullu að sleikja rjómann af núverandi uppsveiflu og eyða jafnóðum í fjár- mögnun á óbreyttu fyrirkomulagi ríkisrekstursins, alveg eins og gerð- ist fyrir kreppuna 2008. Og við völd- um tekur svo hrein vinstristjórn, safnar hundruðum milljarða í skuld- ir og skilur eftir sig brunarústir. Ekki er hægt að treysta á að Eyja- fjallajökull gjósi aftur til að blása lífi í hagkerfið og hvað er þá til ráða til að rísa úr rústunum? Hægristjórnin var til í um eitt augnablik en hefur síðan aldrei staðið undir nafni. Hún er hægri- stjórnin sem aldrei varð. Hægristjórnin sem aldrei varð Eftir Geir Ágústsson » Biðin eftir hægri- stjórninni stendur enn yfir. Sú sem nú sit- ur stendur ekki undir nafni. Geir Ágústsson Höfundur er verkfræðingur. geirag@gmail.com Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.