Morgunblaðið - 22.07.2017, Qupperneq 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þær Sólveig Matthildur Krist-jánsdóttir og Kinnat SóleyLydon standa að Myrkfælni
en þær hafa verið giska öflugar
hvað íslenska neðanjarðartónlist
varðar undanfarin ár. Sólveig er
meðlimur í Kælunni miklu auk
þess að gera sólótónlist og fyrir
tveimur árum stofnaði hún útgáfu-
og viðburðafyrirtækið Hið myrka
man sem hefur verið aðsópsmikið í
tónleikahaldi, útgáfu o.fl. í Reykja-
vík. Kinnat er hönnuður sem hefur
hannað plötuumslög, dreifimiða og
veggspjöld fyrir íslenskar sem er-
lendar sveitir og starfar í dag fyrir
hönnunarstofuna Studio Manuel
Raeder í Berlín.
Hvað hið nýstofnaða verkefni
Myrkfælni varðar er megingáttin
þar samnefnt tímarit, sem ætlað er
að kynna íslenska neðanjarðar-
tónlist fyrir áhugasömum og þá
ekki síst fólki sem er erlendis.
Tímaritið kemur út 1. ágúst næst-
komandi og er farið í prentsmiðj-
una. Að sögn þeirra Sólveigar og
Kinnat hafa þær orðið þess
áskynja að athyglin utanfrá beinist
einkum að íslenskum tónlist-
armönnum sem eru komnir nokk-
uð vel á veg með sinn feril og þau
bönd og listamenn sem eru kirfi-
lega neðanjarðar, en þó með tals-
verð umsvif, eiga það til að falla á
milli þilja. Þessu vilja þær breyta
og koma á nokkurs konar teng-
ingu á milli íslensku neðanjarð-
arsenunnar og
þeirra sem í gangi
eru í öðrum löndum.
Blaðið er á ensku og
inniheldur greinar
um útgáfufyrirtæki,
hljómsveitir og tón-
listarhátíðir auk
gagnrýni. Það kemur
út í 1.000 eintökum
og fer fjöldi eintaka
til ýmissa dreifiaðila
erlendis, í yfir 50
borgum. Þær stöllur
leggja áherslu á að
þó að netið sé yfir og
allt um kring í dag
hafi prentmiðlar
ennþá mikið gildi,
sérstaklega í neðanjarðarsen-
unum, og verður áhersla lögð á að
gefa tímaritið út á þann hátt þó að
netið verði og nýtt upp að vissu
marki.
Samfara tímaritinu er safn-
plata eður safnstreymi komið út á
Bandcamp-síðu Myrkfælni. Platan
inniheldur rúmlega tuttugu lög
með hinum og þessum listamönn-
um sem koma og við sögu í tímarit-
inu góða. Suma kannast ég við,
bæði af safnkassettum sem hið
ágæta fyrirtæki Ladyboy Records
hefur gefið út og svo af svipuðum
Nóg í gangi
neðanjarðar
Ljósmynd/Myrkfælni
Öflugar Þær Kinnat Sóley og Sólveig Matthildur standa að Myrkfælni.
útgáfum sem Hið
myrka man hefur
staðið að (Myrkra-
makt I og II). Á
Myrkfælni kennir
ýmissa grasa, tals-
vert er um níunda
áratugar gotarokk
og -raf, eða til-
brigði við slíkt öllu
heldur, en það er
tímabil sem Kælan
mikla, Hið myrka
man og Myrkfælni
sækja í, bæði tón-
listarlega og fag-
urfræðilega. Kæl-
an mikla, Kvöl,
Rex Pistols, Kuldaboli og Madonna
+ Child (sem gefa út plötu brátt)
sigla öll um þessi myrku djúp og
þá er gaman að heyra í Döpur
(verkefni Veganæsparsins
Krumma og Linneu) sem fara út í
netta „rafafls“-tónlist eða „power
electronics“ eins og Englar kalla
það víst. Countess Malaise og Lord
Pusswhip sjá um rappið á meðan
Dead Herring PV, ROHT og Dauð-
yflin snara upp hávaðapönki og
-rokki. Andi og AAIIEENN eru
hins vegar á raf- og teknónótum.
Og er þá ekki allt upptalið.
Persónulega er ég einkar hrif-
inn af þessu framtaki öllu. Í gras-
rótinni fá hlutirnir iðulega að gerj-
ast óáreittir og oft er útkoman
falleg og heiðarleg sköpun. Að
styðja við slíkt er lífsnauðsynlegt,
hreinlega, og ég óska því Sólveigu
og Kinnat til hamingju með her-
legheitin.
»Hvað hið nýstofn-aða verkefni Myrk-
fælni varðar er megin-
gáttin þar samnefnt
tímarit, sem ætlað er að
kynna íslenska neðan-
jarðartónlist fyrir
áhugasömum og þá ekki
síst fólki sem er erlendis.
Myrkfælni er nýtt sam-
starfsverkefni tveggja
stúlkna sem ætlað er að
kynna íslenska neðan-
jarðartónlist, heima og
ekki síst erlendis, með
útgáfu á tímariti, tónlist
og fleiru.
Tímaritið Myrkfælni.
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hef-
ur gefið út yfirlýsingu varðandi
fjarveru sína á samfélagsmiðlinum
Twitter. Getgátur voru uppi um
það að tónlistarmaðurinn hefði lok-
að Twitter-aðgangi sínum vegna
neikvæðra athugasemda í hans
garð eftir gestahlutverk hans í nýj-
asta Game of Thrones-þættinum.
Yfirlýsinguna birti hann á Insta-
gram-síðu sinni og segir hann þar
að hann hafi lengi ætlað að loka að-
gangi sínum og það hafi ekkert haft
að gera með neikvæð viðbrögð við
hlutverki hans í Game of Thrones.
Hann hafi verið í þáttunum og velt-
ir fyrir sér hvers vegna hann ætti
að taka nærri sér það sem fólk
hefði um það að segja, það hefði
augljóslega verið frábær upplifun.
Hann segir tímasetninguna hafa
verið einskæra tilviljun en að fólk
megi trúa því sem það vill.
Með tilkynningunni fylgir mynd
sem er málinu alls ótengd, af hon-
um og umboðsmanni hans þar sem
þeir haldast í hendur og „ríða ham-
ingjusamir inn í sólsetrið“, að sögn
Sheeran.
Segir Krúnuleika
ekki hafa hrakið
sig af Twitter
Misskilningur Fréttir af því að Ed
Sheeran hefði lokað Twitter-reikningi sín-
um út af leiklistargagnrýni voru rangar.
AFP
Lifandi tónlist mbl.is/tonleikar
SÝND KL. 6, 9
SÝND KL. 2, 4, 7, 10
SÝND KL. 10.20 SÝND KL. 8
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
ÍSL. 2D KL. 2, 4, 6
ENSK. 2D KL. 2