Víkurfréttir - 06.03.2003, Page 9
VÍKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 I 9
Nú í aðdraganda alþingiskosninga hefur ritstjórn Víkurfrétta
ákveðið að setja reglur varðandi aðsendar greinar sem óskað er
birtingar í Víkurfréttum. Reynslan sýnir að fyrir kosningar streyma
að greinar frá frambjóðendum og stuðningsmönnum
stjórnmálaflokkanna í miklu magni. Til að gera öllum jafn hátt
undir höfði hefur ritstjórnin ákveðið að birta hluta af greinum í
blaðinu ásamt mynd af greinarhöfundi, en þeir sem vilja lesa alla
greinina geta gert það á vefsíðu Víkurfrétta, www.vf.is undir
liðnum pólitík. Efstu Suðurnesjamenn á framboðslistum
stjórnmálaflokkanna fá aukið svigrúm í blaðinu og þegar nær
dregur kosningum fá þeir greinar birtar í heild sinni, þó með
ákveðnum lengdarmörkum. Víkurfréttir vilja taka það fram að
greinar sem hafa birst í öðrum fjölmiðlum verða ekki birtar í
Víkurfréttum. Aðsendar greinar óskast sendar á hilmar@vf.is.
Reglur varðandi pólitísk greinaskrif
10. tbl. 2003 - NOTA!!! 5.3.2003 18:30 Page 9