Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.03.2003, Page 13

Víkurfréttir - 06.03.2003, Page 13
VÍKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 I 13 Það eru oft furðulegarsetningar sem koma uppí samræðum manna á meðal. Um daginn heyrði ég eina sem svar við spurningu á þá leið hvort eitt- hvað sem var á döf inni væri æskilegt fyrir börn. „Það er ekki okkar að vernda börnin þín. Það er þitt mál og áhyggjuefni.“ Í þessu svari er gripið til réttlæt- ingar, fyrirbæris sem elt hefur mannkynið í aldanna rás: Einum finnst hann betur settur, ef annar er til viðmiðunar þegar samvisk- an kallar, eða notað er tækifærið til að varpa ábyrgð gjörða sinna á aðrar herðar. Við vitum öll að börnin eru dýr- mætasta eign okkar og þjóðfé- lagsins og á herðum þeirra hvílir framtíðin. Við sækjum daglega til samfélagsins umhyggju ann- arra hvort heldur er fyrir vensla- fólk okkar, okkur sjálf eða börn- in. Við gerum kröfur og við þeim er orðið t.d. að móðir okkar eða faðir sem dvelur á sjúkrahúsi fái alla þá þjónustu og velvild sem kostur er á og hvergi sé til spar- að, að kennarinn sýni barninu okkar þolinmæði og skilningur hans og menntun glæði huga þess vægi samhyggðar og góðra gilda. Ofanrituð setning er af sama meiði og „Á ég að gæta bróður míns?“ Það er vissulega foreldr- anna að ala upp og vernda börnin sín og okkar að gæta að högum meðbræðra okkar af sama mætti og við viljum að þeir geri í okkar aðstæðum. Þannig búum við til samfélag. Í viðtalsþætti var verið að ræða um að þyngja ætti dóma við ákveðnum afbrotum innan flokka refsilaganna. Ef ég skyldi umræðuna rétt var sú aðgerð, lagabreytingin, hugsuð sem skilaboð til dómara og þeir dóm- ar sem kæmu í kjölfarið ættu að vera mun þyngri, öðrum víti til varnaðar: Að viðkomandi hugs- aði sig tvisvar um áður en hann hygði á afbrot. Þessi hugmynd virtist í fyrstu sýn ákaflega rétt- mæt en við nánari skoðun kom ýmislegt í ljós. Í fyrsta lagi hef ég alltaf litið svo á að lagabálkar t.d. refsilöggjöfin innihéldi ákveðna heildarhugsun og hver hreyfing á lagagreinum, breytingar á t.d. refsihæð gætu skekkt innbyrðis vægi laganna. Þessu mætti líkja við úrverk, klukku, ef eitt tannhjól væri tekið og annað stærra eða minna sett í þess stað fengjum við ranga tímamælingu. Í öðru lagi vitum við að það er staðreynd að við byggjum ekki upp mannvirðingu, siðferði og skilning góðs og ills í einstak- lingnum með lögum einum sam- an né spornum gegn afbrotum með því að hækka refsidóma. Það gerum við með góðu upp- eldi, sæmandi umhverfi sem allir reyna að skapa, kærleika, góðri fyrirmynd og höfum það sem sannara er í skoðunum okkar. Sæmandi umhverfi má ekki inni- halda villandi umræður, ósóma á netinu, kvikmyndir og tölvuleiki yfirfulla af ofbeldi og mannfyrir- litningu. Þá er hætt við að erfið- ara gangi fyrir barnið eða ung- linginn að feta sig áfram í lífinu. Til þess að átta sig betur á þessari setningu um þyngingu dóma þarf að setja upp dæmi og besta leiðin til að fá glögga yfirsýn yfir að- stæður annarra er að setja sjálfan sig í þær aðstæður. Sem viðmið- un á frelsissviptingu skulum við hafa í huga setningu manns sem reynt hafði sitthvað í líf inu: „Frekar vildi ég vera rúmliggj- andi í heila viku en að þurfa að dúsa einn dag í fangelsi.“ Dæmið gæti verið að sporna ætti gegn búðarhnupli. Löggjafinn setti lög, breytti refsihæð úr nokkrum mánuðum í 5 ára fang- elsi, óskilorðsbundið. Sakamað- urinn sæti við hlið hinna sem hefðu framið sama afbrot, en fyr- ir lagabreytinguna. Hjá þeim væru nokkrir dagar eftir af frels- issviptingunni á meðan hann burðaðist með 5 árin á bakinu. Vissulega væri hann víti öðrum til varnaðar en hér koma fleiri sjónarmið t.d. felur ekki setning- in í sér að harðara væri dæmt en viðkomandi ætti skilið? Er brotamaðurinn þá ekki saklaus af þeim hluta sem ætlaður væri öðr- um til varnaðar? Við viljum öll réttlæti og sérstaklega okkur til handa. Þetta heitir mannlegt. Ég held samt að við gætum sæst á að: Dómar eigi að vera boðberar viskunnar, bæði í huga og hjarta, hvorki of mildir né of harðir og umfram allt kveðnir upp af rétt- sýni. Konráð K. Björgólfsson Að vera öðrum víti til varnaðar Konráð K. Björgólfsson skrifar: Nýtt á www.vf.is SPJALLÞRÆÐIR 10. tbl. 2003 3/5/03 17:09 Page 13

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.