Víkurfréttir - 06.03.2003, Qupperneq 13
VÍKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 I 13
Það eru oft furðulegarsetningar sem koma uppí samræðum manna á
meðal.
Um daginn
heyrði ég eina
sem svar við
spurningu á þá
leið hvort eitt-
hvað sem var á
döf inni væri
æskilegt fyrir
börn. „Það er
ekki okkar að vernda börnin þín.
Það er þitt mál og áhyggjuefni.“
Í þessu svari er gripið til réttlæt-
ingar, fyrirbæris sem elt hefur
mannkynið í aldanna rás: Einum
finnst hann betur settur, ef annar
er til viðmiðunar þegar samvisk-
an kallar, eða notað er tækifærið
til að varpa ábyrgð gjörða sinna á
aðrar herðar.
Við vitum öll að börnin eru dýr-
mætasta eign okkar og þjóðfé-
lagsins og á herðum þeirra hvílir
framtíðin. Við sækjum daglega
til samfélagsins umhyggju ann-
arra hvort heldur er fyrir vensla-
fólk okkar, okkur sjálf eða börn-
in. Við gerum kröfur og við þeim
er orðið t.d. að móðir okkar eða
faðir sem dvelur á sjúkrahúsi fái
alla þá þjónustu og velvild sem
kostur er á og hvergi sé til spar-
að, að kennarinn sýni barninu
okkar þolinmæði og skilningur
hans og menntun glæði huga
þess vægi samhyggðar og góðra
gilda.
Ofanrituð setning er af sama
meiði og „Á ég að gæta bróður
míns?“ Það er vissulega foreldr-
anna að ala upp og vernda börnin
sín og okkar að gæta að högum
meðbræðra okkar af sama mætti
og við viljum að þeir geri í okkar
aðstæðum. Þannig búum við til
samfélag.
Í viðtalsþætti var verið að ræða
um að þyngja ætti dóma við
ákveðnum afbrotum innan
flokka refsilaganna. Ef ég skyldi
umræðuna rétt var sú aðgerð,
lagabreytingin, hugsuð sem
skilaboð til dómara og þeir dóm-
ar sem kæmu í kjölfarið ættu að
vera mun þyngri, öðrum víti til
varnaðar: Að viðkomandi hugs-
aði sig tvisvar um áður en hann
hygði á afbrot. Þessi hugmynd
virtist í fyrstu sýn ákaflega rétt-
mæt en við nánari skoðun kom
ýmislegt í ljós.
Í fyrsta lagi hef ég alltaf litið svo
á að lagabálkar t.d. refsilöggjöfin
innihéldi ákveðna heildarhugsun
og hver hreyfing á lagagreinum,
breytingar á t.d. refsihæð gætu
skekkt innbyrðis vægi laganna.
Þessu mætti líkja við úrverk,
klukku, ef eitt tannhjól væri tekið
og annað stærra eða minna sett í
þess stað fengjum við ranga
tímamælingu.
Í öðru lagi vitum við að það er
staðreynd að við byggjum ekki
upp mannvirðingu, siðferði og
skilning góðs og ills í einstak-
lingnum með lögum einum sam-
an né spornum gegn afbrotum
með því að hækka refsidóma.
Það gerum við með góðu upp-
eldi, sæmandi umhverfi sem allir
reyna að skapa, kærleika, góðri
fyrirmynd og höfum það sem
sannara er í skoðunum okkar.
Sæmandi umhverfi má ekki inni-
halda villandi umræður, ósóma á
netinu, kvikmyndir og tölvuleiki
yfirfulla af ofbeldi og mannfyrir-
litningu. Þá er hætt við að erfið-
ara gangi fyrir barnið eða ung-
linginn að feta sig áfram í lífinu.
Til þess að átta sig betur á þessari
setningu um þyngingu dóma þarf
að setja upp dæmi og besta leiðin
til að fá glögga yfirsýn yfir að-
stæður annarra er að setja sjálfan
sig í þær aðstæður. Sem viðmið-
un á frelsissviptingu skulum við
hafa í huga setningu manns sem
reynt hafði sitthvað í líf inu:
„Frekar vildi ég vera rúmliggj-
andi í heila viku en að þurfa að
dúsa einn dag í fangelsi.“
Dæmið gæti verið að sporna ætti
gegn búðarhnupli. Löggjafinn
setti lög, breytti refsihæð úr
nokkrum mánuðum í 5 ára fang-
elsi, óskilorðsbundið. Sakamað-
urinn sæti við hlið hinna sem
hefðu framið sama afbrot, en fyr-
ir lagabreytinguna. Hjá þeim
væru nokkrir dagar eftir af frels-
issviptingunni á meðan hann
burðaðist með 5 árin á bakinu.
Vissulega væri hann víti öðrum
til varnaðar en hér koma fleiri
sjónarmið t.d. felur ekki setning-
in í sér að harðara væri dæmt en
viðkomandi ætti skilið? Er
brotamaðurinn þá ekki saklaus af
þeim hluta sem ætlaður væri öðr-
um til varnaðar? Við viljum öll
réttlæti og sérstaklega okkur til
handa. Þetta heitir mannlegt. Ég
held samt að við gætum sæst á
að: Dómar eigi að vera boðberar
viskunnar, bæði í huga og hjarta,
hvorki of mildir né of harðir og
umfram allt kveðnir upp af rétt-
sýni.
Konráð K. Björgólfsson
Að vera öðrum víti
til varnaðar
Konráð K. Björgólfsson skrifar:
Nýtt á www.vf.is
SPJALLÞRÆÐIR
10. tbl. 2003 3/5/03 17:09 Page 13