Víkurfréttir - 09.01.2003, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I 1. TÖLUBLAÐ I FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 I 19
N jarðvíkingar sigruðuKeflavík, 80:77, í 12. um-ferð Intersport-deildar-
innar í körfuknattleik í kvöld
en leikurinn fór fram á heima-
velli Keflvíkinga. Heimamenn
höfðu yfirhöndina í fyrri hálf-
leik og leiddu 48:35 en í þeim
síðari hrökk allt í baklás og
Njarðvíkingar riðu á vaðið og
sigruðu verðskuldað.
Keflavík byrjaði leikinn mun bet-
ur og náðu snemma ágætis for-
skoti sem var þó aldrei yfir 10
stig. Njarðvíkingar gáfu þó aldrei
eftir og héldu sér inni í leiknum
með skynsömum leik þar sem
Gary Hunter fór fremstur. Í lok
fyrri hálfleiks tóku Keflvíkingar
góða rispu þar sem Magnús
Gunnarsson fór hamförum, stal
hverjum boltanum á fætur öðrum
og skoraði góðar körfur. Í hálf-
leik var staðan eins og áður sagði
48:35 heimamönnum í hag og
fátt sem virtist koma í veg fyrir
sigur þeirra enda að spila mun
betur en gestirnir.
Í síðari hálfleik var hins vegar allt
annað uppi á teningnum því þá
voru það Njarðvíkingar sem réðu
ferðinni og með yfirveguðum og
skipulögðum leik náðu þeir að
klóra sig aftur inn í leikinn. Á
meðan voru heimamenn ragir við
að keyra að körfunni og svo virt-
ist sem boltinn næði ekki að fljó-
ta almennilega í sókn þeirra. Þeg-
ar lítið var eftir komust Njarðvík-
ingar yfir í fyrsta skiptið frá því á
fyrstu mínútum leiksins. Þeir
spiluðu mjög agað eftir það og
höfðu þrjú stig yfir þegar um 10
sekúndur voru eftir. Keflavík
brunaði í sókn og var það Arnar
Freyr Jónsson sem tók síðasta
skotið en það geigaði og Njarð-
víkingar fögnuðu í leikslok góð-
um sigri, 80:77.
Góður endasprettur Njarð-
víkinga tryggði sigurinn
Grindvíkingar á toppinn
Grindvíkingar sigrðu lið Vals, 92:78, eftir að hafa leitt í hálfleik, 45:38.
Það var aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi þó svo
heimamenn væru að spila langt undir getu mest allan leikinn. Páll
Axel Vilbergsson var stigahæstur með 24 stig, Darrell Lewis skoraði
22 og Guðlaugur Eyjólfsson 19. Grindvíkingar komust í toppsætið
með sigrinum ásamt KR með 20 stig.
Í LEIKSLOK
Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga var að vonum sáttur með
sigurinn. „Já það er alltaf gaman að vinna hérna í Keflavík á þessum
erfiða heimavelli en ég er þó ekkert sáttur með spilamennsku minna
manna, sérstaklega fyrri hálfleik. Eftir að við fórum að spila eins og
menn í síðari hálfleik fannst mér þetta aldrei spurning. Aðspurður
um leik þessara liða í bikarnum nk. föstudag sagði Friðrik að það
færi eins. „Þetta verður erfitt en við ætlum okkur sigur“, sagði Frið-
rik að lokum.
Sverrir Sverrisson, leikmaður Keflvíkinga var ekki sáttur í leikslok.
„Við mættum ekki nógu grimmir í seinni hálfleik og hleyptum þeim
inn í leikinn. Í lokin þorði svo enginn að taka af skarið og því fór
sem fór“. Sverrir sagði að þeir ætluðu sér að snúa dæminu við í
næsta leik þessara liða í bikarnum. „Þetta er allt annar leikur og þar
kemur ekkert annað til greina en sigur“, sagði Sverrir.
Gary Hunter var bestur hjá Njarðvík með 32 stig og 13 fráköst, Teit-
ur Örlygsson setti 15 og Sigurður Einarsson 12. Hjá Keflavík voru
Damon Johnson og Magnús Gunnarsson stigahæstir með sín 19 stig-
in hvor og Kevin Grandberg gerði 10 stig.
Njarðvíkingar eru eftir leikinn komnir upp að hlið Keflvíkinga með
16 stig í 3. - 4. sæti. Liðin mætast öðru sinni á fjórum dögum á
föstudaginn í 8-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ og Doritos og fer sá
leikur einnig fram á heimavelli Keflavíkur.
A U G L Ý S I N G A S Í M I N N E R
421 0000
Bikarslagur í
„sláturhúsinu“
Á morgun verður sannkallaður
stórleikur í 8-liða úrslitum bikar-
keppni KKÍ og Doritos þegar
Keflvíkingar taka á móti Njarð-
víkingum öðru sinni á fjórum
dögum. Keflvíkingar hafa ekki
riðið feitum hesti gegn Njarðvík-
ingum upp á síðkastið og tapað
báðum leikjunum gegn þeim í
deildinni. Heimavöllur Keflvík-
inga sem áður fyrr var kallaður
„sláturhúsið“ er sterkur en Njarð-
víkingar sýndu það sl. þriðjudag
að þar geta lið farið með sigur af
hólmi. Suðurnesjamenn ættu
ekki að láta þennan stórleik fram
hjá sér fara og spurning hvort
fólki hitar ekki upp fyrir leikinn
með því að kíkja á gamlar spólur
með baráttu þessara liða fyrir
nokkrum árum þegar bæði leik-
menn og áhorfendur tóku þátt í
þessari baráttu af líf i og sál.
Mætum á leikinn og látum í okk-
ur heyra!
Nýr hópleikur að
hefjast hjá tippurum
Nýr hópleikur 1x2 hefst í leikviku tvö og stendur yfir í 10 vikur. Opn-
unartími getrauna í K-húsi við Hringbraut er á föstudögum frá 20:00-
22:00 og á laugardögum frá 12:00-13:45. Vinnigsupphæð er 40.000 kr.
fyrir fyrsta sæti og 20.000 kr. fyrir annað sæti. Vinningshafar í síðasta
hópleik voru: Sigurður H. Jónsson (REX) í fyrsta sæti og
Magnús Jónsson (EMMESS) í öðru sæti.
Allir hvattir til að mæta en þess má geta að aðal getraunaspekingarnir
mæta flestir á föstudagskvöldum til að bera saman bækur sínar. Þeir
bjóða fram aðstoð sína fyrir þá sem vilja byrja að „tippa“ og eru menn
hvattir til að líta við.
Unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur
2. tbl. 2003 - bls. 18 og 19 8.1.2003 18:22 Page 19