Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 11.09.2003, Qupperneq 17
18 kenna í skólanum og einn vetur sat ég í tíma hjá honum þar sem hann kenndi skrift. Hann hafði einstaklega fallega rithönd og var vel skrifandi, hvort heldur sem um var að ræða fagurfræði eða heimildaritun. Hrein unun að lesa það sem eftir hann lá og mér og öðrum hvatning til frekari dáða á þeim vettvangi. Stelpunum í bekknum fannst hann ægilega sætur og sögðu að hann væri alveg eins og Paul McCartney í Bítlunum. Ég naut góðs af og fékk meiri athygli en ella hjá stelpunum af Heiðar- brúninni. Seinna meir átti Villi eftir að setjast þar að með fjöl- skylduna áður en þau fluttu í glæsiheimilið að Háholti 19. Villi var mikill alþýðumaður og naut sín vel í hópi krata á upp- gangstímabili Alþýðuflokksins í Keflavík, rétt um það leyti sem ég kemst á kosningaaldur. Ég fylgdi honum að verkum, bæði í ræðu og riti og átti einstaklega góðar stundir í fylgd hans um pólitísk öngstræti bæjarlífsins. Villi tók nefnilega af skarið þegar mér fannst aðrir sitja hjá, vann verk sín af einlægni og einurð, svo að eftir var tekið. En skólinn átti hug hans allan, jafnvel bæjar- stjórastóllinn varð að víkja fyrir áhuga hans á menntamálum og lét hann sér í léttu rúmi liggja að segja skilið við æðstu stöðu bæj- arfélagins. Hann var fyrst og fremst skólamaður, enginn gat tekið það frá honum og þar leið honum best. Þar var hann betri en nokkur annar að flestra mati, foreldrar tóku honum fegins hendi á ný og umvöfðu hann óskabörnum þjóðarinnar. Nú sitjum við eftir, hnípin á sorg- arstundu og endurnærumst af minningunum um elskulegan bróður, sem leit eftir okkur hin- um á ögurstundum en naut sín mest og best í faðmi ört stækk- andi fjölskyldu. Þeirra missir er mikill og erfiðasta raun. Ég vona að bráðlega birti á ný í þeim lífs- ins ólgusjó sem fjölskyldan hefur mátt þola og tek undir lokaorð bróður míns í áðurnefndri minn- ingargrein, að maður skuli hug- leiða áfram tilvist sálarinnar og tilvistina í Paradís. Valur Ketilsson Aftur og aftur stendur maðurinn agndofa og skilningsvana frami fyrir atburðum líðandi stundar. Hvers vegna er eiginmaður og faðir, framámaður í samfélaginu, leiðtogi á fjölmennum vinnustað, traustur samferðarmaður, skyndi- lega og alls óvænt kallaður úr straumi lífsins langt fyrir aldur fram? Hver er tilgangur almættis- ins með slíkri gjörð? Missir og söknuður fjölskyldu og ástvina er sár og mikill, skaði samfélagsins er tilfinnanlegur. Á morgun kveð ég með söknuði vin minn og samstarfsmann um áratuga skeið Vilhjálm Ketilsson skólastjóra. Vilhjálmur var ötull, metnaðarfullur, ósérhlífin atorku- maður, sem mátti ekki vamm sitt vita. Með mjög svo ótímabæru fráfalli hans er höggvið skarð í raðir skólastjórnenda í Reykjanes- bæ sem vandfyllt verður. Kynni okkar og samstarf hófst árið 1978 en þá varð ég formaður skóla- nefndar grunnskólans í Keflavík. Eitt af fyrstu verkum skólanefnd- arinnar var að ráða nýjan skóla- stjóra að Barnaskólanum, sem nú heitir Myllubakkaskóli. Vilhjálm- ur þá aðeins 28 ára að aldri var valinn úr hópi umsækjenda. Barnaskólinn í Keflavík var þá einn af fjölmennustu grunnskól- um landsins með rúmlega 800 nemendur. Starfið var erilsamt og krefjandi margskonar breytingar voru á grunnskóla löggjöfinni. Þá strax kom í ljós hinn gífurlegi metnaður sem Vilhjálmur bar í brjósti fyrir skólann sinn. Fyrir mig sem formann var ómetanlegt að njóta starfskrafta hans. Eitt af þeim verkefnum í skólamálum sem komst í framkvæmd fljótlega upp úr 1980 var að flytja kennslu fatlaðra barna heim í hérað. Fram að þeim tíma var rúmlega 30 börnum ekið daglega af Suður- nesjum til höfuðborgarsvæðisins til náms. Mikið álag fylgdi öllum þessum akstri fyrir nemendurna og jafnframt foreldra. Þrátt fyrir að hafa með höndum stjórn eins fjölmennasta grunnskóla landsins var Vilhjálmur fús að takast á við það verkefni að koma kennslu þessara barna fyrir í Myllubakka- skóla eins og kostur var. Með mikilli vinnu og átaki tókst að koma verkefninu í þann farveg að akstur fatlaðra nemenda til höfuð- borgarsvæðisins lagðist af. Ef hægt væri að spyrja Vilhjálm hvað af öllum þeim góðu verkefn- um sem hann kom að, stæði hæst í hans huga, er ég ekki í vafa um að svarið væri, bætt aðstaða fyrir fatlaða nemendur í heimabyggð. Fyrir utan samstarf í skólamálum lágu leiðir okkar saman í sveitar- stjórnarmálum á vegum SSS og bæjarstjórnar Keflavíkurkaup- staðar. Ekki vorum við flokks- bræður en skoðanabræður í flest öllum málum. Vilhjálmur var íhaldssamur hægri krati og var traustur félagi í Alþýðuflokknum meðan hann var og hét. Því hefur verið haldið fram að í Keflavík hafi verið um langt árabil jafnað- arsinnaðir Sjálfstæðismenn og hægrisinnaðir Alþýðuflokks- menn, með þá skilgreiningu í huga er engin furða að eplin hafa ekki fallið langt frá eikinni. Í öllu samstarfi var Vilhjálmur ráðagóð- ur, útsjónarsamur, fljótur að skilja aðalatriði frá aukaatriðum og glöggur á menn og málefni. Hann var traustur bandamaður og gott að eiga hann að. Þessir eiginleikar komu honum að góðum notum í starfi bæjarstjóra og bæjarfulltrúa í Keflavík en hann var 8. bæjar- stjóri Keflavíkurkaupstaðar. Spor hans liggja víða í samfélaginu og hann er tvímælalaust einn af þeim dáðadrengjum sem sett hafa mark sitt á bæjarlífið. Nú að leiðarlok- um vil ég þakka traust og gott samstarf, ég tel mér heiður af því að hafa átt Vilhjálm Ketilsson að vini og samstarfsmanni. Fjölskylda mín vottar eftirlifandi eiginkonu, frú Sigrúnu Ólafsdótt- ur, börnum og barnabörnum svo og föður, bræðrum og öðrum ætt- ingjum dýpstu samúð og hlut- tekningu og biður almættið að styðja þau og styrkja á raunar- stund. Blessuð sé minning um góðan dreng. Ellert Eiríksson Það ríkti gleði í bæjarfélaginu. Fólk var óvenju glatt og eftir- væntingarfullt. Menningarhátíðin okkar var gengin í garð og við opnuðum í Listasafninu sýningu með athöfn. Villi kom með litla afastelpu með sér. Hann var ná- kvæmlega eins og venjulega, hreinn og beinn í framkomu. Daginn eftir var hann allur. Sorg- in gerir ekki boð á undan sér. Skyndilega vorum við minnt á, enn einu sinni, að öllum er okkur úthlutaður tími hér á jörðu, en hvenær sá tími rennur út, vitum við ekki. Vilhjálmur hafði farið út að hjóla en átti ekki aftur- kvæmt úr þeirri ferð. Hann var ímynd heilbrigðs lífernis, maður á besta aldri, sem naut þess að ganga, hjóla, synda. Við Vilhjálmur áttum sæti í síð- ustu bæjarstjórn Keflavíkur, fyrir sameiningu. Þá var hann að ljúka sínum ferli sem bæjarfulltrúi og bæjarstjóri. Við tilheyrðum ekki sama pólitíska flokknum en ég dáðist af þeirri reynslu sem hann bjó yfir, yfirvegaðri framkomu hans og með hvaða hætti hann nálgaðist málin sem var oftar en ekki frá öðru sjónarhorni en aðrir bæjarfulltrúar. Vilhjálmur var bæjarfulltrúi í Keflavík fyrir alþýðuflokkinn í tvö kjörtímabil frá árinu 1986 til 1994. Hann gengdi starfi bæjar- stjóra í tvö ár í upphafi fyrra kjörtímabils síns. Vilhjálmur Ketilsson var virtur einstaklingur í okkar samfélagi, sem allir þekktu og farsæll skólastjóri frá 28 ára aldri. Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þakka Vilhjálmi Ketilssyni fyrir það metnaðarfulla starf sem hann hefur lagt af mörkum í þágu sveitarfélagsins, bæjarbúum til heilla. Ég votta Sigrúnu, börnum þeirra, tengdabörnum og barnabörnum, föður hans og bræðrum og öðr- um þeim sem nú syrgja mætan mann dýpstu samúð. Minninginn um góðan dreng lif- ir. Björk Guðjónsdóttir forseti bæjarstjórnar Reykja- nesbæjar. Elsku Villi okkar, Við gerðum okkur ekki grein fyr- ir því þá en þú varst hjarta skól- ans. Þú sagðir okkur alltaf að láta okkur líða vel í skólanum því skólinn væri okkar annað heim- ili. En það varst þú sem lést okk- ur líða vel. Þótt við værum send til skólastjórans kviðum við því ekki því við vissum að þú myndir taka á því á réttann hátt. Samt bárum við öll mikla virðingu fyr- ir þér vegna þess að þú komst alltaf fram við okkur sem jafn- ingja. Gott dæmi um það var þegar einn nemandi var sendur til þín en kom svo aftur í tíma með samloku í annarri hendi, kókó- mjólk í hinni og í góðu skapi. Svona varstu alltaf, fannst alltaf bestu lausnina. Þú minntir okkur á pokabjörninn Kolla káta sem var alltaf í góðu skapi og vildi alltaf allt fyrir aðra gera sama hvað gekk á hjá hon- um. Alltaf þegar þú áttir aukatíma komstu við í tíma hjá okkur bara til að kíkja á okkur og athuga hvernig okkur gengi, án nokkurr- ar ástæðu. Okkur þótti vænt um það. Okkur þykir sárt að þú ert farinn, við hefðum viljað segja miklu meira en engin orð ná yfir það. Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast, að þú ert einn af þeim sem mér þótti gott að kynnast. Orðstír fagur aldrei deyr, óhapp má því skrifa, á sögupjöldum síðar meir, sagan þín mun lifa. Við vottum fjölskyldu þinni sam- úð okkar og sendum henni allan þann styrk sem við eigum. þín verður sárt saknað, Nemendur Myllubakkaskóla Þú ættir að vera hjá okkur í dag og sjá árangur erfiðis þíns. Innan og utan skóla eru blóm og kerta- ljós sem nemendur hafa komið með til að heiðra minningu þína, að ótöldum fögrum orðum sem þeir hafa haft um þig, bæði í ræðu og riti. Við komum til að kveðja hann í dag, sem kvaddi löngu fyrir sólarlag. Frá manndómsstarfi á miðri þroskabraut hann má nú hverfa í jarðarinnar skaut. Sem börnum átti að búa vernd og skjól, er burtu kippt af lífsins sjónarhól. G.J. Vilhjálmur var alltaf sýnilegur í skólanum. Það var sama hver leit- aði til hans alltaf var hann tilbúinn til að leysa vandann. Viðtalstími hans spannaði allan daginn og áreitið var oft mikið. Hann studdi við bakið á sínu fólki og kæmi upp persónulegt vandamál hjá því lá hann ekki á liði sínu að leysa það. Hann var metnaðarfullur í því sem hann tók sér fyrir hendur, keppnismaður mikill, hvort sem hann var að keppa við fullorðna eða nemendur 10. bekkja. Metn- aður þessi kom m.a. fram í því hversu skipulagður hann var og í einstaklega fallegri rithönd. Hann hafði einnig mikinn metnað fyrir hönd nemenda, að þeir sætu við sama borð og nemendur ann- arra skóla hvað allan aðbúnað varðaði og hann mátti ekkert aumt sjá. Sæi hann barn sem ekki átti fyrir mat þá hljóp hann undir bagga og það var honum kapps- mál að gefast ekki upp á nemend- um þó þeir rækjust ekki vel í hópi. Stundum fannst okkur kennurunum hann of eftirlátur við þá sem þurftu tiltal en bæði nem- endur og kennarar eru þó á þeirri skoðun að hann hafi haft einstakt lag á að láta sérhvern einstakling njóta sín. Hann gat verið þrjóskur ef hann beit eitthvað í sig. Það kom best í ljós þegar hann hélt áfram að nota Z þó búið væri að fella hana niður í opinberum stafsetningar reglum. Einn af stóru kostunum hans var húmorinn. Á erfiðum stundum gat hann dregið fram spaugilegu hliðina og gert starfið léttbærara. Stríðni hans og gáski kom af stað margri hláturgusunni á kennara- stofunni. Þeir eru ófáir hlutverka- leikirnir og eftirhermurnar sem hann lék enda gat hann breytt sér í allra kvikinda líki. Lítil börn kennaranna voru oft skelfingu lostin þegar hann birtist sem Mó- kollur eða einhver önnur ævin- týravera því hann átti oft bágt með að sitja á strák sínum. Hann vildi að allir tækju ábyrgð á starfi sínu en ynnu ekki eingöngu af kvöð og honum var mikið í mun að ræða málin raunsætt án þess að særa nokkurn mann. Styrkleiki okkar hóps á upphaf sitt í honum. Hann gaf sér tíma til að tala við samstarfsfólk sitt enda hefur honum haldist einstaklega vel á því. Hann var raunsær varðandi stöðu skólans og lagði spilin alltaf á borðið fyrir kennarana og var sí- fellt að hvetja fólk til dáða. Síð- asta umræða snerist um að mark- mið skólans væru raunsæ en ekki eitthvað sem sett væri á blað fyrir augað og bætt skólastarf var hon- um eilíf ögrun. Við, starfsfólkið, reynum að halda merki hans á lofti með því að axla það starf sem hann átti stóran þátt í að móta. Kæra Sigrún og fjölskylda, megi blessun fylgja ykkur og guð gefa ykkur styrk til að takast á við sorg ykkar og missi. Starfsfólk Myllubakkaskóla Vilhjálmur Ketilsson f. 13.4. 1950 d. 6.9. 2003 VF 37. tbl. minning 9/10/03 14:39 Page 18

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.