Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 11.09.2003, Qupperneq 20
VÍKURFRÉTTIR I 36. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 5. SEPTEMBER 2003 I 21 uð brot þá verður sektum beitt. Við viljum öryggi fyrir ungling- ana okkar og til þess er Útideild- in. Flestir foreldrar vinna með okkur en það er ljóst að það eru einnig of margir foreldrar sem leyfa börnum sínum að brjóta útivistarreglur og kaupa jafnvel áfengi fyrir þau.” Stefán segir að foreldrar sem leyfi börnum sínum að vera úti á næturnar um helgar sýni mikið andvaraleysi og jafnvel afskipta- leysi. “Mikil vakning hefur verið meðal foreldra í Reykjanesbæ og öflugt starf innan foreldrafélaga og foreldraráða grunnskólanna (FFGÍR) en sumir foreldrar virð- ast ekki skilja að unglingar skyn- ja afskiptaleysi sem andstæðuna við ást. Ég hef alltaf haldið því fram að andstæðan við ást sé ekki hatur, heldur afskiptaleysi. Við foreldrar erum kannski orðn- ir of eftirgefanlegir hvað varðar útivistartíma barnanna okkar. Við þurfum alltaf að halda vöku okk- ar og vita hvar unglingarnir okk- ar eru hverju sinni og hvað þeir eru að aðhafast. Þessi helgi var viðvörun til okkar allra,” segir Stefán, en mikil vinna hefur ver- ið lögð í íþrótta- og forvarnastarf í Reykjanesbæ. “Við erum að vinna heilmikið forvarnastarf, að ýmiss konar íþrótta- og tóm- stundamálum og heilmikið af öðrum góðum verkefnum. Þetta forvarnarstarf skilar einungis ár- angri ef foreldrar taka virkan þátt.” Að sögn Stefáns hefur hann nokkur dæmi um að foreldrar kaupi áfengi handa börnum sín- um. “Rök þessara foreldra eru yfirleitt á þá leið að þau vilji frekar kaupa áfengi handa ung- lingnum í stað þess að unglingur- inn sjálfur sé að kaupa sér “landa”. Þetta eru sorgleg rök og með þessu eru þeir að samþykkja neyslu áfengis.” Stefán vill hins vegar koma því skýrt á framfæri að hann vilji ekki taka ábyrgðina alfarið af unglingunum. “Þetta er líka spurning um ákvörðun unglings- ins. Þau sem tóku ákvörðun um að neyta áfengis þessi kvöld verða að axla þá ábyrgð,” segir Stefán. “Útivistarátökin og for- varnarverkefnið “Reykjanesbær á réttu róli” hafa verið að skila góðum árangri og við þekkjum ekki lengur þetta svokallaða “Hafnargötuvandamál”. Úti- deildin hefur aðeins þurft að hafa afskipti af tiltölulega fáum ung- lingum sem hafa misstigið sig, en um helgina voru höfð afskipti af of mörgum og of ungum börn- um. Við munum strax taka á þessu, ræða við foreldrafélög og unglingana sjálfa til að fyrir- byggja að þetta fari í verri far- veg,” segir Stefán að lokum. Markmið Ljósanætur skýr Steinþór Jónsson formaður Ljósanæturnefndar segir að í heildina hafi Ljósanótt gengið gríðarlega vel og að jafnvel veðr- ið hafi snúist Suðurnesjamönn- um á sveif meirihluta laugardags. Steinþór segir það miður, að sú umræða sem hér á sér stað, sé vegna foreldra sem virði ekki úti- vistartíma barna sinna. “Frá upp- hafi Ljósanætur hafa dagskrárat- riði verið sett þannig fram að tryggt sé að um fjölskylduhátíð sé að ræða. Lok hátíðarinnar hef- ur verið fyrr en þekkist vegna þeirra áherslu sem við lögðum í upphaf i á að Ljósnótt yrði skemmtileg fjölskylduhátíð. Markmið Ljósanætur eru mjög skýr hvað þetta varðar og því ákveðið að stilla dagskráratriðum innan lögbundins útivistartíma unglinga,” segir Steinþór og bæt- ir við að á hverju ári hafi mark- miðum Ljósanætur verið fylgt eftir. “Við höfum nú sem aldrei fyrr unnið með lögreglu, útideild og bæjaryfirvöldum til að fyrir- byggja glufur eða vandamál í dagskránni sem gætu orsakað uppákomur unglinga í miðbæn- um eftir að dagskrá lýkur og er ástæða til að þakka lögreglu, úti- deild, björgunarsveit og bæjaryf- irvöldum sem komu að þessum málum fyrir frábært starf og und- irbúning til að þessi markmið Ljósanætur myndu m.a. haldast.” Að mati Steinþórs gekk fram- kvæmd Ljósanætur mjög vel, en segir þó foreldra einhvers hóps unglinga sem voru í bænum fram á nótt fá falleinkunn. “Allir þeir aðilar sem koma að öryggismál- um Ljósanætur hafa bæði ábyrgð og vald til að taka á þessum hlut- um. En þegar við fáum upplýs- ingar um það að foreldrar séu í einhverjum tilfellum að vinna gegn útivistarreglum barna sinna og þar með bregðast sínum þætti í dæminu þá gerir það þessum aðilum mjög erfitt fyrir. Það er ergilegt að þessi fáu tilfelli skuli skapa þá umræðu sem hér er komin upp. Það er auðvelt að taka á þessu, en það verða for- eldrarnir að gera með okkur. Það er ekki hægt að komast lengra en heim að dyrum hjá fólki því á heimilunum þarf að fara fram innra starf og fylgja hlutunum eftir.” Eftir hverja Ljósanótt hefur ver- ið sest niður og framkvæmd há- tíðarinnar rædd. Steinþór segir að farið sé í gegnum öll atriði og komið fram með tillögur að út- færslum svo betur megi fara næst. “Við höfum eftir hverja Ljósanótt farið yfir hátíðina og glaðst yfir því sem vel hefur far- ið fram og reynt að finna leiðir í þeim málum sem betur hefðu mátt fara. Við höfum rætt þetta mál á fundum hjá okkur og við munum án efa reyna að finna nýjar leiðir til að komast hjá þessum uppákomum. Eftir alla þá vinnu sem lögð var í þessa þætti held ég að við verðum að vinna meira í gegnum foreldrafé- lög og inn á heimilunum til að fólk skilji hvað það er mikilvægt að þau standi sig í stykkinu á há- tíð sem þessari barninu til heilla. Ég vil því að lokum nota tæki- færið og þakka þeim foreldrum sem sinna vel sínu uppeldishlut- verki fyrir þátttöku í þessu með okkur, en þessi hópur foreldra er vissulega í miklum meirihluta.” Texti: Jóhannes Kr. Kristjánsson • johannes@vf.is VF 37. tbl. 32 sidur 10.9.2003 13:14 Page 21

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.