Víkurfréttir - 06.11.2003, Qupperneq 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ V A R N A R L I Ð I Ð Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
Fasteignamarkaður Suðurnesja - inn á öll heimili á Suðurnesjum!
Sjáið fasteignaauglýsingar á blaðsíðum 22-23 í Víkurfréttum í dag
Y firmenn allra deilda inn-an Varnarliðsins á Kefla-víkurflugvelli hafa síð-
ustu vikur unnið að áætlana-
gerð sem gerir ráð fyrir stór-
felldum niðurskurði í fjár-
framlögum til reksturs varnar-
stöðvarinnar. Háttsettur yfir-
maður innan varnarsvæðisins
sem starfað hefur hjá Varnar-
liðinu í áratugi sagði í samtali
við Víkurfréttir að verið væri
að undirbúa brottför stórs
hluta Varnarliðsins. Víkurfrétt-
ir hafa undir höndum gögn
sem sýna niðurskurðartillögur
um allt að 30%, auk þess 18%
niðurskurðar sem nú þegar er í
gangi og sagði yfirmaðurinn
sem ekki vill láta nafns síns
getið að það væri í hans huga
ekki spurning um hvort leggja
ætti stóran hluta starfseminnar
niður, heldur hvenær skipunin
komi.
„Í minni tíð hafa aldrei borist fyr-
irmæli um að skera niður rekst-
urinn eins og nú er unnið að. Það
eina sem beðið er eftir er að okk-
ur verði sagt að koma tillögunum
í framkvæmd. Það er verið að
tala um að skera niður um 30%
hjá öllum deildum og við þann
niðurskurð minnkar þjónustustig-
ið mjög mikið.“
Að sögn yfirmannsins er mikill
uggur meðal starfsmanna og and-
rúmsloftið þrungið. „Það liggur í
loftinu að það er eitthvað mikið
að fara að gerast, það bara veit
enginn hvað það verður.“
Yfirmaðurinn segir að þegar
unnið hafi verið að niðurskurðar-
tillögum sem rekja má til nýaf-
staðinna uppsagna þá hafi komið
skýr fyrirmæli frá æðstu yfir-
mönnum Varnarliðsins að segja
ætti upp fólki. „Þegar unnið var
að niðurskurði um þessi 18%
unnu yfirmenn niðurskurðartil-
lögur sem miðuðu að hagræð-
ingu í rekstri. Það síðasta sem yf-
irmenn vilja gera er að grípa til
uppsagna. En þegar búið var að
skila inn tillögum að niðurskurði
var þeim tjáð að þeir ættu að
segja upp fólki, það væri ekki
nægjanlegt að koma með tillögur
að hagræðingu í rekstrinum. Ég
veit til þess að einum þeirra sem
vann að niðurskurðartillögunum
var sagt af einum æðsta yfir-
manni Varnarliðsins að þeir vildu
sjá hausa fjúka.“
Yfirmaðurinn er mjög ósáttur
við hvernig staðið er að málum
innan Varnarliðsins. „Það er öm-
urlegt hvernig komið er fram við
starfsfólkið hér. Margir þeirra
sem sagt var upp störfum hafa
unnið mjög lengi hjá Varnarlið-
inu og framkoma yfirmanna í
þeirra garð er ógeðfelld. Ég vildi
koma þessum upplýsingum á
framfæri til fjölmiðla einungis
vegna þess að ég vil að stjórn-
völd fái ráðrúm til að bregðast
við, því eins og ég segi þá lít ég
þannig á málin að það sé bara
spurning um hvenær meginhluti
starfsemi Varnarliðsins verði
fluttur burt.“
■ Nýjustu fréttir á vf.is
Heimsreisufararnir hittu Harold úr Nágrönnum
Heimsreisufararnir Hemmi og Maggi eru nú komnir til Fiji eyja, en í nýjasta
pistlinum hafa þeir lagt Taíland, Ástralíu og Nýja Sjáland að baki. Þeir félagar
eru alltaf jafn hressir og lenda í ævintýrum sem okkur Íslendingum þykja fram-
andleg. Í pistli númer 10 skrifa þeir ferðasöguna á sinn einstaka hátt þar sem
tilfinningar blandast upplifunum félaganna. Í Ástralíu hittu þeir m.a. Harold úr
hinum vinsælu þáttum Nágrannar sem sýndir hafa verið á Stöð 2 um árabil.
Á myndinni virðist fara vel á með þeim félögum.
Heimsreisusíða Magga og Hemma á vf.is/heimsreisa
Áætlanir um stórfelldan
niðurskurð hjá Varnarliðinu
Innanlandsflug
til og frá Keflavík
I nnanlandsflug til Kefla-víkur er hafið á vegumFlugfélags Íslands. Flog-
ið er tvisvar í viku með far-
þega frá Egilsstöðum og Ak-
ureyri á fimmtudögum og
sunnudögum. Sömu daga er
hægt að nýta sér flugið frá
Keflavík en það er kl .17 og
er flogið fyrst til Egilsstaða
og lendir þar um kl.18 og
fer þaðan kl. 18.30 til Akur-
eyrar.
Jón Karl Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Ís-
lands segir tímasetningarnar
miðaðar við möguleg tengi-
flug við útlönd. Gert er ráð
fyrir að fjölga ferðum ef við-
brögð verði góð. Jón segir
ástæðuna fyrir þessari nýjung
óskir fjölmargra viðskipta-
vina að komast beint til
Keflavíkur án þess að þurfa
að koma við í Reykjavík sem
stytti ferðatímann verulega.
Fyrstu viðbrögð frá því flugið
hófst 26. okt. eru mjög góð.
Herrakvöld knattspyrnu-
deildar Keflavíkur
verður haldið 14. nóvember í KK
salnum. Síðast var mjög gaman,
nú verður enn betra og flottara,
flottir skemmtikraftar.
Miðapantanir í síma 893 4414
eða 892 8058.
Dagskrá:
Húsið opnar kl. 19.
Borðahald hefst kl. 20.
Ræðumaður og skemmtikraftar.
Sjafnarvellir 2, Keflavík
Mjög gott parhús með 3 svefn-
herb, flísar og eikar parket á
gólfum. Góð eign á vinsælum
stað. Hagstæð lán áhvílandi.
13.700.000,-
Fasteignasalan Ásberg,
sími 421 1420
Iðavellir 2, Grindavík
Huggulegt 113 m2 parhús
ásamt 36 m2 bílskúr.
Parket og flísar á gólfum,
góðar innréttingar.
14.500.000.-
Eignamiðlun Suðurnesja
Sími 421 1700
Tjarnargata 6, I-Njarðvík
Töluvert endurn. 6 herb. ein-
býli samtals 215,9m2, hæð
114,2m2, sólhús 20m2, kjallara
48,2m2 og bílskúr 33,5m2.
12.900.000,-
Fasteignasala G.Ó.
sími 421 8111
Heiðarbraut 7, Garði
Um 121m2 einbýli
ásamt 35m2 bílskúr,
3 svefnh.
Laust fljótlega.
11.500.000,-
Fasteignasalan Stuðlaberg
sími 420 4000
VF 45. tbl. 2003 hbb 5.11.2003 14:23 Page 2