Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2004, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 15.07.2004, Blaðsíða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Garðaúðunin SPRETTUR Upplýsingar í símum 421 2794, 821 4454 og 820 2905 Úða gegn roðamaur og óþrifum á plöntum. Eyði illgresi úr gras- flötum. Eyði gróðri úr stéttum og innkeyrslum. Leiðandi þjónusta. c/o Sturlaugur Ólafsson Getum bætt við okkur nokkrum lóðum í snyrtingu, kantskurð, slátt og bætt mold í beð. Upplýsingar í síma 821 4454 ÚÐA SAMDÆGURS EF ÓSKAÐ ER... OG EF VEÐUR LEYFIR Umferð verður hleypt áfyrsta áfanga tvöfaldrarR ey k j a n e s b r a u t a r fimmtudaginn 29. júlí, fjórum mánuðum fyrr en í fyrstu var áætlað. Samkvæmt útboði áttu verktakar að ljúka fyrsta áfan- ga þann 1. desember á þessu ári. Minniháttar frágangi við gatnamót mun ljúka síðar. Steinþór Jónsson formaður áhugahóps um örugga Reykja- nesbraut segir að baráttan sé loksins að skila árangri. „Þessi lokabarátta hefur tekið mikið á og kallað á mikla þrautseigju. Síðustu vikur hafa verið mjög annasamar í þessu verkefni því eins og allir vita gat vegagerðin ekki orðið við beiðni verktaka um frekara flýtifé og því allt útlit fyrir að þessi kafli myndi ekki opnast fyrr en í vetur. Eft- ir ítrekaðar viðræður við Vega- gerð og verktaka hafa þeir nú náð saman um opnun þann 29. júlí n.k. án þess að til komi frekari greiðsla á flýtifé,“ sagði Steinþór í samtali við Víkur- fréttir. Verktakafyrirtækin sem vinna við breikkun Reykjanesbrautar áttu samkvæmt útboði að ljúka fyrsta áfanganum þann 1. des- ember. Það varð hinsvegar ljóst fljótlega eftir að framkvæmdir hófust að hægt yrði að opna nýja áfangann tveimur mánuð- um fyrr og ákvað vegagerðin að greiða fyrirtækjunum flýti- fé. Þegar svo ljóst varð að verktakarnir gætu enn frekar flýtt verkinu og opnað fyrsta áfanga í lok júlí skiluðu við- ræður við samgönguyfirvöld ekki árangri varðandi frekara flýtifé. Rök samgönguyfir- valda voru þau að greiðsla á frekara flýtifé væri fordæmis- gefandi. Steinþór segir að áhugahópurinn hafi ákveðið að gefast ekki upp og hófu for- svarsmenn hópsins viðræður við verktaka um að klára verk- ið í sumar. Þrýstingur almennings skiptir máli Verktakafyrirtækin sem vinna að breikkun Reykjanesbrautar, Háfell, Eykt og Jarðvélar hafa unnið með áhugahópnum frá upphafi framkvæmda og segir Steinþór að fyrirtækin hafi sýnt þrýstingi almennings vegna framkvæmdanna skiln- ing. „Nú hafa þessir höfðingjar ákveðið, þegar allar leiðir virt- ust lokaðar, að leggja sitt að mörkum í þessu mikilvæga máli og stuðla að því að um- ferð verði hleypt á mun fyrr en ella. Fyrir þetta kunnum við þeim miklar þakkir svo og Jónasi Snæbjörnssyni hjá Vegagerðinni sem náði þessu samkomulagi fyrir hönd stofn- unarinnar. Það er ekki vafi í okkar huga að faglegur þrýst- ingur almennings frá því borg- arafundurinn 11. janúar 2001 var haldinn hefur skilað mikl- um árangri og fyrir vikið erum við komnir að þessum tíma- mótum. Fjöldi aðila hefur komið hér að málum og hefur hópnum borist mikill fjöldi símtala og tölvupóstsendinga í gengum tíðina. Ábendingarnar hafa verið jákvæðar og við höf- um undantekningarlaust komið þeim á framfæri. Þá má nefna síðasta framtakið þegar ung- lingar úr Sandgerði og Garði söfnuðu undirskriftum málinu til stuðnings.“ Tvöföldun verði lokið fyrir lok ársins 2005 Samkvæmt vegaáætlun liggur ekki fyrir hvenær hafist verður handa við breikkun seinni hluta brautarinnar. Sú ákvörðun verður tekin formlega í haust þegar þing kemur saman eftir sumarfrí og ræðir endurskoðun vegaáætlunar. „Það voru gefin loforð á borgarafundinum árið 2001 sem skulu standa. Við höfum átt í viðræðum við sam- gönguráðherra að undanförnu en nýr fundur hefur verið boð- aður í lok júlí. Þar munum við enn og aftur gera honum grein fyrir okkar kröfum sem eru enn þær sömu - tvöföldun alla leið fyrir lok ársins 2005.“ - Baráttan skilar árangri segir Steinþór Jónsson, formaður áhugahópsum örugga Reykjanesbraut. Tvöföld Reykjanesbraut opnuð eftir 2 vikur ➤ Fyrsta áfanga í breikkun Reykjanesbrautar að ljúka: 29. tbl. 2004-Stefan7 14.7.2004 13:45 Page 2

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.