Víkurfréttir - 15.07.2004, Blaðsíða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Garðaúðunin SPRETTUR
Upplýsingar í símum
421 2794, 821 4454 og 820 2905
Úða gegn roðamaur og óþrifum
á plöntum. Eyði illgresi úr gras-
flötum. Eyði gróðri úr stéttum og
innkeyrslum. Leiðandi þjónusta.
c/o Sturlaugur Ólafsson
Getum bætt við okkur nokkrum
lóðum í snyrtingu, kantskurð,
slátt og bætt mold í beð.
Upplýsingar í síma 821 4454
ÚÐA SAMDÆGURS EF ÓSKAÐ ER... OG EF VEÐUR LEYFIR
Umferð verður hleypt áfyrsta áfanga tvöfaldrarR ey k j a n e s b r a u t a r
fimmtudaginn 29. júlí, fjórum
mánuðum fyrr en í fyrstu var
áætlað. Samkvæmt útboði áttu
verktakar að ljúka fyrsta áfan-
ga þann 1. desember á þessu
ári. Minniháttar frágangi við
gatnamót mun ljúka síðar.
Steinþór Jónsson formaður
áhugahóps um örugga Reykja-
nesbraut segir að baráttan sé
loksins að skila árangri. „Þessi
lokabarátta hefur tekið mikið á
og kallað á mikla þrautseigju.
Síðustu vikur hafa verið mjög
annasamar í þessu verkefni því
eins og allir vita gat vegagerðin
ekki orðið við beiðni verktaka
um frekara flýtifé og því allt
útlit fyrir að þessi kafli myndi
ekki opnast fyrr en í vetur. Eft-
ir ítrekaðar viðræður við Vega-
gerð og verktaka hafa þeir nú
náð saman um opnun þann 29.
júlí n.k. án þess að til komi
frekari greiðsla á flýtifé,“ sagði
Steinþór í samtali við Víkur-
fréttir.
Verktakafyrirtækin sem vinna
við breikkun Reykjanesbrautar
áttu samkvæmt útboði að ljúka
fyrsta áfanganum þann 1. des-
ember. Það varð hinsvegar ljóst
fljótlega eftir að framkvæmdir
hófust að hægt yrði að opna
nýja áfangann tveimur mánuð-
um fyrr og ákvað vegagerðin
að greiða fyrirtækjunum flýti-
fé. Þegar svo ljóst varð að
verktakarnir gætu enn frekar
flýtt verkinu og opnað fyrsta
áfanga í lok júlí skiluðu við-
ræður við samgönguyfirvöld
ekki árangri varðandi frekara
flýtifé. Rök samgönguyfir-
valda voru þau að greiðsla á
frekara flýtifé væri fordæmis-
gefandi. Steinþór segir að
áhugahópurinn hafi ákveðið að
gefast ekki upp og hófu for-
svarsmenn hópsins viðræður
við verktaka um að klára verk-
ið í sumar.
Þrýstingur almennings
skiptir máli
Verktakafyrirtækin sem vinna
að breikkun Reykjanesbrautar,
Háfell, Eykt og Jarðvélar hafa
unnið með áhugahópnum frá
upphafi framkvæmda og segir
Steinþór að fyrirtækin hafi
sýnt þrýstingi almennings
vegna framkvæmdanna skiln-
ing. „Nú hafa þessir höfðingjar
ákveðið, þegar allar leiðir virt-
ust lokaðar, að leggja sitt að
mörkum í þessu mikilvæga
máli og stuðla að því að um-
ferð verði hleypt á mun fyrr en
ella. Fyrir þetta kunnum við
þeim miklar þakkir svo og
Jónasi Snæbjörnssyni hjá
Vegagerðinni sem náði þessu
samkomulagi fyrir hönd stofn-
unarinnar. Það er ekki vafi í
okkar huga að faglegur þrýst-
ingur almennings frá því borg-
arafundurinn 11. janúar 2001
var haldinn hefur skilað mikl-
um árangri og fyrir vikið erum
við komnir að þessum tíma-
mótum. Fjöldi aðila hefur
komið hér að málum og hefur
hópnum borist mikill fjöldi
símtala og tölvupóstsendinga í
gengum tíðina. Ábendingarnar
hafa verið jákvæðar og við höf-
um undantekningarlaust komið
þeim á framfæri. Þá má nefna
síðasta framtakið þegar ung-
lingar úr Sandgerði og Garði
söfnuðu undirskriftum málinu
til stuðnings.“
Tvöföldun verði lokið fyrir lok
ársins 2005
Samkvæmt vegaáætlun liggur
ekki fyrir hvenær hafist verður
handa við breikkun seinni hluta
brautarinnar. Sú ákvörðun
verður tekin formlega í haust
þegar þing kemur saman eftir
sumarfrí og ræðir endurskoðun
vegaáætlunar. „Það voru gefin
loforð á borgarafundinum árið
2001 sem skulu standa. Við
höfum átt í viðræðum við sam-
gönguráðherra að undanförnu
en nýr fundur hefur verið boð-
aður í lok júlí. Þar munum við
enn og aftur gera honum grein
fyrir okkar kröfum sem eru enn
þær sömu - tvöföldun alla leið
fyrir lok ársins 2005.“
- Baráttan skilar árangri segir Steinþór Jónsson,
formaður áhugahópsum örugga Reykjanesbraut.
Tvöföld Reykjanesbraut
opnuð eftir 2 vikur
➤ Fyrsta áfanga í breikkun Reykjanesbrautar að ljúka:
29. tbl. 2004-Stefan7 14.7.2004 13:45 Page 2