Víkurfréttir - 15.07.2004, Qupperneq 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
• KJARNABORUN
• MÚRBROT
• TÆKJALEIGA
Gerum föst verðtilboð
í öll verk, stór sem smá!
JÓN HELGASON
SÍMI 824 6670STEYPUSÖGUN
Marineruð lúða
og lax á grillið
E ftir að hafa lesið greinar um atvinnumál áSuðurnesjum í Tíðindunum og Víkur-fréttum verð ég að tjá mig um þessi mál.
Ég er ein af þeim mæðrum sem er með 17 ára ung-
ling á heimilinu sem ekki hélt áfram með nám sitt á
vorönn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hann byrjaði
strax í janúar að leita sér að vinnu og að láta skrá sig
hjá Svæðisvinnumiðluninni, samt er hann enn at-
vinnulaus. Hann er búinn að sækja um vinnu í flest-
um ef ekki öllum fiskvinnslufyrirtækjum í Reykja-
nesbæ og líka út fyrir bæjarmörkin - en allt kemur
fyrir ekki, enga vinnu að hafa. Hann sótti um hjá
öðrum fyrirtækjum eins og Nesprýði á sama tíma
en þar var heldur enga vinnu að hafa. Svörin sem
hann hefur fengið er: Ég ræð ekki svona unga krak-
ka í vinnu; ég þarf bara kvenfólk í fiskvinnsluna
ekki karlmenn eða ég er búinn að ráða í allt. Ég
hallast frekar að því að fyrirtækin á svæðinu séu
ekki að leita eftir fólki í vinnu af listum Svæðis-
vinnumiðlunar eða þannig kemur það mér fyrir
sjónir. Mér er sagt að af því ég þekki ekki mann,
sem þekkir mann sem þekkir annan mann, að það
sé þess vegna sem ég geti ekki reddað syni mínum
vinnu. Meðan krakkar yngri en hann eru að vinna
sér inn mánaðarlaun er hann að fá 18.000 krónur á
mánuði í atvinnuleysisbætur.
Oft heyrir maður að fyrirtæki vilji ekki ráða svona
unga krakka til vinnu. En þá spyr ég: Hvernig eiga
þessir krakkar að læra að vinna og kannski hafa
þessir sömu krakkar staðið sig mjög vel í vinnu
áður eins og í bæjarvinnunni. Það er andlega niður-
drepandi fyrir aldurshópinn 17 til 20 ára að finnast
þeir einskis nýtir og að þeim sé úthýst á atvinnu-
markaðnum. Núna er Reykjanesbær að fara af stað
með átaksverkefni fyrir atvinnulausa og er það gott
mál, en það mun bara standa yfir í 4 vikur. Ég vona
bara fyrir hönd þeirra krakka sem eru á aldrinum 17
til 20 ára að það verði gerð bragabót í þessum mál-
um. Það er löngu tímabært!
Margrét S. Þórólfsdóttir
Innlegg í umræðuna um atvinnulausa
og atvinnumál á Suðurnesjum
➤ Aðsend grein um atvinnumál á Suðurnesjum:
➤ Frumkvöðlanámskeiðið í 88 húsinu gengur vel:
S vo gæti farið að mikilferðamannamiðstöð rísi íReykjanesbæ á næstu
árum.
Þessi hugmynd kom fram á
kynningarfundi sem þátttakendur
á frumkvöðlanámskeiði 88-
Hússins stóðu fyrir á þriðjudag-
inn.
Hópurinn hefur unnið hörðum
höndum síðustu vikur við að
setja saman hugmyndir um
hvernig efla megi ferðamanna-
þjónustu á svæðinu. Þær voru í
dag lagðar fyrir hóp framámanna
og -kvenna af Reykjanesi og
fengu frábærar móttökur.
Verkefnið bar yf irskriftina
„Reykjanesbær, fyrsti og síðasti
áfangastaðurinn.“ Þátttakendur
höfðu gert könnun meðal ferða-
manna í bænum og fengið þar
upplýsingar um hvað þeim þætti
vanta í bæinn.
Út frá þeim upplýsingum og
frekari rannsóknum settu þau
saman drög að alhliða ferða-
mannamiðstöð, ICE INFO að
nafni. Þar gætu ferðamenn sótt
alla þjónustu, m.a. rútusamgöng-
ur, ferðaskrifstofur og upplýsing-
ar um nánasta umhverfi og land-
ið í heild sinni.
Krakkarnir höfðu þegar viðrað
hugmyndina við fyrirtæki á
svæðinu sem voru mjög hrifin.
Fundargestir, sem voru m.a. frá
Reykjanesbæ, og ferðamálasam-
tökunum sögðu hugmyndina frá-
bæra og vel staðið að vinnu og
kynningu. Þeir hugðust skoða
málið ofan í kjölinn og sjá hvað
hægt væri að gera og koma mál-
inu til réttra aðila.
Hópurinn sem stóð að sýning-
unni samanstendur af fimm ung-
mennum sem áttu það sammerkt
að vera atvinnulaus. Þau voru
mjög ánægð að kynningu lok-
inni. „Þetta er búið að vera mjög
gaman og við erum búin að læra
mikið á þessu námskeiði. Við
erum búin að kynnast Reykjanesi
á nýjan hátt því að maður vissi
ekki hvað væri mikið að sjá þó
við höfum búið hér í mörg ár.“
Þau hafa þegar fengið nýtt verk-
efni, en í því munu þau reyna að
bregða nýju ljósi á Reykjanesbæ
sem jólabæ og halda áfram því
góða starfi sem þar hefur verið
unnið á undanförnum árum.
María Rut Reynisdóttir er leið-
beinandi á námskeiðinu, sem er
samstarfsverkefni Reykjanesbæj-
ar og atvinnumálaráðgjafa SSS.
Hún var að vonum ánægð með
árangurinn og stolt af hópnum.
Frábærar hugmyndir á frumkvöðlakynningu
Þátttakendur kynntu hugmyndir sínar um
allsherjarferðamiðstöð sem staðsett verður í
Reykjanesbæ. Kynningin vakti mikla lukku.
Fundargestir voru afar ánægðir með
kynninguna og sáu mikla möguleika í
hugmyndinni.
Ferðamálasamtök Suðurnesja
hafa ákveðið að setja af stað
leik sem á að hvetja fólk til að
ganga um Reykjanesið og nýta
til þess hið nýja gönguleiða-
kort sem gefið hefur verið inn
á hvert heimili á Suðurnesjum.
Fyrir þátttöku í þessum leik
verða veitt verðlaun þeim sem
standa sig best og þeim sem
eru heppnir.
Verðlaun verða veitt í tveim
flokkum.
1. flokkur. Veitt eru þrenn
verðlaun þeim sem fara flestar
gönguleiðirnar á kortinu sem
eru merktar frá 1-23. Verð-
launin eru GPS staðsetningar-
tæki. Ef margir eru jafnir í
þessum flokki verður dregið á
milli þeirra.
2. flokkur. Veitt eru þrenn
verðlaun fyrir að hafa notað
kortið eittvað. Verðlaunin eru
búnaður til gönguferða. Þeir
sem skila inn undir þessum
flokki verða allir dregnir úr
einum sameiginlegum potti.
Til að teljast þátttakandi þarf
að skila inn stuttri greinargerð
með mynd af sér eða hópi við
viðkomandi stað eða göngu-
leið sem merkt er á kortið.
Gaman væri einnig að fá
ferðasögu.
Þátttakendur skili gögnum til:
Ferðamálasamtök Suður-
nesja, Kjarrmóa 3, Reykjanes-
bæ.
Einnig má skila inn á e-mail :
stjanip@mmedia.is.
Skilafrestur er til 30. septem-
ber 2004 og verða úrslitin til-
kynnt fljótlega eftir það.
Fólk er hvatt til að undirbúa
gönguferðir sínar vel með
hjálp kortsins, og reyna að
áætla ferðatímann og vera vel
búin. Merktu gönguleiðirnar á
kortinu eru við flestra hæfi þó
alltaf beri að fara varlega.
Góða ferð og góða skemmtun.
Suðurnesjum 13. júlí 2004
Ferðamálasamtök
Suðurnesja
Gönguleikur um Reykjanesið
29. tbl. 2004-Stefan5 14.7.2004 12:13 Page 6