Víkurfréttir - 15.07.2004, Page 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
H elsti broddur í við-skiptalífi margra landaí Evrópu byggist upp af
frumkvöðlum og fyrirtækjum
sem hafa nýsköpun á stefnu-
skrá sinni. Frumkvöðlarnir
koma með krafti inn í samfé-
lögin, byggja upp fyrirtæki,
ráða starfsfólk og koma vörum
sínum á markað. Mörg fyrir-
tækjanna komast aldrei svo
langt að geta sett vörur sínar á
markað og önnur fara á haus-
inn eftir nokkurra ára starf-
semi. Það eru fyrirtækin sem
ná að þrífast sem koma með
kraft inn í samfélögin. Þau
auka bjartsýni hjá íbúunum og
vekja upp vonir hjá fólki sem
gengur með viðskiptahug-
myndir í maganum; það fer að
vinna að því að koma sínum
hugmyndum í framkvæmd.
Gott dæmi um fyrirtæki sem náð
hefur mjög góðum árangri hér á
Suðurnesjum er Kaffitár. Fyrir-
tækið var stofnað árið 1990 og
fagnar því 15 ára afmæli á næsta
ári. Fyrirtækið veitir nú tæplega
50 manns atvinnu og eru vörur
fyrirtækisins á boðstólum helstu
stórmarkaða og verslana lands-
ins. Töluvert hefur verið fjallað
um fyrirtækið í fjölmiðlum því
það er ein helsta skrautfjöður
viðskiptalífs á Suðurnesjum.
Í styrknum felst viðurkenning
Aðalheiður Héðinsdóttir fram-
kvæmdastjóri Kaffitárs segir að
stuðningur hins opinbera gagn-
vart frumkvöðlafyrirtækjum sé
mikilvægur. Árið 1993 fékk Að-
alheiður styrk úr svokölluðum
„Jóhönnusjóði“ eftir að hafa sótt
um en sjóðurinn var eingöngu
ætlaður konum í atvinnurekstri á
landsbyggðinni. „Þann styrk not-
uðum við til að láta prenta fyrsta
kaffibækling Kaffitárs og þótt
styrkurinn hafi ekki verið mjög
hár þá skipti hann miklu máli.
Það var mikil viðurkenning fyrir
okkur að fá styrkinn og finna það
að fólk trúði á það sem við vor-
um að gera. Þetta var eiginlega
viðurkenning sem sagði að við
værum að gera rétt,“ segir Aðal-
heiður og hún segir að þátttaka
sín í t.d. félagi kvenna í atvinnu-
rekstri hafi skilað sér miklu. „Við
hjónin höfum aldrei verið feimin
við að læra. Maður kann ekkert
voða mikið en maður kann að
læra og maður er aldrei of góður
til að læra eitthvað nýtt. Mér hef-
ur alltaf gengið vel að fá ráðgjöf
frá hæfileikaríku fólki og það tel
ég vera einn af styrkleikunum.
Það skiptir mjög miklu máli að
geta leitað til aðila sem hafa vit á
hlutunum og sem geta veitt
manni ráðgjöf.“
En finnst Aðalheiði að auka ætti
við stuðning opinberra aðila til
frumkvöðlafyrirtækja? „Já, því
við verðum líka að átta okkur á
því að það eru tíu fyrirtæki sem
kannski fá styrk og reynt að hjál-
pa en það er bara eitt sem lifir.
Þetta eina er bara nóg og þetta er
kostnaðurinn sem fylgir frum-
kvöðlastarfsemi. Það fyrirtæki
sem eftir stendur skilar þá sínu til
samfélagsins.“
Tvær helstu stofnanir á Íslandi
sem veita frumkvöðlum og starf-
andi fyrirtækjum styrki til ný-
sköpunar eru Byggðastofnun og
Impra nýsköpunarmiðstöð. Sam-
kvæmt upplýsingum frá þessum
stofnunum hafa fyrirtæki og ein-
staklingar á Suðurnesjum hlotið
töluverða styrki og lán á síðustu
fimm árum.
Byggðastofnun lánar Suðurnesja-
mönnum 100 milljónir á ári
Byggðastofnun hefur á síðustu
fimm árum lánað fyrirtækjum og
einstaklingum á Suðurnesjum
rúmar 500 milljónir króna. Á
þessu tímabili bárust stofnuninni
89 lánsumsóknir og af þeim voru
45 umsóknir samþykktar en 44
synjað. Meðalupphæð hvers láns
nemur því rúmum 11 milljónum
króna.
Á sama tímabili hefur Byggða-
stofnun fengið fjórar umsóknir
um að stofnunin leggi hlutafé í
fyrirtæki á Suðurnesjum. Ein
umsókn var samþykkt þar sem
stofnunin lagði 5 milljónir króna
sem hlutafé. Á sama tíma lagði
stofnunin tæpar 85 milljónir
króna inn í Eignarhaldsfélag
Suðurnesja en eignarhlutur
Byggðastofnunar í félaginu er
28,58%. Byggðastofnun á einnig
2,58% í Íslenska Magnesíumfé-
laginu.
Á síðustu 12 mánuðum hefur
Byggðastofnun borist 19 lánsum-
sóknir og 3 hlutafjárumsóknir af
Suðurnesjum.
Styrkir Impru á fjórðu milljón
Frá árinu 1999 hefur Impra ný-
sköpunarmiðstöð veitt fyrirtækj-
um eða einstaklingum af Suður-
nesjum frumkvöðlastyrki að upp-
hæð 1,3 milljónir króna. Á þessu
tímabili hafa 25 umsóknir borist
og hefur 5 verið veittur styrkur.
Styrkirnir voru allir veittir á ár-
unum 2000 og 2001. Umsóknir
árið 2003 voru alls 7 og hlaut
engin þeirra styrk.
Tvö fyrirtæki af Suðurnesjum
hafa hlotið styrki til vöruþróunar
samtals að upphæð 2,5 milljónir
króna en alls hafa fimm umsókn-
ir borist frá árinu 1999. Annar
styrkurinn 1,5 milljón króna var
veittur árið 1999 og hinn var
veittur í ár að upphæð 1 milljón
króna.
Engar umsóknir af Suðurnesjum
í flokkinn „nýsköpun í starfandi
fyrirtækjum“ hafa borist en verk-
efnið var fyrst auglýst árið 2002.
Hjá Impru nýsköpunarmiðstöð
eru engar óafgreiddar umsóknir
af Suðurnesjum.
Vill sjá aukið fjármagn frá ríkinu
Jón Gunnarsson þingmaður
Samfylkingarinnar í Suðurkjör-
dæmi segir að hann vilji sjá ríkið
koma með fjármagn inn í at-
vinnulífið á Suðurnesjum. „Ég
stóð að tillögu við síðustu fjár-
lagagerð um að ríkið fengi heim-
ild til að selja að hluta eða öllu
leyti hlutabréf í Hitaveitu Suður-
nesja. Það var hugsað á þann veg
að fyrir hendi væri leið til að
bregðast við slæmu ástandi í at-
vinnumálum á Suðurnesjum með
því fjármagni sem kæmi út úr
sölu á hlut ríkisins í fyrirtækinu.
Sú tillaga var ekki samþykkt en
ríkið á það stóran hlut í Hitaveit-
unni að um verulega fjármuni
hefði verið að ræða. Þeir fjár-
munir hefðu verði eyrnamerktir
sérstaklega atvinnuuppbyggingu
á Suðurnesjum, samkvæmt for-
dæmum sem við þekkjum ann-
arsstaðar frá,“ segir Jón en telur
hann stuðning ríkisins mikilvæg-
an? „Ég tel mjög mikilvægt þeg-
ar litið er á ástandið hér að það sé
með sérstökum hætti horft til
þess hvort ekki þurfi tímabundið
að styðja svæðið meira heldur en
í einhverju jafnræði með öðrum
svæðum. Og að í það sé settur
kraftur að skoða það bæði af
hálfu ríkisins, sveitarfélaganna,
heimamanna og verkalýðsfélaga
hvernig best sé að bregðast við.“
Peningarnir hreyfiafl hugmyndanna
Aðspurður sagðist Jón ekki vita
til þess að aðilar á Suðurnesjum
væru að koma slíku átaki af stað
á Suðurnesjum. „Peningar eru
hreyfiafl þess sem gera skal og
oft er það þannig að góðar hug-
myndir stranda á því að ekki eru
til fjármunir. Það er mjög nauð-
synlegt að menn skoði með
hvaða hætti hægt er að bregðast
við. Þegar við lendum í jafn
miklu atvinnuleysi eins og hér er
og menn fara að verða svartsýnir
og neikvæðir þá er nauðsynlegt
að það komi einhver jákvæður
kraftur inn í það dæmi. Það gerist
ekki nema með því að ríkið,
sveitarfélög og stör hagsmuna-
samtök launþega og atvinnurek-
enda komi að því.“
Þátttaka stórra og öflugra fyrirtækja
nauðsynleg
Að sögn Jóns er nauðsynlegt að
þessi vinna fari af stað sem fyrst.
Hann telur einnig að það vanti
þátttöku stórra og öflugra fyrir-
tækja í uppbyggingu atvinnulífs á
Suðurnesjum. „Við erum með
stór og öflug fyrirtæki á norður-
og austurlandi sem oft á tíðum
standa sameiginlega að því að
styðja við bakið á nýsköpun og
nýjungum í atvinnulíf i. Þetta
vantar okkur hér. Okkur vantar
öflug og stór fyrirtæki sem eru
tilbúin til að vinna að því saman
að setja á laggirnar ný fyrirtæki
sem kosta ákveðna fjármuni í
þróun og uppbygginu en til fram-
tíðar geta skilað bæði störfum og
fjármunum.“
Í fréttskýringu sem birtist í Vík-
urfréttum fyrir stuttu þar sem
fjallað var um atvinnumál á
svæðinu kom fram að unnið er
að fjölmörgum verkefnum á Suð-
urnesjum; verkefnum sem koma
til með að veita fjölda manns at-
vinnu. Lítið hefur hinsvegar
heyrst af litlum fyrirtækjum eða
einyrkjum sem hafa hug á því að
stofna fyrirtæki í kringum við-
skiptahugmynd. Rúmlega eitt
hundrað Suðurnesjamenn sóttu
námskeið á vegum Iðntækni-
stofnunar í tengslum við sam-
keppnina „Nýsköpun 2003“ í
fyrra. Sú mikla þátttaka sýnir að
margir Suðurnesjamenn ganga
með viðskiptahugmynd í magan-
um og vilja stofna fyrirtæki til að
koma hugmyndum sínum í fram-
kvæmd. Ef þrjátíu þeirra myndu
stofna fyrirtæki og aðeins þrjú
komast á laggirnar og verða jafn-
stór og Kaffitár, þá myndu þessi
fyrirtæki veita 150 manns at-
vinnu.
Hálfur milljarður til Suðurnesja síðustu 5 ár
➤ Úttekt Víkurfrétta á lán- og styrkveitingum opinberra aðila til Suðurnesjamanna:
„Byggðastofnun hefur á síð-
ustu fimm árum lánað fyrir-
tækjum og einstaklingum á
Suðurnesjum rúmar 500 millj-
ónir króna. Á þessu tímabili bár-
ust stofnuninni 89 lánsumsókn-
ir af Suðurnesjumog af þeim
voru 45 umsóknir
samþykktar en 44 synjað.
Meðalupphæð hvers láns nem-
ur því rúmum
11 milljónum króna.“
F R É T T A S K Ý R I N G
Texti: Jóhannes Kr. Kristjánsson • johannes@vf.is
Hugsanlega er þessi duglegi smiður
einn af frumkvöðlum Suðurnesja.
29. tbl. 2004-Stefan8 14.7.2004 14:18 Page 8