Víkurfréttir - 15.07.2004, Blaðsíða 9
Minni karfi en áður
■ „Það er minni karfi heldur en
verið hefur á þessum tíma,“ segir
Bergþór Baldvinsson fram-
kvæmdastjóri Nesf isks hf. í
Garði en fyrirtækið gerir út 7
báta og er með um 5 þúsund
tonna kvóta. Að sögn Bergþórs
eru bátarnir helst að fiska ufsa og
þorsk sem unnin er í vinnslu fyr-
irtækisins í Garði.
Berglín sem er eitt togskipa Nes-
fisks mun halda til Póllands í lok
júlí þar sem gert verður við skip-
ið. „Við reiknum með að Berglín
verði frá veiðum í 6 vikur en
annars verða allir bátar á sjó fyrir
utan tveggja vikna stopp í kring-
um Verslunarmannahelgina.“
Hjá Nesf iski vinna um 200
manns og eru vinnslu- og höfuð-
stöðvar fyrirtækisins staðsettar í
Garði.
VÍKURFRÉTTIR I 29. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 15. JÚLÍ 2004 I 9
92% LESTUR Á
SUÐURNESJUM
- samkvæmt könnun
Gallup fyrir Víkurfréttir
Auglýsingasíminn 421 0000
S kemmtilegur atburðurátti sér stað í Bláa lóninu- heilsulind á föstudags-
morgun þegar hjónin Simon og
Louise Holt létu gefa sig sam-
an. Holt hjónin, sem koma frá
Bretlandi, hafa ávallt verið
hrifin af fallegri náttúru Ís-
lands og var það draumur þeir-
ra að gifta sig hér á landi.
Það var einstök náttúran um-
hverfis Bláa lónið - heilsulind
sem fékk hjónin til þess að
halda athöfnina í heilsulindinni
en þau voru gefin saman af
Ólafi Hreinssyni frá sýslu-
mannsembættinu í Keflavík.
Það sem setti skemmtilegan
svip á athöfnina var að brúð-
hjónin voru klædd í stíl við lit
Bláa lónsins eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd. Eftir at-
höfnina borðuðu brúðhjónin á
veitingastað heilsulindar og
fóru síðan í brúðkaupsferð
hringinn í kringum Ísland.
Brúðkaup í Bláa lóninu
F ramkvæmdir munuhefjast fljótlega viðReykjanesvirkjun sem
Hitaveita Suðurnesja mun
reisa á Reykjanesi. Tilboð í
stöðvarhús og jarðvinnu vegna
virkjunarinnar voru opnuð á
þriðjudag. Verið er að fara yfir
tilboðin en fjögur íslensk verk-
takafyrirtæki skiluðu inn til-
boðum eftir forval.
Að sögn Júlíusar Jónssonar for-
stjóra Hitaveitu Suðurnesja von-
ast hann til að fyrsta skóflustun-
ga virkjunarinnar verði tekin á
næstu dögum.
Verktími virkjunarinnar er mjög
knappur en samkvæmt orkusölu-
samningnum verður verksmiðjan
gangsett 1. maí árið 2006 eða eft-
ir tæp tvö ár.
Í kringum 200 manns munu star-
fa við byggingu virkjunarinnar á
næstu tveimur árum. Heildar-
kostnaður virkjanaframkvæmd-
anna er um 10 milljarðar króna.
Veltuaukning Hitaveitu Suður-
nesja vegna orkusölusamnings
við Norðurál er um einn millj-
arður króna á ári.
Framkvæmdir við Reykjanes-
virkjun hefjast fljótlega
➤ Orkan beisluð á Reykjanesi :
➤ Bresk hjón gifta sig á Suðurnesjum :
stuttar
f r é t t i r
Auglýsingasíminn er 421 0000
29. tbl. 2004-Stefan7 14.7.2004 14:03 Page 9