Víkurfréttir - 15.07.2004, Síða 16
F annar Ólafsson hefurgengið frá samningumvið gríska körfuknatt-
leiksliðið Ase Dukas frá Aþenu.
Víkurfréttir ræddu við Fannar
skömmu eftir undirritun eins
árs samnings og lá vel á hon-
um.
„Félagið lofaði mér að ég yrði í
byrjunarliðinu og var það ein af
lykilástæðunum fyrir því að ég
valdi þetta félag fram yfir önn-
ur. Þar að auki er klúbburinn
traustur fjárhagslega séð og eru
bjartsýnir á að vinna sig upp
um deild á næstu leiktíð.“
Félagið er í 2. deild í Grikk-
landi, sem er sú næst efsta þar í
landi, og hafa verið að styrkja
liðið með sterkum leikmönn-
um að undanförnu.
Æfingatímabilið hefst 10.
ágúst en framundan eru einnig
nokkrar annir með íslenska
landsliðinu í Evrópukeppninni.
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Reynir á beinu
brautinni
■ Reynismenn eru komnir í 2.
sæti síns riðils í 3. deild eftir tvo
útisigra í vikunni. Á fimmtudag-
inn lögðu þeir Hamar, 2-0, með
mörkum frá Guðmundi G. Guð-
mundssyni og Sverri Þór
Sverrissyni. Á mánudaginn
héldu þeir svo í Kópavog þar
sem þeir lögðu Drang, 2-1, þar
sem Hafsteinn Þór Friðriksson
skoraði fyrra markið og Guð-
mundur var aftur á ferðinni
skömmu síðar.
Keflavík gerir jafntefli
heima
■ Keflavík og Fram skildu jöfn,
1-1, á Keflavíkurvelli á fimmtu-
dag. Þórarinn Kristjánsson skor-
aði laglegt mark fyrir Keflavík í
fyrri hálfleik, en Fram jafnaði
stuttu síðar. Leikurinn var ekki sá
skemmtilegasti áhorfs og voru
Keflvíkingar í 6. sæti deildarinn-
ar eftir leikinn.
Stórt tap Njarðvíkur
■ Njarðvíkingar töpuðu illa
gegn Þrótti, 4-0, þegar liðin áttust
við um síðustu helgi. Njarðvík-
ingar eru í fjórða sæti 1. deildar-
innar og mæta Breiðabliki á úti-
velli í kvöld.
Víðir tapaði tveimur
■ Víðir beið afhroð á laugardag
þegar þeir töpuðu 7-1 gegn KS á
Siglufirði. Lokatölurnar segja
allt sem þarf að segja um þann
leik, en Haraldur Axel Einarsson
skoraði mark þeirra. Næsti leikur
var ekki mikið skárri þar sem
þeir töpuðu gegn Aftureldingu á
þriðjudaginn, 3-0, og eru þeir nú
í sjöunda sæti deildarinnar.
Keflavíkurstúlkur vinna
19-0
■ Keflavík heldur sínu striki í
1. deild kvenna og unnu UMF
Bessastaða 19-0 á heimavelli sín-
um í síðustu viku. Þær eru í fyrs-
ta sæti riðilsins og er markatala
þeirra 62-1 eftir sex leiki.
Töpuðu einum fleiri
■ Grindvíkingar voru í næst-
neðsta sæti Landsbankadeildar-
innar eftir tap gegn Víkingum á
útivelli, 1-0, á fimmtudaginn.
Grindvíkingar voru langt frá sínu
besta í leiknum og breytti engu
þótt Víkingar misstu mann útaf
um miðjan seinni hálfleik.
sportið
MOLAR
M ikill styr stóð umOrra Frey Hjaltalín,leikmann knatt-
spyrnuliðs Grindavíkur, í vik-
unni. Hann varð uppvís að
svívirðingum í garð ýmissa
aðila sem koma að knatt-
spyrnunni, m.a. dómurum,
þjálfurum og jafnvel forseta
Íslands.
Vefsíðan fotbolti.net birti úr-
drátt af heimasíðu Orra Freys
þar sem hann eys óhróðri yfir
nafngreinda menn.
„Þetta átti aldrei að fara út í
svona,“ sagði Orri í samtali við
Víkurfréttir í dag. „Ég var bara
að fíflast og bjóst ekki við því
að svo margir sæju þetta. Ég
skrifaði þetta oft í reiði eftir
leiki. Þetta er alls ekki líkt mér
því ég hef aldrei kvartað undan
dómgæslu í leikjum,“ sagði
Orri að lokum.
Í opinberri afsökunarbeiðni
sagði Orri að skrifin endur-
spegluðu ekki viðhorf leik-
manna eða stjórnar Grindavíkur
og sagðist hann að lokum vona
að menn hafi ekki tekið um-
mælunum of alvarlega og að
þetta mál yrði fljótt gleymt og
grafið.
Knattspyrnudeild Grindavíkur
sendi í kjölfarið frá sér tilkynn-
ingu varðandi málefni Orra þar
sem þeir segjast harma ummæl-
in. Þeir hafi beitt ströngum
refsingum þ.m.t. sektum.
Stjórnin muni ekki sætta sig við
slíkt heldur halda á lofti því
kjörorði að knattspyrna er
„leikur án fordóma“.
Orri Freyr áminntur
fyrir ummæli sín
K eflvíkingar fá verðugtverkefni á sunnudagþegar þeir mæta Íslands-
meisturum KR í Landsbanka-
deildinni. Leikurinn fer fram í
Frostaskjóli í Reykjavík.
Keflvíkingar unnu frækinn og
glæsilegan sigur í fyrri leik lið-
anna, 3-1, og stimpluðu sig inn
sem alvöru lið sem gæti velgt
stóru liðunum undir uggum. Síð-
an þá hefur neistinn þó dofnað
smátt og smátt og liðið hefur sig-
ið niður töfluna.
KR-ingar byrjuðu tímabilið
hræðilega, en hafa haldið í við
toppliðin að undanförnu þó að
titildraumurinn sé fjarlægur.
„Við erum búnir að vera að
vinna í því að koma liðinu aftur á
svipaða braut og við vorum á í
upphafi leiktíðar,“ sagði Ólafur
Ingi Jónsson, bakvörður Kefla-
víkur. „Hópurinn hefur verið að
þjappa sér saman og um leið og
við fáum baráttuna upp í þetta
aftur kemur spilið af sjálfu sér. Ef
við spilum okkar bolta og sýnum
baráttu og grimmd getum við al-
veg tekið KR eins og síðast.“
Keflavík mætir
meisturunum
Fannar gengur til liðs
við Ase Dukas
G rindvíkingar fá Skaga-menn í heimsókn ámánudag og gæti sá
leikur skorið úr um hvort þeir
verði í fallbaráttuslagnum
þegar líða tekur á mót. Grind-
víkingum hefur gengið lítið að
undanförnu og eru rétt við
botninn þegar þessi grein er
skrifuð.
„Ég er samt ekki svo stressaður
yf ir stöðunni,“ sagði Sinisa
Kekic, fyrirliði, í samtali við
Víkurfréttir. „Deildin er svo jöfn
að þrjú stig skilja að hvort þú ert
í toppbaráttunni eða á botninum.
Það eru enn níu leikir eftir og
staðan er því ekki svo slæm.“
Fyrri leikur liðanna i sumar end-
aði 1-1 á Skipaskaga þar sem
Grindvíkingar spiluðu skynsam-
lega og er ekkert sem segir að
þeir geti ekki leikið slíkt eftir og
jafnvel sótt öll stigin ef svo ber
undir. „Það verður erfitt eins og
alltaf,“ sagði Kekic að lokum.
„Skagamenn gefa alltaf 100% í
alla leiki og við verðum bara að
gera alveg eins. Þetta verður
barátta og hlaup allan leikinn.“
➤ Baráttuleikur í vændum í Grindavík:
Skagamenn koma til Grindavíkur
D anski knattspyrnumað-urinn Tommy Schramhefur komist að munn-
legu samkomulagi við lið
Keflavíkur um að spila með
liðinu það sem eftir lifir af
Landsbankadeildinni.
Schram er íslenskum boltaáhuga-
mönnum ekki alls ókunnugur
vegna þess að hann lék með ÍBV
sumarið 2001 og þótti standa sig
með ágætum. Hann er 32 ára og
lék með 1. deildarliðinu Velje í
heimalandi sínu síðasta vetur.
Schram, sem lék með yngri
landsliðum Danmerkur, getur
bæði leikið sem varnarmaður og
miðjumaður.
„Hann lítur ágætlega út,” sagði
Milan Stefán Jankovic, þjálfari
Keflavíkur. „Við skoðum hann
betur á æfingum fram að helgi
og tökum svo ákvörðun út frá því
hvort hann verði í liðinu gegn
KR á sunnudaginn.”
Tommy Schram til Keflavíkur
29. tbl. 2004-Stefan8 14.7.2004 14:32 Page 16