Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.01.2005, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 20.01.2005, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Þann 15. janúar s.l. keypti P. Samúelsson hf fasteign og allan rekstur Bíliðnar í Njarðvík. Bíliðn hefur verið þjónustuverk-stæði fyrir Toyota síðan 1991 og er eitt af stærstu þjónustu- verkstæðum Toyota hér á landi. Markmiðið með þessum kaupum er að styrkja enn frekar þjónust- una við Toyota eigendur á Suðurnesjum. P. Samúelsson hf vill þakka eigendum Bíliðnar þeim Stefáni og Guðríði fyrir frábært samstarf í gegnum árin, en þau munu starfa áfram við reksturinn. Toyota kaupir Bíliðn 8 Kallinn á kassanum „Brasað“ í Helguvík! Brimborg í Reykjanesbæ mun frumsýna nýjan Ford Focus í sýningar- sal sínum á laugardag og býður til veislu af því tilefni. Gestum verður boðið upp á nýbakaðar vöfflur og kaffi auk sem trúðar skemmta bör n un um með blöðrudýrum og andlitsmálun. Húsið er opið frá 11-17 laug- ardag og sunnudag, en Idol- stjarn an Kalli Bjarni mun afhúpa bílinn kl. 11.15 á laug- ardag og taka nokkur lög fyrir viðstadda. Frumsýningargestir geta einnig tekið þátt í Focus- getraun þar sem glæsilegir vinn- ingar eru í boði og auðvitað fengið að reynsluaka þessum vinsæla og margverðlaunaða bíl sem og öðrum tegundum. Brimborg frumsýnir nýjan Focus í Reykjanesbæ Gylfi, nýráðinn sölumaður, hjá Brimborg við nýja Focusinn. Hann mun kynna áhugasömum gestum kosti bílsins á frumsýningu um helgina. Kvennakór Suðurnesja leitar að konum sem hafa gaman af söng. Á döfinni er Landsmót Kvenna- kóra og er undirbúningur að hefjast. Kórinn heldur a.m.k. þrenna tónleika á hverju ári og kemur fram við ýmis tæki- færi, farið er í æfingabúðir einu sinni á ári, auk þess sem kór- konur gera margt skemmtilegt saman. Ef þú getur sungið og vilt vera með í góðum félagsskap, þá viljum við endilega fá þig í lið með okkur okkur vantar konur í allar raddir. Æfingar eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 20 í safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík. Upplýsingar gefur formaður kórsins, Anna Birna Árnadóttir í síma 660-5927. HRESSAR KONUR ATHUGIÐ! Bíla spraut un Suð ur nesja er fyrsta fyr ir tæk ið á Suð ur-nesjum til þess að hefja notkun á umhverfisvænu vatnslakki. Í þessu nýja vatnslakki er hvorki þynnir né önnur spilliefni og því má anda að sér ólíkt fyrri bílalökkum sem voru mjög hættuleg við innöndun. „Vatnslakkið er jafn sterkt og það gamla sem við vorum að nota en glærurnar sem eru í lakk- inu hafa verið gerðar umhverfisvænni en áður,” sagði Júlíus G. Gunnlaugsson, einn eigenda Bílasprautunar Suðurnesja, en hann hefur mjög jákvæða reynslu af nýja lakkinu. Bílasprautun Suðurnesja hóf að nota þessa nýju tegund af lakki í byrjun desember 2004 en víða erlendis er eingöngu notast við vatnslakk. „Árið 2007 eiga öll verkstæði sem sprauta bíla að vera komin með þessi umhverfisvænu efni í notkun en það eru um 20 ár síðan vatnslakkið var á þróunarstigi og tæp 15 ár síðan að það fór í notkun erlendis,” sagði Júlíus og því ekki seinna vænna en að Íslendingar tækju upp þessa náttúruvænu nýjung. SÓLIN HÆKKAR sífellt á lofti og vorið er ekki langt undan. Og þá fara Suðurnesin að blómstra. Brasilísk fyrirtæki líta hýru auga til Helguvíkur um að koma þar upp einhverskonar járnverk- smiðju. Kallinum líst vel á þessar hugmyndir enda hefur hann frá upphafi haldið fram ágæti svæðisins. ÞAÐ SEM SKIPTIR svo miklu máli er að ná fyrstu fyrirtækjunum á svæðið - þá fylgja hin í kjölfarið. Kallinn hefur þá trú að tugir stórra fyr- irtækja, bæði erlendra og innlendra muni setja upp starfsstöðvar í Helguvík. Svæðið er framtíð- ariðnaðarsvæði Íslendingar. SAMTAKAMÁTTUR dagmæðra hef ur svo sannarlega skilað árangri. Bæjarstjórinn hefur ákveðið að falla frá hugmyndum um breytingar á gjaldskrá bæjarins. Dagmæðurnar tóku á mál- inu og náðu fram sigri. Gott mál enda hélt Kall- inn því fram að það væri fáránlegt að opna vasa barnafólks, öryrkja og gamalmenna til að ná í aura. HALLAREKSTUR Reykjanesbæjar er vonandi á undanhaldi. Stutt er í kosningar og stjórnmála- mennirnir þurfa að sýna að bærinn sé vel rek- inn. Árið 2004 ætti í raun að vera það ár sem á að beina sjónum að til að skoða árangur meirihlut- ans á kjörtímabilinu. En einhvern veginn hefur Kallinn ekki trú á því að það gerist. ÞAÐ SKIPTIR engu máli þó herinn fari - Kefla- víkurflugvöllur mun alltaf standa fyrir sínu. Möguleikarnir eru óendanlegir og starfsemin í kringum völlinn mun vaxa geysilega á næstu árum. Það þarf að hlú að þessu svæði - nota hvert tækifæri til að byggja þar upp góða og spennandi þjónustu fyrir ferðamenn. OG NÚ ÞEGAR sumarið er svo gott sem á næsta leyti vill Kallinn nota tækifærið og hvetja alla þá sem eru með hugmyndir tengdar ferðaþjón- ustu að koma þeim í framkvæmd. Kallinn hefði gaman af því að fá að kynnast þessum hug- myndum - sendið á kallinn@vf.is. Kveðja, kallinn@vf.is - Salsa- og karnivalsveifla... Fyrstir til að hefja notkun á umhverfis- vænu lakki

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.