Víkurfréttir - 20.01.2005, Page 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Haust ið 2005 hefst í Reykjanesbæ fjarnám í hjúkrunarfræðum við
Háskólann á Akureyri. Námið
fer fram í heil brigð is deild
og tekur 4 ár og brautskrást
nemendur með B.Sc. gráðu.
Markmið námsins er að búa
nemendur undir að gegna al-
mennum hjúkrunarstörfum
svo og stjórnunar- og fræðslu-
störfum á flestum sviðum heil-
brigðisþjónustu.
Kynningarfundur um fjarnám í
hjúkrunarfræði verður haldinn
í Miðstöð símenntunar á Suð-
urnesjum föstudaginn 28. jan-
úar kl. 14:00. Ásrún K. Sigurðar-
dóttir brautarstjóri hjúkrunar-
deildar HA mun koma og kynna
námið. Einnig munu nemendur
sem útskrifuðust sumarið 2004
segja frá sinni reynslu með fjar-
námið. Allir sem hafa áhuga eru
hvattir til að mæta í Miðstöðina
að Skólavegi 1.
Umsóknarfrestur um fjarnám
í hjúkrunarfræði er til 1. mars
2005.
Umskipti eru framundan hjá Þorsteini Sigurðs-syni, sem hefur rekið
Rafþjónustu Þorsteins að Iða-
völlum um 20 ára skeið. Hann
hefur sagt skilið við rafvirkj-
unina og Arnar Stef ánsson
tekið við rekstrinum sem mun
héðan í frá ganga undir nafn-
inu Rafpóll.
Arnar er ekki ókunnugur rekstr-
inum því hann hefur unnið hjá
Þorsteini síðustu 9 ár og veit
að hverju hann gengur. „Þetta
er náttúrulega mikil áskorun,”
sagði Arnar í samtali við Víkur-
fréttir. „En ég er fullur tilhlökk-
unar á að takast á við hana og er
bjartsýnn með framhaldið.”
Félagarnir segja samkeppnina
vera nokkra á rafverktakamark-
aðnum en nóg sé þó að gera á
meðan verið er að byggja svo
ört.
Þorsteinn vill koma á framfæri
þakklæti til viðskiptavina sinna
í gegnum árin og vonar að þeir
skipti áfram við Rafpól. „Það
verður tekið vel á móti þeim
sem og nýjum,” bætir Arnar við.
Þorsteinn kveður nú rafvirkja-
bransann eftir 20 ár eins og
áður sagði og snýr sér að ferða-
mannaþjónustu. Hann og kona
hans, Sigríður Snorradóttir, hafa
rekið ferðamannamiðstöðina í
Húsafelli undanfarin tvö sumur
og hyggjast nú snúa sér að rekstr-
inum þar af fullum krafti.
„Ferðamannatímabilið er alltaf
að lengjast og núna eru það
bara þrír mánuðir á ári sem eru
dauðir, nóvember, desember
og janúar. Þetta er orðið fullt
starf hjá okkur enda erum við
með verslun, veitingasal, tjald-
stæði, litlu sumarhúsin sem og
gamla bæinn. Við erum búin að
stækka veitingasalinn og getum
núna tekið á móti meira en 100
manns í sal.”
Þorsteinn segist una sér vel
í Húsafelli. „Þetta er alveg frá-
bært. Við búum bara þarna í
okkar bústað í ótrúlegri veður-
blíðu þannig að þetta verður
ekki betra.”
Eigendaskipti hjá Raf-
þjónustu Þorsteins
Hjúkrunar-
fræðinám
við HA kynnt
hjá MSS
8 Viðskipti og atvinnulíf:
Þorsteinn afhendir Arnari lyklavöldin að fyrirtækinu.
Laug ar dag inn 22. jan næstkomandi mun lista-maðurinn Pétur Gautur
opna myndlistasýningu sína í
listasal kaffibrennslu Kaffitárs
við Stapabraut 7 í Njarðvík.
Sýningin er opin á opnunartíma
kaffihússins og stendur til 22.
mars nk.
Missið ekki af einstöku tækifæri
til að sjá verk eftir Pétur Gaut
hér á Suðurnesjum yfir gæða-
kaffitársbolla.
Verið velkomin.
Keflavíkurkirkja mun bjóða upp á Tólf spora starf í vetur og verður
fyrsti fundurinn í kvöld kl.
18 og svo vikulega á hverjum
fimmtudegi.
Kirkjan býður þátttakendum
upp á þetta starf þeim að kostn-
aðarlausuutan þess að þeir þurfa
að kaupa sér vinnubókina sem
notast er við.
Upplýsingar veitir María Hauks-
dóttir í símum 864-5436 og
421-5181 og einnig í Kirkju-
lundi s: 420-4300.
Tólf sporin-Andlegt ferðalag
Pétur Gautur í Kaffitári
Þórhallur Guðmundsson m i ð i l l s t a r f a r h j á Sálarrannsóknafélagi
Su ð u r n e s j a þ r i ð j u d a g i n n
25. janúar nk. Þá mun Skúli
Lorantsson starfa hjá félaginu
9. febrúar. Tímapantanir eru í
símum 421 3348 eða 866 0621.
Þá má geta þess að Guðrún
Hjörleifsdóttir er væntanleg til
félagsins.
Miðlar hjá
S.R.F.S.
FRÉTTAVAKT
VÍKURFRÉTTA
898 2222
ALLAN SÓLARHRINGINN