Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.02.2005, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 17.02.2005, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Fasteignafélagið Þrek ehf. hyggst reisa og reka nemendaíbúðir fyrir nemendur sem stunda munu nám við Íþróttaakademíuna í Reykjanesbæ og mögulega nemendur við Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Í kjölfar auglýsingar Reykjanesbæjar eftir aðilum til eignar og reksturs á nemendaíbúðum sótti Þrek ehf. um byggingu og rekstur a.m.k. 72 leiguíbúða. Niðurstaða hefur verið kynnt í Umhvefis- og skipulagsráði og verður málið tekið til formlegrar afgreiðslu á næsta fundi. Félagið hyggst hefja framkvæmdir strax og lóðir verða byggingarhæfar en gert er ráð fyrir að það verði í mars n.k. Þrek gerir ráð fyrir að fyrstu íbúð- irnar verði tilbúnar í september n.k. og aðrar 12 á skólaárinu. Í framhaldi er gert ráð fyrir að næstu 24 íbúðirnar verði tilbúnar á skólaárinu 2006-7 og síðustu 24 á skólaárinu 2007-2008 eða í samræmi við eftirspurn. Í áætlun félagsins er gert ráð fyrir að samsetning íbúða í fyrsta áfanga verði 18 tveggja herbergja íbúðir og 6 þriggja herbergja íbúðir. Félagið hefur jafnframt látið gera grunnmyndir af fjölbýlishúsi sem samanstendur af einstaklingsherbergjum og verður það skoðað sérstaklega hvort ástæða sé til að reisa slíkar íbúðir. Við stefnumörkun og útleigu hyggst félagið hafa náið samstarf við stjórnendur Íþróttaakademí- unnar sem og Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Útleiga á íbúðum Fasteignafélagið Þrek ehf. hefur fengið staðfest- ingu félagsmálaráðuneytisins á samþykktum fé- lagsins til að reka leiguíbúðir þ.m.t. námsmanna- íbúðir. Leiguverð Leiguverð á nemendaíbúðum Fasteignafélagsins Þreks ehf. er háð sömu skilyrðum og íbúðir Fé- lagsstofnunar Stúdenta en í dag er leiguverð á 2 herbergja íbúð ca. 40m2 kr. 39.000 per. mán. og 3 herbergja íbúð 60 m2 kr. 53.000. Þessi verð eru til viðmiðunar á væntanlegu leiguverði sem þó mun taka mið af endanlegum byggingarkostnaði. Vo r i ð 2 0 0 3 h ó f s t í Reykja nes bæ þró-unarverkefnið Lestr- armenning í Reykjanesbæ. Þetta er þriggja ára þróunar- verkefni sem ætlað er að efla lestrarfærni og málskilning barna í bæjarfélaginu (2003- 2006). Markmið verkefnisins er að fá allt samfélagið til að taka höndum saman um að efla mál- og lesþroska barna, allt frá fæðingu til full- orðinsára. Verkefnið er ekki bundið við skólana heldur unnið víða úti í samfélaginu. Veturinn 2003-2004 fór t.d. fram lestr- aráskorun fyrirtækja og fyrir- lestrar voru haldnir í kvenna- og karlaklúbbum bæjarins. 1. nóvember s.l. hófst svo sam- félagsverkefni þessa vetrar sem kallast “Ljóð um allan bæ”. Þar er áfram unnið með lestur í fyrirtækjum en nú í öðru formi. Á vegum verkefn- isstjórnarinnar hefur fjöldi ljóða legið frammi í vetur í hinum ýmsu fyrirtækjum og stofnunum bæjarins, viðskipta- vinum og starfsfólki vonandi til ánægju. Ljóðalesturinn hófst í mat- vöruverslunum í nóvember, í desember mátti svo lesa ljóð í verslununum við Hafnargöt- una og nú í febrúar liggja ljóð frammi í opinberum stofn- unum og bönkum. Þannig geta bæjarbúar lesið hin ýmsu ljóð á mismunandi stöðum í allan vetur. Verður þetta vonandi gestum og gangandi bæði til gagns og gamans. Með þessu verkefni vill verk- efnisstjórn minna á nauðsyn lestrar og ekki síður þá ánægju sem lesturinn veitir. 8 Fasteignafélagið Þrek ehf. í Reykjanesbæ: Framkvæmdir við Nemendaíbúðir hefjast í mars Lestrarmenning í Reykjanesbæ - Ljóð í opinberum stofnunum „Ljóð um allan bæ“ ©FRÉTTASÍMINNSÓLARHRINGSVAKT898 2222

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.