Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.02.2005, Blaðsíða 26

Víkurfréttir - 17.02.2005, Blaðsíða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Fy r i r t æ p u m á r a t u g setti heimilisfræðikenn-ari fram spurningar í ke n n s l u s t u n d um hvaða hug- my n d i r n e m - e n d u r h e f ð u u m h v e r b æ r i ábyrgð á heimil- isstörfum eins og tiltekt og þrifum á heim il inu, að r yk suga, strauja, matreiða, að ganga frá þvotti og svo frv. Nokkrar um- ræður spunnust um ábyrgð hvers og eins á sjálfum sér og hvort einhverjar reglur væru til um hver ætti að gera hvað á heimilinu, börn eða full- orðnir og hvort það skipti máli hvort það væri karl eða kona. Eiga mömmur að elda og vaska upp? Eiga pabbar að slá blettinn eða þvo bílinn og svo frv. Út frá þessu spunnust umræður meðal nemendanna sem voru í 7. bekk um hver það er sem virkilega ræður á heimilinu. Hver stjórnar? Þá svaraði einn nemandinn: „Sá sem hefur fjarstýringuna. Við kaupum lið í hitt.” Fákvenni Undanfarið hefur nokkuð verið rætt um misrétti kynjanna í fjölmiðlum. Rætt er um hvort konur eigi erfiðara en karlar með að leggja í bílastæði og hvort það geti eitthvað haft með lengd vísifingurs eða baugfing- urs að gera. Konur funda um fá- kvenni í stjórnum og nefndum og hafa miklar áhyggjur af því að fjöldi kvenna í stjórnum fyr- irtækja sem skráð eru á hluta- bréfamarkaði hafi ekkert breyst frá árinu 2003. Í stjórnum tólf stærstu lífeyrissjóða landsins sé hlutfall kvenna 19% þó þær séu í miklum meirihluta þeirra sem greiða í sjóðina eins og fram kom á fundi fjögurra fagfélaga kvenna í síðustu viku.. Já ennþá eru konur í „sér” félögum og karlar í sínum félögum. Hverju sætir það? Er vegið að karlímyndinni? Á öðrum stöðum finnst karl- mönnum vegið að sér og í ný- legum auglýsingum frá Umferð- arstofu þar sem karlmenn eru í aðalhlutverki foreldris finnst þeim dregin upp sú mynd að þeir séu ekki hæfir til að bera ábyrgð á börnum. Greinilegt er að ímynd karla hefur verið að breytast og körlum gefst nú loks- ins kostur á að fara í fæðingaror- lof. Greinilegt er að ímynd karla hefur verið að breytast og sem betur fer þora ungir menn að feðra börn sín og taka nú virkan þátt í uppeldi þeirra. Ég frétti af foreldrafundi í leikskóla um daginn þar sem einungis voru mættir feður. Leikskólakenn- arinn sem var kona fór alveg í flækju og hélt að eitthvað væri að! Hún hafði vanist því að þá fyrst væru karlarnir sendir á staðinn. Kannski þeir færist frá Rambo og yfir í raunveruleik- ann þessar elskur. Séu kannski bara orðnir krúttlegir eins og Arna Schram segir í Mbl. 9. feb. Þar skilgreinir Arna hin ýmsu heiti kynslóða eins og hippa- kynslóðina, uppa-kynslóðina, x-kynslóðina, @-kynslóðina og þumalputta-kynslóðina. Svo nefnir hún krútt-kynslóðina sem sé að ryðja sér til rúms. Holdgervingar þeirrar kynslóðar séu Mugison og strákarnir í Sigur Rós sem séu voða krútt- legir strákar. Þetta hefur hún eftir vinkonu sinni sem hún segir sérfræðing í málinu. Um daginn heyrði ég heimilis- lækni tala um að verulega hefði aukist að feður kæmu með börn sín til læknis. Við búum sem sé núna við þá staðreynd að „drengirnir” á verðbréfamark- aðnum, velsnyrtir og jakkafata- klæddir með bindishnútinn í lagi, koma til læknis með litlu börnin sín og sumir kvarta við heimilislækninn undan þrálátri eyrnabólgu barnsins og and- vökunóttum þar sem gengið er með barnið um gólf. Auðvitað er erfitt að vera þreyttur upp- alandi og svefnlaus stjórnarfor- maður í samkeppni við frama- konur! Kannski þar sé einmitt hægt að sjá hina starfsframakrefj- andi menningu í hnotskurn og kannski þurfum við að skoða betur hvaða áhrif hún hefur á uppalendur og ekki síst börnin. Líðan drengja í grunnskólum En er það staðreynd að konur eigi erfitt uppdráttar í viðskipta- líf inu eða að við þurfum að huga betur að líðan drengja? Um hið síðarnefnda verður fjallað á ráðstefnu um stöðu drengja í grunn skól um sem hald in verður 24. febrúar n.k. kl. 9 - 16 á Grand hótel og er ráðstefnan öllum opin. Starfshugsun og staðalmyndir, karlmennska og drengjamenning verður þar til umræðu. Ráðstefnan ber yfirskriftina Drengjamenning í grunnskólum - Áhrif- Afleið- ingar - Aðgerðir. Fræðimenn munu þar fjalla um stöðuna og kynntar verða aðgerðir sem geta bætt stöðu drengja innan skóla- kerfisins. Ráðstefnan er haldin á vegum Reykjanesbæjar, Garða- bæjar, Seltjarnarnesbæjar og Mosfellsbæjar í samvinnu við menntamálaráðuneytið, KHÍ og Heimili og skóla - landssamtök foreldra. Hægt er að fá nánari upplýsingar inn á khi.is og heim- iliogskoli.is. Skráning fer fram á Congress.is. Foreldrar eru sér- staklega hvattir til að mæta og kynna sér þessi mál. Helga Margrét Guðmundsdóttir Sendið okkur aðsendar greinar á: postur@vf.is Hver ræður hverju á heimilinu? 8 Helga Margrét Guðmundsdóttir skrifar: Ert þú vinningshafi? Ennþá er nokkurra vinninga í Jólalukku Víkurfrétta óvitjað Síðustu forvöð að nálgast vinninga eru þann 28. febrúar 2005 Leynist nokkuð utanlandsferð hjá þér?

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.