Víkurfréttir - 17.02.2005, Blaðsíða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Fy r i r t æ p u m á r a t u g setti heimilisfræðikenn-ari fram spurningar í
ke n n s l u s t u n d
um hvaða hug-
my n d i r n e m -
e n d u r h e f ð u
u m h v e r b æ r i
ábyrgð á heimil-
isstörfum eins og
tiltekt og þrifum
á heim il inu, að r yk suga,
strauja, matreiða, að ganga frá
þvotti og svo frv. Nokkrar um-
ræður spunnust um ábyrgð
hvers og eins á sjálfum sér og
hvort einhverjar reglur væru
til um hver ætti að gera hvað
á heimilinu, börn eða full-
orðnir og hvort það skipti
máli hvort það væri karl eða
kona. Eiga mömmur að elda
og vaska upp? Eiga pabbar að
slá blettinn eða þvo bílinn og
svo frv. Út frá þessu spunnust
umræður meðal nemendanna
sem voru í 7. bekk um hver
það er sem virkilega ræður á
heimilinu. Hver stjórnar? Þá
svaraði einn nemandinn: „Sá
sem hefur fjarstýringuna. Við
kaupum lið í hitt.”
Fákvenni
Undanfarið hefur nokkuð verið
rætt um misrétti kynjanna í
fjölmiðlum. Rætt er um hvort
konur eigi erfiðara en karlar
með að leggja í bílastæði og
hvort það geti eitthvað haft með
lengd vísifingurs eða baugfing-
urs að gera. Konur funda um fá-
kvenni í stjórnum og nefndum
og hafa miklar áhyggjur af því
að fjöldi kvenna í stjórnum fyr-
irtækja sem skráð eru á hluta-
bréfamarkaði hafi ekkert breyst
frá árinu 2003. Í stjórnum tólf
stærstu lífeyrissjóða landsins sé
hlutfall kvenna 19% þó þær séu
í miklum meirihluta þeirra sem
greiða í sjóðina eins og fram
kom á fundi fjögurra fagfélaga
kvenna í síðustu viku.. Já ennþá
eru konur í „sér” félögum og
karlar í sínum félögum. Hverju
sætir það?
Er vegið að
karlímyndinni?
Á öðrum stöðum finnst karl-
mönnum vegið að sér og í ný-
legum auglýsingum frá Umferð-
arstofu þar sem karlmenn eru
í aðalhlutverki foreldris finnst
þeim dregin upp sú mynd að
þeir séu ekki hæfir til að bera
ábyrgð á börnum. Greinilegt er
að ímynd karla hefur verið að
breytast og körlum gefst nú loks-
ins kostur á að fara í fæðingaror-
lof. Greinilegt er að ímynd karla
hefur verið að breytast og sem
betur fer þora ungir menn að
feðra börn sín og taka nú virkan
þátt í uppeldi þeirra. Ég frétti
af foreldrafundi í leikskóla um
daginn þar sem einungis voru
mættir feður. Leikskólakenn-
arinn sem var kona fór alveg í
flækju og hélt að eitthvað væri
að! Hún hafði vanist því að þá
fyrst væru karlarnir sendir á
staðinn. Kannski þeir færist frá
Rambo og yfir í raunveruleik-
ann þessar elskur. Séu kannski
bara orðnir krúttlegir eins og
Arna Schram segir í Mbl. 9. feb.
Þar skilgreinir Arna hin ýmsu
heiti kynslóða eins og hippa-
kynslóðina, uppa-kynslóðina,
x-kynslóðina, @-kynslóðina og
þumalputta-kynslóðina. Svo
nefnir hún krútt-kynslóðina
sem sé að ryðja sér til rúms.
Holdgervingar þeirrar kynslóðar
séu Mugison og strákarnir í
Sigur Rós sem séu voða krútt-
legir strákar. Þetta hefur hún
eftir vinkonu sinni sem hún
segir sérfræðing í málinu.
Um daginn heyrði ég heimilis-
lækni tala um að verulega hefði
aukist að feður kæmu með börn
sín til læknis. Við búum sem
sé núna við þá staðreynd að
„drengirnir” á verðbréfamark-
aðnum, velsnyrtir og jakkafata-
klæddir með bindishnútinn í
lagi, koma til læknis með litlu
börnin sín og sumir kvarta við
heimilislækninn undan þrálátri
eyrnabólgu barnsins og and-
vökunóttum þar sem gengið er
með barnið um gólf. Auðvitað
er erfitt að vera þreyttur upp-
alandi og svefnlaus stjórnarfor-
maður í samkeppni við frama-
konur! Kannski þar sé einmitt
hægt að sjá hina starfsframakrefj-
andi menningu í hnotskurn og
kannski þurfum við að skoða
betur hvaða áhrif hún hefur á
uppalendur og ekki síst börnin.
Líðan drengja í
grunnskólum
En er það staðreynd að konur
eigi erfitt uppdráttar í viðskipta-
líf inu eða að við þurfum að
huga betur að líðan drengja? Um
hið síðarnefnda verður fjallað
á ráðstefnu um stöðu drengja
í grunn skól um sem hald in
verður 24. febrúar n.k. kl. 9 - 16
á Grand hótel og er ráðstefnan
öllum opin. Starfshugsun og
staðalmyndir, karlmennska og
drengjamenning verður þar
til umræðu. Ráðstefnan ber
yfirskriftina Drengjamenning
í grunnskólum - Áhrif- Afleið-
ingar - Aðgerðir. Fræðimenn
munu þar fjalla um stöðuna og
kynntar verða aðgerðir sem geta
bætt stöðu drengja innan skóla-
kerfisins. Ráðstefnan er haldin
á vegum Reykjanesbæjar, Garða-
bæjar, Seltjarnarnesbæjar og
Mosfellsbæjar í samvinnu við
menntamálaráðuneytið, KHÍ og
Heimili og skóla - landssamtök
foreldra. Hægt er að fá nánari
upplýsingar inn á khi.is og heim-
iliogskoli.is. Skráning fer fram á
Congress.is. Foreldrar eru sér-
staklega hvattir til að mæta og
kynna sér þessi mál.
Helga Margrét
Guðmundsdóttir
Sendið okkur aðsendar greinar á:
postur@vf.is
Hver ræður hverju á heimilinu?
8 Helga Margrét Guðmundsdóttir skrifar:
Ert þú vinningshafi?
Ennþá er nokkurra vinninga
í Jólalukku Víkurfrétta óvitjað
Síðustu forvöð að nálgast vinninga
eru þann 28. febrúar 2005
Leynist nokkuð utanlandsferð hjá þér?