Víkurfréttir - 17.02.2005, Qupperneq 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Jóhannes Kr. Kristjánsson (fréttir), sími 421 0004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (fréttir og íþróttir), sími 421 0003, sport@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0014, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 421 0013, anita@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og vikurfrettir.is
Stefanía Jónsdóttir, sími 421 0012, stebba@vf.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 1010, aldis@vf.is
8 RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
©RITSTJÓRNAR BRÉFJóhannes Kr. KristjánssonB L A Ð A M A Ð U R S K R I F A R
Í næstu viku verður utandagskrárumræða á Al-þingi þar sem Jón Gunnarsson alþingismaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi mun
ræða um málefni Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja. Nafni hans Kristjánsson heilbrigðisráðherra
mun taka þátt í umræðunum og er vonandi að
ráðherra gefi þau svör að sólarhringsvakt verði
komið á á skurðstofum stofnunarinnar. Það er
hreinlega hagsmunamál Suðurnesjamanna að sú
ákvörðun verði tekin og mun bæta öryggi borgar-
anna til muna.
Töluvert hefur verið hringt í Víkurfréttir eftir að þær birtu viðtal við Einar Árnason og Karen Gunnlaugsdóttur sem misstu dóttur
sína fyrir stuttu. Fólkið sem hefur hringt hefur
greint frá atvikum þar sem litlu hefur mátt muna
að illa hafi farið þegar flytja hefur þurft óléttar
konur til Reykjavíkur í bráðakeisaraskurð. Sú stað-
reynd að slík staða geti komið upp hvenær sem er
ýtir enn frekar undir það að tekin verði ákvörðun
um að sólarhringsvakt verði á skurðstofu HSS.
Vonandi munu stjórnendur Samherja taka ákvörðun um að byggja upp loðnubræðslu fyrirtækisins sem brann í Grindavík í síð-
ustu viku. Verksmiðjan veitir um 20 manns at-
vinnu, auk þess sem fjöldi fyrirtækja þjónusta
verksmiðjuna. Og það hlýtur að vera hagsmuna-
mál þeirra útgerða sem gera út loðnuskip að hafa
jafn afkastamikla verksmiðju og var í Grindavík
því það er stutt á miðin og hver klukkutími skiptir
máli fyrir loðnuskipstjórann. Það er mikið hags-
munamál fyrir Grindvíkinga að verksmiðjan verði
endurbyggð. Samherjamenn eru ekki þekktir fyrir
nein vettlingatök og vonandi munu þeir tilkynna
innan tíðar að verksmiðjan verði endurbyggð.
Miklar breytingar eru framundan í starf-semi slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli. Verið er að færa starfsemi flugþjónustu-
deildar slökkviliðsins sem séð hefur um snjóruðn-
ing og hreinsun brauta undir vélamiðstöð varnar-
liðsins. Starfsmenn í deildinni hafa áhyggjur af því
að flugöryggi sé ógnað með þessum breytingum
og flugumferðarstjórar hafa tekið í sama streng.
Hinsvegar segir Friðþór Eydal upplýsingafulltrúi
varnarliðsins að eftir því sem hann best viti verði
engum íslenskum starfsmanni deildarinnar sagt
upp og starfsemi deildarinnar haldist óbreytt.
Öryggisstaðall Keflavíkurflugvallar er mjög hár
enda gegnir völlurinn veigamiklu öryggishlut-
verki hvað varðar flug yfir norður Atlantshaf.
Allar breytingar sem kunna að minnka flugöryggi
eru grafalvarlegar og íslensk stjórnvöld hljóta að
bregðast við af hörku ef öryggi Keflavíkurflug-
vallar er ógnað með skipulagsbreytingum.
Slökkvilið Keflavíkurflugvallar hefur í gegnum árin margoft verið valið eitt besta slökkvilið bandaríska flotans. Viðurkenningar slökkvi-
liðsins skipta tugum og hefur þjálfun starfsmanna
þess verið mjög góð. Uppá síðkastið hefur hins-
vegar tugum manna verið sagt upp störfum og
fækkað hefur verið á almennum vöktum slökkvi-
liðsins. Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli sem
Víkurfréttir hafa rætt við á síðustu dögum eru
mjög uggandi um sinn hag og búast við að vera
sagt upp. Víkurfréttir hafa heimildir fyrir því að
um 15 slökkviliðsmönnum verði sagt upp um
mánaðarmótin. Þessi niðurskurður í slökkvilið-
inu hlýtur að skerða öryggishlutverk Keflavíkur-
flugvallar - flestir draga þá ályktun. Sumir hafa
haldið því fram að verið sé að undirbúa íslensk
stjórnvöld að taka við rekstri Keflavíkurflugvallar
og slökkviliðsins af varnarliðinu og verið sé að
ná niður kostnaði áður en sá flutningur eigi sér
stað. Ekkert er hægt að fullyrða um það en sú
spurning hlýtur að vakna hvernig hægt sé að segja
svo mörgum slökkviliðsmönnum upp án þess að
öryggisstaðall þess lækki.
Öryggi Keflavíkurflugvallar
verður að standast kröfur
Vals
fimmtud
ags
EFTIR VAL KETILSSON
Látum blómin tala
Get hreinlega ekki beðið eftir því að bíða í röðinni í Blómaval á sunnudaginn, til þess að kaupa rósir handa elskunni á konudaginn. Standa álútur innan um tvístíg-
andi eiginmenn eða unnusta, sem eru samskattaðir skvísunum
á skattframtalinu, mænandi hver á annan og veltandi fyrir
sér hversu stóra og dýra vendi þeir eigi að kaupa. Ofboðslega
eitthvað klént en þó ekki. Bara stundum svolítið erfitt. Helvíti
að hafa ekki Ómar á staðnum til að hjálpa manni við þetta!
Á maður að kaupa blandaðan vönd eða bara rósavönd? Og
hvernig eiga rósirnar að vera á litinn? Gular, bleikar, hvítar eða
rauðar? Eða á maður bara að kaupa eina stóra rauða rós og
hjartalaga konfekt? Í Blómaval eru líka til alls konar ilmkrem og
sápur, reykelsi og ilmkerti, sem bæta má í pakkann. Hugguleg
kort með hjartnæmum frösum, sem okkur dytti aldrei í hug
að segja upp úr þurru. Nema kannski helst á konudaginn, hver
veit? Við erum andskotakornið að lagast, er það ekki stelpur?
Kíkti í bókina Saga daganna eftir Árna Björnsson, þjóð-háttarfræðing, svona til vonar og vara ef maður skyldi nú vera á einhverjum villigötum með valið. Þar er hvergi
minnst á krukkukrem eða baðkúlur, hvað þá reykspýtur eða
angurkyndla. Fyrstu heimildir um konudaginn koma fram hjá
Ingibjörgu Schulesen, sem var sýslumannsfrú í Þingeyjasýslu
árið 1841-62 og sagði hún meðal annars; ,,að húsbóndinn átti
að gæða konu sinni fremur venju konudaginn’’, sem verður að
teljast ákaflega teyganlegt hugtak svo ekki sé meira sagt. Hún
bætti þó úr skák í frekari umfjöllun um málið að ,,hún var vön
að baka jólaköku til bóndadagsins, en Sigfús sýslumaður, maður
hennar, veitti aftur rauðvín með mat konudaginn’’.
Það var þá bara gamla góða Cabernet Sauvignon-ið sem heillaði eftir allt saman og kom þessu á koppinn! Það skal aldrei gjöra lítið úr gjörðum sýslumanns, þegar til kasta
hans kemur á konudaginn. Þegar allt kemur til alls, þarf maður
í raun bara að sækja vænan rauðvínsbelg handa kerlu og grilla
handa henni rolluskjátu í suðvestan hvassviðri á svölunum í
Móahverfinu, til að uppfylla frumhvatirnar og grunnkröfurnar
samkvæmt sakramentinu! Hitt er engu að síður staðreynd að
blómaverzlanir byrjuðu ekki fyrr en um miðjan sjötta áratug
síðustu aldar, næstum hundrað árum á eftir rauðvínsgutlinu, að
auglýsa konudagsblóm á fyrsta degi góu með viðeigandi hvatn-
ingu til karlmanna um að gleðja sína heittelskuðu með blómum
á konudaginn. Ég er því harðákveðinn að fara að gjörðum sýslu-
manns úr Þingeyjasýslu og bjóða elskunni ástralskt Rosemount
rauðvín með matnum, árgang 2002 og rauðar rósir úr biðröð-
inni í Blómaval, árgang 2005.