Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2005, Page 14

Víkurfréttir - 17.03.2005, Page 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Viðar Már Aðalsteinsson, forstöðumaður Um-hverfis- og skipulags- sviðs Reykjanesbæjar, kynnti framtíðarhugmyndir sem eru á deiliskipulagi bæjarins. Þar má nefna nýtt hverfi, Hlíðahverfi, sem mun verða staðsett á Nikk- elsvæðinu svokallaða og nýtt skipulag á lóðum á Grænási þar sem gert er ráð fyrir um 100 veglegum einbýlishúsa- lóðum. Viðar minntist einnig á fyrir- hugaða andlitslyftingu Hring- brautar en áætlanir um slíkt skýrast í maí. Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri, fjallaði um möguleika Helgu- víkur fyrir iðnaðarstarfsemi af ýmsum toga. Þegar hafi verið samþykktar nokkrar umsóknir um lóðir og mikil undirbúnings- vinna hafi verið unnin. Meðal helstu verkefna Vega- gerðarinnar á svæðinu er að sjálfsögðu áframhaldandi tvö- földun Reykjanesbrautar og Suðurstrandarvegurinn á milli Grindavíkur og Þorlákshafnar, en önnur minni verkefni koma líka til þeirra kasta. Þar má helst nefna færslu Nes- vegar út fyrir þéttbýli í Höfnum vegna aukinnar umferðar en Hitaveita Suðurnesja hef ur lýst sig tilbúna til að taka þátt í kostnaði verði það til að flýta framkvæmdum. Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur staðið í miklum framkvæmdum við húsnæði sitt og verður fram- hald á þeim það sem eftir lifir árs. Senn verður ráðist í að innrétta skrifstofur á 3. hæð og einnig er stefnt að því að fjölga bílastæðum um 250, en mikill vöxtur undanfarið hefur hreinlega sprengt utan af sér bílastæðin sem voru gerð fyrir tveimur árum. Sjálfstæðir verktakar munu fara út í framkvæmdir fyrir um 6.8 milljarða og eru fyrirtækin Húsa- nes og Meistarahús þar efst á blaði með framkvæmdir um og yfir 900 milljónir króna á árinu. Keflavíkurverktakar fylgja þar skammt á eftir með 800 millj- ónir en fjölmargir aðrir aðilar munu taka til hendinni. Þannig er ljóst að ekki verður setið auðum höndum þetta árið en auk þess voru kynnt fjölmörg verkefni sem eru framundan á næstu árum. 8 Framkvæmdaþing haldið öðru sinni í Reykjanesbæ: Framkvæmt verður fyrir rúma 18 milljarða í landi Reykjanesbæjar og nágrennis í ár. Þetta kom fram á framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar 2005 sem var haldið á Ránni í síðustu viku. Sam- bærilegar tölur í fyrra voru rúmir 6 millj- arðar. Þar voru kynntar væntanlegar og yfirstand- andi framkvæmdir Reykjanesbæjar, Reykja- neshafnar og Fasteignar ehf. auk þess sem aðrir aðilar gerðu grein fyrir því sem er á döfinni hjá þeim. Fremstir meðal jafningja eru Hitaveita Suð- urnesja sem mun framkvæma fyrir um 7.5 milljarða, mest við Reykjanesvirkjun. Þá mun Fasteign framkvæma fyrir um 1600 milljónir og Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir um 1300 milljónir. Útgjöld Reykjanesbæjar í framkvæmdir á árinu munu nema um 330 milljónum. Sérstaka athygli vekur framtak einkaaðila en verktakafyrirtæki munu leggjast út í fram- kvæmdir fyrir um 6.8 milljarða sem er mikil aukning frá fyrri árum. Undirbúningsvinna að Gullmolanum, v e r s l u n a r - o g þjónustumiðstöð í hjarta Reykjanesbæjar, er langt kom in og eru komn ir sterkir fjárfestar að baki hugmynd Steinþórs Jóns- sonar, athafnamanns og bæjarfulltrúa. Hugmyndin hef ur tek ið nokkr um stakkaskiptum og er nú m.a. gert ráð fyrir íbúð- arhúsnæði í efri hæðum hússins. Allar hugmyndir eru hins vegar enn á hug- myndastigi og á enn eftir að vinna mikla skipulags- vinnu á svæðinu. Ragnar Atli Guðmundsson framkvæmdastjóri Fast- eignar ehf. tilkynnti á fram- kvæmdaþingi Reykjanes- bæjar að eignarhaldsfélagið Klasi, sem er í eigu Íslands- banka, kæmi að málinu. Steinþór sagði í samtali við Víkurfréttir að áhugi Klasa væri til vitnis um hve góður kostur væri að byggja upp sterka verslunarmiðstöð í Reykjanesbæ. „Vinnan við verkefnið hefur aldrei stoppað. Við höfum fundað reglulega með fjárfestum og nú erum við að skoða skipu- lagsmál í kringum bygging- una hvað varðar bílastæði og annað og munum einnig funda með húseigendum í nágrenninu.” Rými á fyrstu hæð hússins, þar sem verslanirnar verða að mest um hluta er um 5000 m2 þannig að ljóst er að um mikla byltingu verður að ræða í verslunar- málum bæjarins. „Þetta er eiginlega punktur- inn yfir I-ið í þessum fram- kvæmdum við Hafnargöt- una og það er skemmtilegt fyrir alla að þetta skuli vera að gerast.” Hringbrautin skógi vaxin innan fárra ára? Sjálfstæðir verktakar framkvæma fyrir 6,8 milljarða króna 18 milljarða framkvæmdaár Verslunarmiðstöð við Hafnargötuna Gullmolinn á réttri leið 8 Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesnæjar, að loknu framkvæmdaþingi: Á næstu mánuðum mun Reykja-nesbær fara í gang með mark-visst kynningarátak til að mark- aðssetja bæinn sem fýsilegan kost til búsetu. Þetta sagði Árni Sigfússon, bæj- arstjóri, í viðtali við Víkurfréttir eftir framkvæmdaþingið sem var haldið í síðustu viku en þar kom fram að fram- kvæmdir í sveitarfélaginu og nágrennis þess yrðu um 18 milljarðar á þessu ári. Hinar miklu framkvæmdir sem Reykja- nesbær hefur staðið fyrir undanfarin ár hafa verið undirbúning fyrir sókn bæj- arins en Árni sagði að nú væru þær að skila sér. „Nú þurfum við ekki að keyra eins mikið áfram í framkvæmdum. Við höfum lagt mikið í en nú getum við látið aðra um að fylgja framkvæmd- unum eftir.” Árni segir framkvæmdirnar sem hafi staðið síðastliðin ár hafa verið ákveð- inn undirbúning að markaðssetningu svæðisins. „Það er ekki hægt að standa í markaðssetningu fyrr en við erum alveg tilbúin. Nú er komin sú heildarmynd að ástæða er til að ganga fram og mark- aðssetja og kynna svæðið svo fólk sjái að hér eru flottir hlutir að gerast. Reykja- nesbær er frábær valkostur til búsetu og framtíðarmöguleikar eru mjög sterkir.” Reykjanesbær kynntur sem fýsilegur búsetukostur Hringbrautin mun fá allsherjar andlitslyftingu innan tíðar, enda ekki vanþörf á og sýna meðfylgjandi myndir drög að framtíðarútliti götunnar. Nánari útfærsla á útliti götunnar liggur fyrir í maí að sögn Viðars Más Aðalsteinssonar, forstöðumanns umhverfis- og skipulagssviðs.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.