Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2005, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 17.03.2005, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I 11. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 17. MARS 2005 I 21 Síðastliðið sumar lagði óvenjulegur hópur upp í sjókajakleiðangur á Græn- landi. Hópurinn var óvenju- legur að því leyti að helmingur þeirra var blindur og einungis fararstjórinn var vanur kajak- maður. Leiðin sem þeir völdu sér þykir einnig eitthvert erfið- asta verkefni sem kajakmenn geta tekist á við, 1000 km leið meðfram strönd Austur-Græn- lands. Við sem heima sátum gátum fylgst með leiðangursmönnum meðan á ferðinni stóð í gegnum fjölmiðla og dagbók hópsins var uppfærð á netinu. Mátti sjá að þar var tekist á við aðstæður sem íslendingar eiga ekki að venjast; ísjaka, moskítóflugur og endalausa skriðjökla í sjó fram. Elsti þátt tak and inn í leið- angrinum, Friðgeir Þráinn Jó- hannesson, blindaðist í vinnu- slysi fyrir 6 árum og naut hann sérstakar aðstoðar Reynis bróður síns úr Vestmannaeyjum. Báðir eru þeir vanir sjómenn og segir fararstjórinn, Njarðvíkingurinn Baldvin Kristjánsson að þeir hafi verið lunknir við að finna góðar leiðir á sjónum. Fjórði þátttakandinn, Hafnfirðingur- inn Halldór Sævar Guðbergsson er fæddur lögblindur, sem þýðir að hann hefur innan við 10% sjón. Halldór, sem kom inn á síð- ustu stundu í stað annars þátt- takanda, hafði hinsvegar aldrei setst í kajak fyrr en til Græn- lands kom. Nú í kvöld verður fararstjórinn og Njarðvíkingurinn Baldvin Kristjánsson með myndasýn- ingu og erindi um kajakleið- angurinn, sem lengi verður í minnum hafður. Á þeim 49 dögum sem leiðangursmenn réru 935 km reyndi mikið á hóp- inn en þessa ævintýris verður þó sérstak lega minnst fyr ir óvæntan endi þegar bátur sem flytja átti þá til byggða varð vélar- vana við suðurodda Grænlands og var þeim bjargað um borð í þyrlu. Að sögn Baldvins hafði þó ýmislegt komið upp á, “eins og þegar annar þeirra blindu gekk fram af kletti eitt kvöldið þegar hann fór út úr tjaldinu að pissa. Síðar í ferðinni skoluðust kajakarnir okkar út af klöppum þar sem við höfðum tjaldað, þegar brimskafl gekk yfir þá og tilviljun ein réði því að ég hafði gengið niður eftir til að líta eftir þeim.” Þeir félagarnir þurftu því að takast á við fjölbreytilegar og erfiðar aðstæður eftir því sem leið á ferðina, sem flest var þó skemmtilegra en þessi atvik. Leiðangurinn, sem var einnig ætlaður í fjárölunarskyni var studdur af fjölda fyrirtækja og einstaklinga, meðal annars af Kaffitári héðan af Suðurnesjum. Rás tvö fylgdi leiðangrinum eftir með vikulegum viðtölum og var áheitum safnað á heimasíðu leiðangursins - www.internet. is/leidangur. Fyrirlesturinn, sem verður í kvöld á kaffihúsi Kaffitárs að Fitjum byrjar kl. 20 og er hann öllum opinn. Aðgangseyrir er kr. 1000 sem rennur óskert til fjáröflunarinnar. Myndasýning í kvöld frá blinda kajak leið- angrinum á Grænlandi

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.