Víkurfréttir - 23.03.2005, Blaðsíða 1
HEKLA_Vikurfrettir021104.FH11 Tue Nov 02 12:47:23 2004 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K
������������������������
���������������
��������������
������������������
������������������
���������������������
12. tölublað •
26. árgangur
Miðvikudaguri
nn 23. mars 2
005
Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum
AÐSETUR: GRUNDARVEGUR 23 • 2. HÆÐ • 260 REYKJANESBÆR • SÍMI 421 0000 • WWW.VF.IS • FRÉTTAVAKT: 898 2222
Þriggja ungmenna frá Keflavík var leitað á hálendinu á mánudag. Þau höfðu lagt upp frá Dalvík og
ætluðu yfir hálendið á tveimur jeppum að
gerðinni Toyota Hi-Lux. Þegar þau komu
ekki fram á tilsettum tíma var farið að
óttast um þau.
Um 90 björgunarsveitarmenn á 23 bílum
og þyrla Landhelgisgæzlunnar fóru til leitar.
Það var síðan undir kvöld á mánudag sem
þyrlan fann annan bílinn fastan í krapa
en mannlausan. Skömmu síðar fundust
ungmennin í hinum jeppanum sem þá
var að verða eldsneytislaus við Mikluöldu
sunnan við Bláfell. TF-LIF, þyrla Landhelg-
isgæslunnar flutti fólkið til byggða. Ekkert
amaði að því. Þau höfðu orðið hráolíulaus,
eftir að hafa lent í erfiðri færð og fest sig.
Björgunarsveitir sóttu bílana og komu þeim
til byggða.
Ferðalangarnir báru sig vel við komuna til
Reykjavíkur. Þau heita Ragnar Þór Georgs-
son, tæplega tvítugur, Sesselja Antonsdóttir
og Sigurður Arnar Pálsson, bæði 19 ára.
Þau búa öll á Suðurnesjum.
Meðfylgjandi mynd var tekin úr þyrlu
Gæzlunnar af öðrum jeppanum.
ólkið komið til Reykjavíkur
Festust í krapa á hálendinu
Jeppi unga fólksins
fastur við Leppitungur.
Ljósmynd:
Landhelgisgæzlan
Þyrla og björgunarsveitir leituðu ungra Keflvíkinga:
Frönsk flugfreyja hjá Air France sem var á leið yfir vestur um haf á mánudagskvöld með Boeing 777 breiðþotu slasaðist illa um borð í þotunni, svo
nauðlenda varð í Keflavík. Fyrst átti að búa um meiðsl
hennar um borð í þotunni á flugvellinum. Þegar læknir
frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafði skoðað freyj-
una var hins vegar tekin ákvörðun um það að senda
hana á bráðamóttöku í Reykjavík vegna gruns um inn-
vortis blæðingar.
Flugfreyjan hafði rekið höfuðið í eitthvað þegar þotan
var stödd suður af landinu. Því var stefnan tekin á Kefla-
vík með 440 farþega um borð. Farþegaþotan hélt áfram
för sinni vestur um haf en flugfreyjan franska var lögð
inn á sjúkrahús í Reykjavík.
Nauðlenti með blæðandi flugfreyju
Sjúkrabifreið úr Keflavík
flutti flugfreyjuna á
sjúkrahús í Reykjavík.
Ljósmynd: Hilmar Bragi