Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.03.2005, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 23.03.2005, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 8 Akurskóli í Reykjanesbæ Fyrsta skóflustungan að nýrri og glæsilegri inni-sundlaug og vatnsgarði var tekin í síðustu viku. Það voru leikskólabörn frá Garða- seli, börn úr Holtaskóla og sundmenn úr sunddeild Kefla- víkur sem voru þess aðnjótandi að eiga fyrstu skóflustunguna. Athöfnin byrjaði á kynningu Árna Sigfússonar, bæjarstjóra, þar sem hann kynnti fyr ir gestum helstu þætti varðandi laugina. Þá var haldið út og var það viðeigandi að krakkarnir tóku fyrstu skóflustunguna í miklum kulda sem var þennan dag. Veður ætti ekki að vera vandamál í sundiðkun bæjarbúa með tilkomu innilaugarinnar. Eftir skóflustunguna var haldið inn í sundmiðstöð þar sem gestum var boðið upp á heita drykki og með því. Innilaugin verður í viðbyggingu við Sundmiðstöð Keflavíkur við Sunnubraut ina þar sem 50 metra innisundlaug og yfir- byggður vatnsgarður verður. Að- alverktaki við byggingu laugar- innar er Keflavíkurverktakar og eru áætluð verklok í mars 2006. Helstu þættir varðandi laugina eru: Laug in mun upp fylla all ar kröfur sem keppnislaug fyrir öll innanlandsmót, Norðurlanda- mót og alþjóðleg mót. Laugin er 15,5m á breidd, 6 brautir, 50m löng og 1,5 til 1,8m á dýpt. Í miðri laug er brú sem verður hægt að lyfta upp og þannig breyta lauginni í 25m keppnis- laug og þannig er einnig hægt að kenna tveimur bekkjum á sama tíma. Í grynnri enda laugar innar verða upptakanlegar botnein- ingar á um 200 fermetra svæði sem gerir laugina 1m djúpa og hentar því vel fyrir kennslu ungra barna. Búningsklefar innilaugarinnar verða innréttaðir í kjallara nú- verandi byggingar. Vatnagarður (Vatnsleikjasvæði) verður milli nýju innilaugar- innar og gömlu útilaugarinnar. Heildarkostnaður er áætlaður um 645 milljónir króna. Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur ákveðið að ráða Jónínu Ágústsdóttur s e m s k ó l a - stjóra Akur- skóla sem á a ð t a k a t i l starfa næsta haust. V i ð t ö l v i ð umsækjendur voru unnin í samvinnu við Kennaraháskóla Íslands en um þau sáu Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri, Árni Sigfússon bæjarstjóri og formaður fræðslu- ráðs og dr. Ingvar Sigurgeirsson. Eiríkur lýsti sig vanhæfan í einu viðtali þar sem umsækjandi var starfsmaður hans. Starfshóp- urinn lagði fram tillögur sínar fyrir fræðsluráð sem mælti með Jónínu. Fjórir bæjarráðsfull- trúar voru samþykktir ráðningu Jónínu, fulltrúar meirihlutans ásamt Guðbrandi Einarssyni, en Ólafur Thordersen vildi ráða Helga Arnarson í stöðuna. Bók- aði Ólafur undrun sína á ráðn- ingu Jónínu, þar eð Helgi hefði meiri reynslu og menntun. Jónína hefur lokið B.Ed námi við Kennaraháskóla Ís lands með stærðfræði og líffræði sem kjörsvið og Dipl. Ed. í stjórnun menntastofnana við sama skóla. Hún stundar áframhaldandi nám við KHÍ í vetur. Hún hefur starfað í Hjallaskóla og Salaskóla í Kópavogi nú síðast sem umsjónarkennari á yngsta stigi. Hún hefur jafn- framt starfað hjá Barnasmiðj- unni og við þýðingar og kynn- ingu á námsefni í LEGO sem kennsluefni í raungreinum. Eiginmaður Jónínu er Logi Sig- urfinnsson, framkvæmdastjóri Skíðasvæða höfuðborgarsvæð- isins og eiga þau þrjá drengi á aldrinum 2 - 16 ára. Gert ráð fyrir að Jónína taki til starfa 1. apríl nk. Jónína Ágústsdóttir ráðin skólastjóri 8 Ný 50 metra innisundlaug og vatnsleikjagarður í Reykjanesbæ: Innilaug sem uppfyllir allar kröfur

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.