Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.03.2005, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 23.03.2005, Blaðsíða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 8 Tekjuaukning um 25% hjá Bláa lóninu:stuttar F R É T T I R 8 Flugstöðin: VF -L JÓ SM YN D IR : O D D G EI R KA RL SS O N VF -L JÓ SM YN D : O D D G EI R KA RL SS O N Stjórn Flugstöðvar Leifs Ei-ríkssonar hf. samþykkti síðastliðinn miðvikudag að hraða svo sem kostur væri að stækka og breyta norður- byggingu flugstöðvarinnar í ljósi nýrrar spár um farþega- fjölgun á næstu árum. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins í gær. Gert er ráð fyrir fjárfestingum upp á allt að 4,5 millj arða króna á næstu tveimur árum. Svokölluð norðurbygging er hin upprunalega flugstöð sem tekin var í notkun árið 1987. Þar hefur mörgu verið breytt nú þegar í samræmi við fjölgun far- þega en betur má ef duga skal þegar fyrir liggur ný spá breska fyrirtækisins BAA Plc. frá því í janúar 2005 um að tvöfalt fleiri farþegar fari um flugstöð- ina árið 2015 en 2004, sem er 10% meira en BAA spáði 2001. Áformað er að umbylta skipu- lagi í norðurbyggingunni og stækka hana jafnframt. Raunar er fyrsta hluta þess verkefnis þegar lokið, sem var að stækka móttökusal og rými verslunar fyrir komufarþega. Stjórn Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar hf. (FLE) ætlar sem sagt að hraða undirbúningi að stækkun norðurbyggingar til suðurs um 6.000-7.000 fermetra til að auka við brottfararsvæði og rými fríhafnarverslunar, koma fyrir nýju flokkunarkerfi farangurs og rýmka um komu- farþega sem nálgast farangur sinn. Þetta er framkvæmd sem á að ljúka fyrir lok árs 2006. Þá verður lokið nú í ár að inn- rétta skrifstofur á 3. hæð húss- ins og flytja þangað starfsemi FLE, skrifstofuhald opinberra aðila og fleiri sem nú halda til á 2. hæð. Eftir það verður öll 2. hæðin lögð undir verslun og þjónustu fyrir brottfararfarþega. Við skipulagsbreytinguna í nú- verandi húsnæði, og stækkun norðurbyggingar til suðurs, tvö- faldast verslunar- og þjónustu- rýmið á 2. hæð flugstöðvarinnar og verður 7.700 fermetrar í stað 3.600 fermetra nú. Rekst ur flug stöðv ar inn ar stendur að langmestu leyti undir öllum þessum fjárfestingum og lánsfé að hluta. Álögur á far- þega og flugrekendur verða ekki auknar vegna þessa. Fram kom í ávarpi Gísla Guðmundssonar, stjórnarformanns FLE, á aðal- fundinum að rekstrarafkoma og fjármunamyndun félagsins sé góð og standi undir nauð- synlegum framkvæmdum. Fjár- festingar frá stofnun félagsins nemi um 6 milljörðum króna og verið fjármagnaðar nær al- veg úr rekstri. Starfsmenn Fríhafnar-innar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar felldu kjarasamning sem nýlega var gerður. Á kjörskrá voru 113 starfsmenn. 96 greiddu atkvæði, eða 85%. Já sögðu 33, eða 34,4%. Nei sögðu 59, eða 61,5%. Auðir og ógildir seðlar voru 4, eða 4,2%. Víkurfréttir á Netinu eru nú á tveimur aðskildum vefjum. Allt efni sem tengist Suðurnesjum verður framvegis á slóðinni www.vf.is en allt efni sem tengist Hafnarfirði, G a r ð a b æ og Álftanesi verður á slóð- inni www.vik- urfrettir.is G a g n a - grunnar hafa verið aðskildir og verða vefsvæðin tvö óháð hvoru öðru, nema hvað hægt verður að hoppa á milli vefjanna af sérstökum hnöppum. Einhver minniháttar óþægindi hafa skapast vegna þessarar breytingar. Umferð um vef Víkurfrétta hefur aukist mikið á síðustu misserum og fyrirsjáanlegur er enn meiri vöxtur með frekari breytingum sem fyrirhugaðar eru á næstu vikum og mánuðum. Vefurinn w w w. v f . i s á e f t i r a ð t a k a breytingum á næstu dögum. T.a.m. verður tekin í notkun öflug fasteignaleitarvél fyrir fasteignasölur á Suðurnesjum, svo eitthvað sé nefnt. Fleiri nýj- ungar eru væntanlegar á vefinn, sem verða kynntar þegar nær dregur. Nýjar verslanir verða opnaðar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á síðari hluta árs 2005 og fleiri bætast við 2006. Þetta er afrakstur forvals um verslun- arrekstur sem efnt var til í fyrra. Forval um verslunarrekstur var kynnt á Grand hóteli í Reykjavík í september 2004 og áhugi fyrir því reyndist afar mikill. Um 100 manns mættu til fundar og í kjölfarið var efnt til skoðunar- og kynnisferðar þátt- takenda um flugstöðvarbygginguna. Um 60 umsóknir bárust síðan um verslunarrekstur af ýmsu tagi og af þeim voru 30 valdar til frekari athugunar. Stjórnendur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. áttu fund með full- trúum allra fyrirtækjanna sem áttu þessar 30 umsóknir og fengu frá þeim viðskiptaá- ætlanir sem verið er að kanna frekar. Stefnt er að því að svara öllum umsækjendum fyrir lok maí og síðan hefst ferli eiginlegra samninga við þá sem valdir verða til að opna nýjar verslanir í flugstöðinni. Þetta forval um verslunarrekstur var á sínum tíma í biðstöðu í tvö ár vegna þess að þáverandi eigendur Íslensks markaðar töldu framkvæmdina brjóta gegn lögum og kærðu til samkeppnisráðs. Deilan fór fyrir dómstóla og var leidd til lykta með dómi Hæstaréttar í apríl 2004 sem staðfesti að forvalið stæðist fyllilega lög, hvort heldur varðaði valið sjálft, forsendur þess eða um- fang. Skömmu síðar skipuðust mál þannig að Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. keypti Ís- lenskan markað og tók við rekstri hans í júní 2005. Íslenskur markaður er nú rekinn sem dótturfélag FLE en aðeins tímabundið því yfirlýst stefna FLE er að fyrirtækin, sem samið verður við á grundvelli forvalsins frá í fyrra, taki við verslun með þær vörur sem nú eru seldar í Íslenskum markaði. Í fram- haldi af því verður rekstri Íslensks markaðar hætt og félagið látið heyra sögunni til. Samið um nýjar verslanir í Leifsstöð í sumar Ákveðið að hraða stækkun norðurbyggingar 8 Stjórn Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar: Felldu kjara- samninginn Víkurfréttir með tvo fréttavefi Á aðalfundi Bláa Lóns-ins hf sem haldinn var nýlega kom fram, að rekstur félagsins gekk vel á síðasta ári. Tekjur Bláa Lóns- ins hf voru 825 milljónir árið 2004 sem er 25% vöxtur frá fyrra ári. Met var enn og aftur sett hvað varðar fjölda gesta heilsulindar en á síðasta ári heimsóttu 354 þúsund gestir Bláa Lónið - heilsulind. Rekstrarafkoma fyrir afskriftir og fjármagnsliði s.k. EBITDA batnaði um 46% milli ára og var 128 milljónir króna. Veltufé frá rekstri var 92,6 milljónir króna, sem er rúmlega 60% hækkun frá fyrra ári. Hagnaður ársins var 86 milljóna króna eftir skatta. Rekstraráætlun ársins 2005 gerir ráð fyrir að gestir heilsu- lindar verði 370.000, rekstrar- tekjur aukist um 20% frá fyrra ári og að velta félagsins nái einum milljarði króna. Töluverðar breytingar urðu á hluthafahópi Bláa Lónsins hf á á síðasta ári en Hitaveita Suð- urnesja hf er enn sem fyrr kjöl- festufjárfestir í félaginu með rúmlega þriðjungs eignarhlut. Á aðalfundinum voru Eðvarð Júlíusson, Júlíus J. Jónsson og Albert Albertsson endurkjörnir í stjórn en nýir stjórnarmenn eru Helgi Magnússon og Úlfar Steindórsson. Eðvarð var kjör- inn formaður á fyrsta fundi nýrrar stjórnar, en hann hefur verið stjórnarformaður Bláa Lónsins hf frá stofnun félagsins árið 1992. 86 milljóna kr. hagnaður af Bláa lóninu - Aðsóknarmet slegið. 354.000 gestir í fyrra. Tekjurnar 825 milljónir.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.