Víkurfréttir - 23.03.2005, Blaðsíða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is, postur@vf.is
Þorgils Jónsson (fréttir), sími 421 0003, gilsi@vf.is
Bjarni Halldór Lúðvíksson (sport), sími 421 0004, bjarni@vf.is, sport@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0001, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 421 0013, anita@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og vikurfrettir.is
Stefanía Jónsdóttir, sími 421 0012, stebba@vf.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 1010, aldis@vf.is
8 RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
©FRÉTTASÍMINNSÓLARHRINGSVAKT898 2222
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
IR
: B
JA
RN
I H
AL
LD
Ó
R
LÚ
Ð
VÍ
KS
SO
N
Há tíð leg at höfn fór fram í síðustu viku þeg ar Leik skól inn
Holt í Innri-Njarðvík hélt upp
á 20 ára starfsafmæli. Við at-
höfnina var formlega opnuð
ný 293 fermetra viðbygging við
leikskólann, og er leikskólinn
nú hátt í 600 fermetrar. Í við-
byggingunni eru tvær deildir
fyrir yngri börnin, aðstaða
fyrir starfsfólk og glæsilegur
listaskáli. Leikskólinn getur nú
annað betur eftirspurn í leik-
skólann og bættust við 46 börn
eftir að viðbyggingin opnaði
og eru nú 92 börn í heildina á
leikskólanum.
Kristín Helgadóttir, leikskóla-
stjóri á Holti, segir það vera frá-
bært að fá listaskálann, þar sem
börnin vinni mikið að sköpun. Í
listaskálanum er starfandi starfs-
maður sem vinnur með börn-
unum að skapandi list.
Krakkarnir á leikskólanum stálu
senunni á afmælishátíðinni og
fluttu tvö lög við góðar undir-
tektir viðstaddra. Þau kórónuðu
svo daginn með að færa Krist-
ínu mynd af merki leikskólans
sem gerð er úr mósaík. Mynd-
ina unnu þau Kristján Þórarinn,
Eiríkur Svan, Alma, Eydís Ósk
og Ester ásamt Söru Dögg starfs-
manni listaskálans. Myndin er
gerð úr mósaík og sýnir glað-
leg dansandi börn. Það er við
hæfi að merki leikskólans skuli
vera glaðleg dansandi börn því
tónlist skipar mikinn sess í leik-
skólanum.
Systrafélagið í Njarðvík á stóran
sess í sögu leikskólans. Þær eru
frumkvöðlar að viðurvist skól-
ans því þær byggðu hann upp
og gerðu fokheldan árið 1978
og létu húsið í hendur bæjarins.
Þær stöllur hafa ávallt stutt leik-
skólann með gjöfum og komu
meðal annars færandi hendi nú
á afmælinu.
8 Leikskólinn í Innri Njarðvík:
Hátíð á Holti
Krakkarnir syngja lög fyrir viðstadda.
Kristín, leikskólastjóri, tekur við mósaík listaverkinu frá krökk-
unum úr listaskálanum og Söru Dögg starfsmanni listaskálans.
Þær Guðrún Ester Aðalsteinsdóttir, formaður systrafélagsins og
Kristín Sveinsdóttir færa Kristínu gjöf.
8 Kallinn á kassanum
KALLINN VAR ALVEG á nálum yfir leik Keflvík-
inga og ÍR-inga á mánudagskvöld. Kallinn var
ekki viss hvort sínir menn myndu ná að hrista af
sér slenið úr fyrsta leiknum en það gerðu þeir svo
sannarlega. Flott hjá ykkur strákar.
ÞAÐ ER MIKIÐ gleðiefni að nú skuli innisund-
laug og leikaaðstaða rísa við sundmiðstöðina að
Sunnubraut. Sundfólkið okkar er með því besta
á landinu og á það fyllilega skilið að æfa við bestu
aðstæður. Aldrei að vita nema að Kallinn fari að
fjölga sundferðunum sínum upp úr þessu.
MIKIÐ MILDI var þegar krakkarnir sluppu þarna
ofan af öræfum. Kallinum var hætt að standa á
sama. Daglega berast manni neikvæðar fréttir
utan úr heimi en þetta voru gleðitíðindi að börnin
skildu skila sér heil á húfi til baka.
VEÐRIÐ ER FARIÐ AÐ SKÁNA og Kallinn er að
spekúlera í því að fara að hreinsa grillið fyrir kom-
andi sumar og hver veit nema að Kallinn verði
með einhverjar stórsteikur á teinunum yfir hátíð-
arnar. Kallinum finnst voðalega notalegt að lesa
nokkra stafi yfir páskana og ekki skemmir fyrir að
hafa smá súkkulaðimaul meðferðis.
KALLINN HEFUR VERIÐ hálf utanveltu síðustu
vikurnar og ekki náð að koma pistlum sínum í
blaðið á réttum tíma. Úr því verður bætt.
GLEÐILEGA PÁSKA! Kveðja, kallinn@vf.is
Kallinn á nálum yfir körfunni