Víkurfréttir - 09.06.2005, Blaðsíða 25
VÍKURFRÉTTIR I 23. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 9. JÚNÍ 2005 I 25
Utandeildin í knatt-spyrnu er farin af stað og þetta sum-
arið taka tvö lið frá Reykja-
nesbæ þátt, það eru Geir-
fugl arn ir og nýtt lið, FC
Keppnis.
Bæði liðin hafa leikið tvo
leiki, FC Keppnis sigraði
í sínum fyrsta leik og gerði
jafntefli við Kóngana í síðasta
leik. Þess má geta að milli
stanganna hjá þeim var ekki
ómerkari maður en Ólafur
Gottskálksson, fyrrum at-
vinnu- og landsliðmaður.
Þeir eru með stóran og góðan
hóp sem hefur leikið saman
um hríð en tafla nú fram
keppnisliði í fyrsta sinn.
Geirfuglarnir eru í efri deild
utandeildarinnar eftir fræki-
lega frammistöðu í fyrra-
sumar, en hafa ekki hafið
leiktíðina vel og tapað báðum
sínum leikjum. Þeir stefna
hins vega a að styrkja sig
frekar og tryggja sig um mið-
bik deildarinnar. Næsti leikur
þeirra er um helgina.
Tvö
utandeildarlið í
Reykjanesbæ
Sy s t k y n i n H a r a l d u r Freyr og Bryndís Guð-mundsbörn standa svo
sannarlega í stórræðum þessa
dagana, en Bryndís var í silfur-
liði Íslands í körfuknattleik á
Smáþjóðaleikunum á meðan
Haraldur lék sinn fyrsta lands-
leik á móti Ungverjalandi um
helgina.
Víkurfréttir litu inn hjá Guð-
mundi Sig hvats syni, föð ur
þeirra, og og spurðum hvað
þyrfti til að ala upp íþróttafólk í
fremstu röð.
Metnaður skiptir
máli
„ Þ a u h a f a b æ ð i
metnað fyrir því sem
þau gera og vilja til að
ná langt,” segir Guð-
mundur sem sjálfur
þótti liðtækur knatt-
spyrnumaður á sínum
tíma. Metn að ur inn
virðiast vera að skila sér
því Haraldur
er nú at-
vinnu-
maður í Noregi og Bryndís er
ein efnilegasta körfuknattleiks-
kona landsins.
Möguleikar körfuboltakrakka
til að komast í atvinnumennsku
eru mun minni en í fótbolt-
anum og snýst útrás þeirra að-
allega um að komast í nám til
Banda ríkj anna,
en að sögn Guð-
mund ar hef ur
skóli nokkur í
Texas sýnt Bryn-
dísi áhuga ásamt
stöllum hennar
Maríu Ben Er-
lings dót ur og
Helenu Sverris-
dóttur.
Þ a u h a f a
stundað
íþróttir frá unga aldri þar sem
Har ald ur æfðí fót bolta frá
blautu barnsbeini, en Bryndís
hóf hins vegar sinn feril í sundi
áður en hún færði sig yfir í körf-
una 12 ára gömul. Yngri systir
þeirra, Íris, er einmitt efnileg
sundkona og í afrekshópi ÍRB
þannig að fjöskyldan á ef til vill
eftir að fá enn einn toppíþrótta-
mann á landsvísu.
Erfiðara að fylgjast með
körfunni
Guð mund ur hef ur s tut t
börn sín með ráðum og dáð í
gegnum árin og seg ist hafa
gaman af því að fylgjast með
leikjum hjá krökkunum. „Það
er samt erfiðara að fylgjast með
Bryndísi í körfunni því spennan
er svo mikil. Oft þoli ég ekki
við og þarf að kíkja í kaffi til
Nonna í Íþróttahúsinu, sérstak-
lega ef lítið er eftir og spennan
í hámarki. Það er þannig séð
auðveldara að fylgjast með fót-
boltanum því þar eru hlutirnir
lengur að gerast,” segir Guð-
mundur að lokum og brosir.
Landsliðspabbinn í Keflavík
-Guðmundur Sighvatsson á tvö börn í landsliðum Íslands
Íþróttir eru stór hluti af heimlislífinu hjá fjölskyldu Guðmundar. Tvö
eldri börn hans eru í fremstu röð í fótbolta og körfubolta.
Erla Þor steins dót ir og Erla Reynisdóttir munu að öllum líkindum ekki
leika með kvennaliði Grinda-
víkur á komandi leiktíð. Þær
gengu til liðs við Grindavík
fyrir réttu ári og léku stórt hlut-
verk í silfurliði ársins í deild
og bikar.
Í samtali við Víkurfréttir sagði
Erla Reynisdóttir að framhaldið
væri óákveðið hjá henni þar
sem hún væri ekki einu sinni
ákveðin í að halda áfram að
spila næsta vetur. „Ég tek þá
ákvörðun í haust og ef ég finn
löngunina aftur kem ég til baka.
Ég veit hins vegar ekki hvar ég
mun leika ef svo verður.” Erla
bætti því við að veturinn með
Grindavík hafi verið erfiður en
lærdómsríkur. Árangurinn hafi
í sjálfu sér ekki verið slæmur
en miklar væntingar hafi verið
gerðar.
Enn á eftir að ganga frá þjálfara-
málum kvennaliðsinsfyrir næsta
ár, en Henning Henningsson,
sem þjálfaði liðið síðasta vetur,
kemur til greina sem og aðrir.
Darrel Lew is mun e k k i l e i k a m e ð körfuknattleiksliði
Grindavíkur næsta vetur,
en hann hefur verið í þeirra
herbúðum síðustu þrjú ár.
Lewis fékk íslenskan ríkis-
borgararétt fyrr á þessu ári
og hefur heyrst að hann sé
að leita fyrir sér á erlendum
vettvangi, en íslensk lið hafa
einnig sýnt honum áhuga.
Brotthvarfa hans er mikil
blóðtaka fyrir Grindavík,
en þeir segjast þó ekki láta
deig an síga og hyggj ast
styrkja hópinn fyrir næsta
vetur. Guðlaugur Eyjólfsson
hefur m.a. snúið aftur eftir að
hafa hætt að leika með liðinu
á miðri leiktíð í fyrra.
Lewis ekki með
Grindavík næsta
vetur
Óvissa með Erlurnar
Sport@vf.is
Zeyer kominn til
Grindavíkur
Þjóðverjinn Michael Z e y e r v e r ð u r í l e i k m a n n a h ó p i
Grindvíkinga í næsta leik.
Leikmaðurinn er hokinn
af reynslu, meðal annars
með þýsku stórl iðunum
Stuttgart og Leverkusen
og á eftir að styrkja hóp
Grindavíkur verulega fyrir
átökin sem eru framundan í
Landsbankadeild karla.
M
ynd/AalesundFK