Víkurfréttir - 30.06.2005, Blaðsíða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Pizzutilboð nr.1
12” pizza m/2 álegg
+1/2 ltr. Coke kr. 1.250,-
Pizzutilboð nr.2:
16” pizza m/2 álegg
+2 ltr. Coke kr. 1.600,-
Hádegistilboð:
9” pizza m/2 álegg
og 1/2 ltr. Coke í dós
kr. 850,-
Kjúklingasalat + 1/2
ltr. Toppur eða Coke
Light kr. 1.050,-
Hamborgari, franskar,
sósa og 1/2 ltr. Coke í
dós kr. 750,-
eingöngu
sótt eða
í sal
TILBOÐ
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Samhæfni dc 7110.ai 6/29/05 1:32:16 PM
Liðs menn ÍRB sigr uðu á Ald urs flokka meist-ara móti Ís lands með
miklum yfirburðum, en mótið
fór fram á Akureyri um síðast-
liðna helgi.
Liðsmenn sigruðu hvorki meira
né minna en 43 greinar af þeim
90 sem keppt var í og stórbættu
einnig stigametið í stigakeppni
félaga þar sem ÍRB sigraði með
fáheyrðum yfirburðum og hlaut
1718 stig, næsta lið, Ægir, var
með 1051 stig.
Sundmennirnir sýndu allar
sínar bestu hliðar um helgina og
eru eftirfarandi tölur til vitnis
um það. Liðsmenn bættu sinn
fyrri árangur í yfir 90% tilvika
og sigraði ÍRB í 43 greinum á
mótinu, hlaut 31 silfurverðlaun
og 21 bronsverðlaun.
Af þessum 43 sigrum náðust
10 í boðsundum (18 boðsunds-
greinar á mótinu). Meyjasveit
ÍRB setti 2 aldursflokkamet í
4*50 m. skriðsundi og 4*50 m.
fjórsundi.
Eftirtaldir einstaklingar sigruðu
í stigakeppni einstaklinga: Ingi
Rúnar Árnason í sveinaflokki,
Soffía Klemenzdóttir í meyja-
flokki, Gunnar Örn Arnason
í drengjaflokki og Guðni Em-
ilsson í piltaflokki. Hlaut ÍRB
þannig 4 titla af 6 sem í boði
voru.
Aðrir sundmenn sem urðu ald-
ursflokkameistarar í einstaklings-
greinum voru þau Hermann
Bjarki Níelsson, María Halldórs-
dóttir, Rúnar Ingi Eðvarðsson,
Svandís Þóra Sæmundsdóttir,
Kristinn Ásgeir Gylfason, Bjarni
Ragnar Guðmundsson, Hafdís
Ósk Pétursdóttir, Erla Dögg Har-
aldsdóttir og Helena Ósk Ívars-
dóttir.
Af ofangreindu má sjá að yfir-
burðir ÍRB voru svo sannarlega
einstakir á þessu sterkasta ung-
lingamóti sem haldið er árlega
á Íslandi.
Guðmundur
Steinarsson,
f r a m h e r j i
Kefla vík ur,
var va l inn
í úr va l s l ið
Landsbanka-
deildar karla
fyrir frammistöðu sína í
fyrstu 6 umferðum Íslands-
mótsins.
Kemur valið fáum á óvart
því Guð mund ur hef ur
leikið afbragðsvel í sumar
og hefur verið lykilmað-
urinn í liði Keflavíkur. Þá
hefur hann sem fyrirliði séð
um að keyra lið sitt áfram
úr þeim hremmingum sem
liðið lenti í í vor og eru þeir
nú í ágætismálum í deild-
inni. Guðmundur hef ur
skorað 5 mörk í Lands-
bankadeildinni og 2 til við-
bótar í Visa-bikarnum.
Keflvíkingar mæta liðinu
FC Etzella Ettelbrück frá
Lúxemborg í forkeppni
UEFA-keppn inn ar, en
dregið var í dag.
Ásmundur Friðriksson,
framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildarinnar sagði
sína menn ánægða með
drátt inn, enda feli hann
ekki í sér langt ferðalag
(FH fer til Azerbaidzjan) og
möguleikar þeirra gegn lið-
inu verða að teljast góðir.
Leik ið verður heima og
heiman 14. og 28. júlí nk.
og verður fyrri leikurinn
hér heima og sá seinni úti.
Yfirburðir ÍRB á AMÍ
ÍRB-krakkarnir stóðu sig frábærlega á AMÍ.
UEFA-keppnin:
Kef til Lux
Gummi Steinars í
úrvalsklassa
SPORT
Molar
Sann kall að ur topp-slagur verður háður á Njarð vík ur velli
annað kvöld þegar Njarð-
víkingar taka á móti Leikn-
ismönnum.
Leiknir er í fyrsta sæti 2.
deildar karla í knattspyrnu
en Njarðvíkingar fylgja þeim
fast á hæla í öðru sætinu
með 14 stig, Leiknismenn
hafa 16 stig en Njarðvíkingar
eru með hagstæðari marka-
tölu. Sigur í leiknum gæti
því komið Njarðvíkingum í
efsta sæti deildarinnar. Leik-
urinn hefst kl. 20:00.
Toppslagur
í Njarðvík á
morgun
VF-Sport
Ná g r a n n a l i ð i n G r i n d av í k o g Ke f l av í k m æ t a s t í kvöld í Landsbankadeild karla. Leikurinn fer fram á Keflavíkurvelli og er víst að ekkert verður gefið eftir.
Gengi liðanna í sumar hefur verið ólíkt þar sem Keflavík er í 3. sæti
deildarinnar, en Grindavík er í því 7. eftir fremur brösuga byrjun.
Bæði liðin sóttu 4 stig í síðustu viku með þar sem þau lögðu Fram á
heimavelli, en Keflavík gerði auk þess jafntefli við Fylki og Grindavík
við Þrótt.
Grindavík vann á Keflavíkurvelli í fyrra og verður fróðlegt að sjá
hvort þeir endurtaki leikinn.
Nágrannaslagur á
Keflavíkurvelli