Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.06.2005, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 30.06.2005, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I 26. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 30. JÚNÍ 2005 I 13 Fimmtudaginn 9. júní lögðu Víkurfréttir upp í hringferð um landið til þess að dreifa sumarefni sínu á alla helstu ferða- mannastaði Íslands. Var Jón Björn Ólafsson, starfsmaður Víkurfrétta, fenginn til verksins og lánaði Hekla í Reykjanesbæ Volkswagen Caddy til fararinnar. Ferðin hófst við höfuðstöðvar Prentmets í Reykja- vík og Caddyinn kjaftfylltur af kössum með Reykjanes Map 2005-2006, Ferðahandbók Víkur- frétta 2005 og Enjoy more of Reykjanes en þessar þrjár útgáfur eru á jafn mörgum tungumálum, íslensku, ensku og þýsku. Fyrsti viðkomustaðurinn var Litla Kaffistofan og síðan herjað á suðurlandsundirlendið allt fram að Vík í Mýrdal. Gisti Jón Björn að Höfðabrekku í Vík og fékk þar höfðinglegar móttökur og eiga staðarhaldarar þar hinar bestu þakkir skildar fyrir velvild sína. Snemma föstudags var haldið af stað áleiðis að Kirkjubæjarklaustri og þaðan í Jökulsárlón. Staldraði Jón Björn við lónið og smellti nokkrum vel völdum myndum af sem hægt er að skoða í myndasafni inni á www.vf.is. Frá Jökulsárlóni lá leiðin á Höfn í blíðskaparveðri. Laust fyrir kvöld- mat náði Jón Björn inn á Egilsstaði en tók skottúr á Seyðisfjörð og svo aftur inn á Egilsstaði og var þar yfir nóttina. Á laugardeginum var ekið beina leið að Mývatni og þaðan inn á Akureyri með myndapásu við Goðafoss. Um hádegisbil varð Bautinn fyrir val- inu og sviku þeirra landsfrægu hamborgarar ekki svangan ferðalanginn. Með grátstafinn í kverk- unum yfir því að þurfa að kveðja veðurblíðuna á Akureyri staldrað Jón Björn við í Varmahlíð og hélt svo að Blönduósi. Þar tók Magnús Hreins- son, starfsmaður Hótel Blönduóss, við ferðabæk- lingum Víkurfrétta og líkaði honum vel. Frá Blönduósi lá leiðin til Reykjavíkur með stuttu stoppi í Borgarnesi og allmargir kílómetrar að baki þennan langa laugardag. Sunnudagurinn fór svo í það að breiða út ferðablöð Víkurfrétta um Snæfellsnesið en þá er það einungis Vestfjarða- kjálkinn sem er óplægður en það stendur til bóta. Sérlega þakkir fær Hekla í Reykjanesbæ fyrir lánið á Caddyinum svo og staðarhaldararnir að Hótel Höfðabrekku í Vík ásamt öllum þeim er lögðu Víkurfréttum lið við útgáfu á þessum sumar- blöðum um Reykjanesið. 2218 kílómetrar eru að baki og ættu innlendir sem og erlendir ferðamenn um land allt að geta nálgast greinargott efni um Reykjanesið á næstu upplýsingamiðstöð. 2218 km ferðalag með ferðaútgáfu Víkurfrétta Víkurfréttir fóru stóran hring um Ísland: Jón Björn Ólafsson kominn að Seljalandsfossi og strax farinn að velta því fyrir sér hvar eigi næst að stoppa. Við sýslumörk Austur-Skaftafellssýslu. Ferðaútgáfunni stillt upp við sýslusteininn góða í blíðskaparveðri. Á Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Þarna hafa Hollywood-myndir verið teknar í gegnum árin. Nú er myndað á hrjóstrugu Reykjanesinu. Á Seyðisfirði. Húsin undir hlíðinni og ennþá talsverður snjor í fjöllunum. Goðafoss í Bárðardal er eins og gamli vitinn á Garðskaga, endalaust myndaefni. Stemmningsmynd frá Djúpavogi. Ungir menn á Garðskaga með ferðaútgáfuna. Okkar maður við upphaf ferðar á Caddy frá Heklu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.