Víkurfréttir - 30.06.2005, Blaðsíða 11
VÍKURFRÉTTIR I 26. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 30. JÚNÍ 2005 I 11
Ás dís Helga dótt ir úr Sand gerði lét draum sinn rætast er hún gekk
á Keili ásamt foreldrum sínum
og Elínu systir sinni. Ásdís
er fötluð, einhverf og þroska-
heft, og hefur lengi borið þann
draum í brjósti að ganga á
Keilir. Í nánast hvert sinn er
hún hefur ekið Reykjanesbraut-
ina hefur hún spurt foreldra
sína, „hvenær eigum við að
fara.“
Þar sem fætur Ádísar hafa ekki
alltaf verið í sem bestu ásig-
komulagi, eftir ökklabrot og
tvær aðgerðir á hné, fyrr en nú
þá var ákveðið að ráðast á Keili
og „klífa“ hann. Gangan var
löng og ströng yfir urð og grjót
og afskaplega bratt upp í mót.
Hávaðarok og nístingskuldi var
á leiðinni og jókst eftir því sem
ofar dró en Ásdís lét það ekkert
á sig fá og arkaði upp eins og
herforingi. Næst verður tekist á
við Esjuna og síðan er náttúru-
lega Mt. Everest eftir. Elín systir
hennar var að fara upp í annað
sinn og hljóp nánast alla leið.
Viðhorfskönnun Reykjanesbæjar
Esjan og Everest næst hjá Ásdísi!
Systurnar Elín og Ásdís á toppi
Keilis. Næsta markmið þeirra er að
ganga á Esjuna.
Reykja nes bær og lög-reglan í Keflavík gerðu viðhorfskönnun meðal
íbúa 20. apríl til 6. maí 2005
þar sem kannað var viðhorf
íbúa til þeirrar þjónustu sem
veitt er af þeirra hálfu.
Könnuninni er ætlað að bæta
þjónustu við íbúa og er áætlað
að gera sambærilegar kannanir
með reglulegu millibili til þess
að leggja mat á viðhorf íbúa til
þeirrar þjónustu sem veitt er.
Þeir íbúar sem hafa áhuga á að
taka þátt í stuttum t-póstkönn-
unum geta skráð sig í Netsveit
Reykjanesbæjar á upplýsinga-
vefnum: reykjanesbaer.is en þar
er hægt að velja málaflokka eftir
áhugasviði.
Verið er að vinna úr niður-
stöðum könnunar innar en
dregið hefur verið úr nöfnum
þátttakenda sem svöruðu könn-
uninni rafrænt.
Vinningar voru eftirtaldir:
1. vinningur: Árskort í Sund-
miðstöðinni við Sunnubraut.
2. til 3. vinningur: Helgardvöl
(utan orlofstíma) í sumarhúsi
STFS.
4. til 6. vinningur: 30 daga kort
í Sundmiðstöðinni við Sunnu-
braut.
7. til 10. vinningur: 10 daga kort
í Sundmiðstöðinni við Sunnu-
braut.
11. til 20. vinningur: Árskort í
Bókasafn Reykjanesbæjar.
Vinningshafar:
1. Svanbjörg K. Magnúsdóttir
2. Ásthildur Árnadóttir
3. Irena Liepina
4. Ragnhildur Ragnarsdóttir
5. Oddný Björgólfsdóttir
6. Katrín Halldórsdóttir
7. Sóley Ragnarsdóttir
8. Anna Kristjana Egilsdóttir
9. Gísli Grétarsson
10. Ingibjörg Óskarsdóttir
11. Þröstur Ástþórsson
12. Hallgrímur Færseth
13. Auður Sveinsdóttir
14. Eygló Þorsteinsdóttir
15. Rannveig Sigurðardóttir
16. Jane Petra Gunnarsdóttir
17. Hrefna Guðný Tómasdóttir
18. Thelma Björk Jóhannes-
dóttir
19. Ragnheiður Ragnarsdóttir
20. Aníta H. Björnsdóttir
Verðlaunahafar í
viðhorfskönnun
Ásdís kannar
bestu
uppgönguna