Víkurfréttir - 30.06.2005, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I 26. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 30. JÚNÍ 2005 I 19
ö
✝
��������������������������
������������������������������������������
������� ��������
����������������������
�������������������
������������������������������������
�������������������������������
��� ����������������������������������������������
������������������������������������������������������
����������������������������������������������� �������
�����������������������������������������������������������
������������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������
���������������
Vegna greinar Atla Más Gylfa son ar í Vík ur-fréttum fimmtudaginn
23. júní s.l. er vert að koma á
framfæri eftirfarandi athuga-
semdum.
Greinin byrjar á að leigubifreiða-
stjórar séu ósáttir við aðila sem
koma óorði á stéttina, og er þar
örugglega átt við þann leigubif-
reiðastjóra er lenti í því atviki
sem er orsök þessa máls, við
erum einnig mjög ósáttir við
það fólk er álítur að það geti
gengið um okkur sem eitthvert
undirmálsfólk er það þarf á þjón-
ustu okkar að halda, og ausið
skömmum og svívirðingum yfir
okkur, er aðrir „mannasiðir“
eiga betur við.
Byrjun greinarinnar er frásögn
konu þeirrar er í hlut á, og til-
raun hennar að gera lítið úr bif-
reiðastjóranum og sýna hvers-
konar ruddi hann sé.
Frásögn bif reiðastjórans er
eftirfarandi: Er ég kem að flug-
stöðinni bíður þar lítill hópur
fólks er vanhagaði um þjónustu
okkar, kona kemur að bifreið
minni og kveðst vera búin að
bíða í 20-30 mínútur og þurfa
að komast á FlugHótel í Kefla-
vík, einnig kom þar að karl-
maður er kvaðst þurfa að kom-
ast til Reykjavíkur og spurði
hvort hann gæti ekki deilt bif-
reiðinni með konunni, ekki
vildi konan fallast á það, bif-
reiðastjórinn benti henni á að
það væri iðulega gert í tilfellum
sem þessum og varð það úr.
Einnig voru þarna tveir aðilar
í viðbót er þurftu að komast á
FlugHótel og gátu fengið far
með bifreiðinni, en það aftók
konan með öllu og vændi bif-
reiðastjórann um græðgi, dóna-
skap og lélega þjónustu. Á leið-
inni að Flughóteli tuðaði hún
um þessa annmarka bifreiða-
stjórans og hvers vegna bifreiða-
stjórar úr Reykjavík mættu ekki
taka vinnu við flugstöðina. Er
að FlugHóteli kom bauðst hún
til að greiða fyrir ferðina, en var
téð af hinum farþeganum að
þetta væri bara í leiðinn, þannig
að konan greiddi ekkert. En þess
er vert að geta og blaðamann-
inum var margsagt, en hann ein-
hverra hluta vegna greindi ekki
frá, að þessi kona var búin að
panta bifreið á stöð okkar, að-
eins fyrir nokkrum mínútum og
var hann á leiðinni til hennar,
en hún lét ógert að geta þess við
bifreiðastjórann, þannig að hún
var vísvitandi að taka bifreið
sem hún hlaut að gera sér grein
fyrir að var ekki hennar, heldur
jós skömmum og svívirðingum
og vændi bifreiðastjórann um
lélega mannasiði, en hvar voru
hennar?
Á þessari frásögn sést að frásagn-
irnar eru ekki alveg eins. Blaða-
maður segir Bergþóru á Flughót-
eli staðfesta að saga konunnar sé
eins og blaðið greinir frá.
Ég held að ég geti fullyrt að bif-
reiðastjórar á stöð okkar, Öku-
leiðum, hafi ekki neitað fólki
um akstur til Keflavíkur eða
Varnarstöðvar, enda hefi ég
brýnt fyrir þeim að gera það
ekki, og hef ekki þurft sem
stöðvarstjóri að skamma neinn
enn, en ég veit að sumir „vina“
okkar hinumegin hafa verið
kældir niður í nokkra daga, en
vonandi er það liðin tíð.
Steinþór á Hótel Keflavík segir
að það sé löngu orðið tímabært
að sameina leigubifreiðastöðv-
arnar hér í bæ, og ef til vill er
það rétt hjá honum og til að
upplýsa fólk hér í bæ um þau
mál, vil ég upplýsa að við á Öku-
leiðum og þá ef til vill ég mest,
sem hefi haldið því fram. Það
hafa verið haldnir margir fundir
að okkar frumkvæði í gegnum
tíðina, bæði hér heima og inni
í Samgönguráðuneyti og ávallt
strandað á mönnum Aðalstöðv-
arinnar að svo gæti orðið.
Það er rætt um sameiningu Suð-
urnesjasvæðisins við Reykjavík
1. október næst komandi og lýst
áhyggjum á þeirri ráðstöfun. Ég
hef þá trú að það sé full ástæða
að hafa áhyggur. Ég hefi fengið
það staðfest í Samgönguráðu-
neytinu að þetta sé gert að kröfu
ferðaþjónustunnar.
Atvik sem þetta við flugstöðina,
lýsa fyrir mér eingöngu hroka
og frekju þessara viðkomandi
konu, en hún er ekki sú eina
sem hefir látið vandamál sín
bitna á okkur í gegnum tíðina.
Við erum ekki búnir að gleyma
Sleip is-verk fall inu hér við
flugstöðina, þá voru margir til-
búnir, bæði hér í bæ og annars
staðar, að tjá sig um hverskonar
villimenn við værum og glæp-
samlegt samráð við hefðum
í frammi til að féfletta fólk er
þyrfti að nota okkur. Ég geri
mér ekki vonir um að þetta sé
síðasta atlagan.
Magnús Jóhannsson
Stöðvarstjóri bifreiðastöðvar-
innar Ökuleiðir Taxi-Keflavík.
Leigubifreiðar við Flugstöðina
Nemendur í Vinnuskóla Reykjansbæjar taka í sumar þátt í nám-
skeiðinu Hugsað um barn í
samvinnu við fjölskyldu- og fé-
lagsþjónustu Reykjanesbæjar.
Nemendum í 9. og 10. bekk
býðst að taka þátt í námskeið-
inu og taka þau með sér heim
yfir helgi barn sem þau þurfa
að hugsa um. Þarfir „barns-
ins“ eru svipaðar og hjá unga-
börnum en ekkert barn er þó
eins. Nemendur skila börn-
unum í lok helgar og í fram-
haldi fá þau fræðslu um kyn-
líf og barneignir. Verkefnið
er styrkt af Forvarnarsjóði Ís-
lands.
Bláa lón ið hf. hef ur fest kaup á Hreyfingu - heilsurækt. Á heima-
síðu heilsulindarinnar segir
að kaupin skapi báðum fyr-
irtækjum aukin tækifæri til
vaxtar á sviði heilsu og hreyf-
ingar. Þó gegna fyrirtækin
forystuhlutverki hvort á sínu
sviði.
Ágústa Johnson mun áfram
gegna starfi fram kvæmda-
stjóra Hreyfingar en hún hefur
verið framkvæmdastjóri allt
frá stofnun fyrirtækisins árið
1998. Grímur Sæmundsen,
framkvæmdastjóri Bláa Lóns-
ins, verður stjórnarformaður
Hreyfingar.
Grímur sagði í samtali við Vík-
urfréttir að Bláa lónið stefndi
að því að efla markaðsstarf
beggja fyrirtækjanna með nánu
samstarfi. Uppi væru áætlanir
um að byggja heilsulindarhótel
með góðri aðstöðu til hreyf-
ingar og myndi þessi fjárfesting
nýtast vel í tengslum við það.
„Samstarfið skapar tækifæri
til að samþætta þjónustu og
efla þannig enn frekar stöðu
fyrirtækjanna á sviði heilsu og
hreyfingar, en saman eru þau
með á annan milljarð króna í
veltu og 150 starfsmenn,“ sagði
Grímur.
„Við höfum áhuga á því að
nýta þann mögu leika sem
felst í viðskiptavinahópi Hreyf-
ingar en um er að ræða mjög
öflugan hóp. Bláa lónið mun
vonandi geta fært viðskipta-
vinum ákveðin fríðindi, hvort
heldur sé út frá Hreyfingu eða
heilsulindinni. Þetta eru fyrir-
tæki sem eiga mjög vel saman
og vinna að miklu leyti á
sama sviði,“ sagði Grímur um
kaupin.
Ágústa getur með sinni þekk-
ingu stutt uppbyggingu Bláa
lónsins enn frekar en Grímur
sagði að allt væri opið varðandi
frekari stækkun Bláa Lónsins
en þetta er í fyrsta sinn sem fyr-
irtækið fjárfestir á þennan hátt.
Verið væri að líta í kringum
sig varðandi frekari útvíkkun
á starfseminni og ekkert því
til fyrirstöðu að kaupa erlend
fyrirtæki sem væru með tengda
starfsemi.
Magnús Jóhannsson, stöðvarstjóri Ökuleiða skrifar:
Bláa lónið hf.
kaupir Hreyfingu
Nemendur taka þátt
í að hugsa um barn
Viðskipti / mannlíf
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222