Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.08.2005, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 11.08.2005, Blaðsíða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ������ ����������������� ������������� ������������������������� ��������������������������������������� ��������������������������� ��������������� ��������������������������� �������������� ���������������������������������������������������������� ���������������������������������������������������� ��������������������������� ������������������������������� ���������������������������� ���������������������������������������������� ������������������������������������������������������������������ ������������������������������������������������������������� ��������������������� ����������� Í tilefni af 60 ára afmæli Kaupfélags Suðurnesja þann 13. ágúst 2005 ákvað stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis að láta taka saman í eitt rit staðreyndir og minn- ingar um það sem haldið hefur verið til haga um fyrstu spor Pöntunarfélags Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, sem síðar varð hluti af KRON en fljótlega eftir það Kaupfélag Suð- urnesja. Afhenti Kristján Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri VSFK ritið til Kaupfélags Suður- nesja á fundi á Hótel Keflavík í fyrradag sem haldin var sérstaklega vegna þessarar afhend- ingar. Einnig fékk Byggðasafn Reykjanesbæjar eintak til varðveislu. „Það er von stjórnar VSFK og nágrennis að saga þessi varpi ljósi á og varðveiti þá staðreynd að leiðir VSFK og nágrennis, Pöntunarfélagsins og Kaupfélags Suðurnesja hafi ætíð verið sam- liggjandi enda aðalmarkmið og hugsjónir fé- lagsmanna þau sömu; betri hagur og kjör bæj- arbúum til handa”, sagði Kristján við þetta tæki- færi. Á fundi í hinu tæplega þriggja ára verkalýðsfélagi í Kefla- vík 30. september 1935, sem haldinn var í ungmennafélags- húsinu Skildi við Kirkjuveg í Keflavík, var borin upp hug- mynd frá Guðmundi Péturs- syni að stofna pöntunarfélag í Keflavík af svipuðum toga og stofnuð höfðu verið í Reykja- vík. Tilgangurinn var sagður „að útvega félagsmönnum alls konar vörur, sem bestar að gæðum og við sem vægustu verði með pöntunarstarfsemi”. Var hugmyndinni strax vel tekið og flutti Þorbergur P. Sigurjónsson tillögu þess efnis að stofnað yrði Pöntunarfélag innan verkalýðsfélagsins. Sú til- laga var samþykkt af tveimur þriðja hluta fundarmanna og kosin bráðabirgðastjórn sem skipuð var þeim Ragnari Guð- leifssyni, Þorbergi P. Sigurjóns- syni og Bjarna Sveinssyni. Hófst nú undirbúningur að stofnun pöntunarfélagsins og á fundi verkalýðsfélagsins 19. nóvember sama ár var skýrt frá því að búið væri að skrá pöntunarfélagið. Fyrsti pöntunarstjóri félags- ins Bjarni Sveinsson skýrði frá því á fundinum að fyrir lægju vörupantanir að upp- hæð 300 krónur. Taldi hann að umræddar vörur væru 80 krónum ódýrari en ef þær væru keyptar í verslunum á staðnum. Á þess um árum þurfti að sækja um innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir öllum vörum til stjórnskipaðrar nefndar, Innflutnings- og gjald- eyrisnefndar eins og hún var nefnd. Kom það fram á fund- inum að búið væri að sækja um innflutnings- og gjaldeyr- isleyfi fyrir matvörum að upp- hæð 6.150 kr. Aðalviðskipti pöntunarfélag- ins voru við Pöntunarfélag verkamanna í Reykjavík, auk nokkurra viðskipta við heild- sala s.s. Smjörlíkisgerðina. Var vöruverð í Keflavík það sama og í Reykjavík og sagt töluvert lægra en tíðkaðist í verslunum í bænum. Fimm pöntunarfélög sameinast undir merki KRON Þann 6. ágúst 1937 var síðan ákveðið að sameina Pöntun- arfélagið Ingólf í Sandgerði, Pöntunarfélag VSFK í Kefla- vík, Pöntunarfélag Hlífar í Hafnarfirði, Kaupfélag Reykja- víkur og Pöntunarfélag verka- manna í Reykjavík í eitt félag KRON, þ.e. Kaupfélag Reykja- víkur og nágrennis. Ingólfur var stofnað vorið 1936 og var formaður þess Jóhannes Eiríks- son, Hlíðarhúsum, en pönt- unarstjóri Stefán Friðbjörns- son í Nesjum. Pöntunarfélag Hlífar hafði verið starfandi í nokkur ár með góðum árangi en Kaupfélag Reykjavíkur var lítið félag og fór hnignandi. Helsti hvatamaður og frum- kvöðull að sameiningu félag- anna fimm mun hafa verið Hjörtur Helgason í Sandgerði. KRON sölubúð í Keflavík Þegar Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis var stofnað árið 1938 og pöntunarfélag VSFK varð eitt af stofn fé lögum þess, var ákveðið að fljótlega yrði opnuð sölubúð í Kefla- vík. Stóð sú ákvörðun og 9. nóvember það ár var opnuð sölubúð að Aðalgötu 10, í húsi Þórarins Ólafssonar, trésmiðs. Hús þetta hafði áður verið trésmíðaverkstæði Þórarins, en það var upphaflega byggt sem verslunarhús. Miðað við verslanir hér í Keflavík á þessum tíma var þetta talið all sæmilegt verslunarhús og voru allar innréttingar, hillur og borð af nýjust gerð og hag- kvæmar á þeirra tíma mæli- kvarða. En búðin var lítil og ekki til frambúðar, einkum var vinnuaðstaða öll við afgreiðslu ófullnægjandi. Félagsmenn sóttu pantanir sjálfir á hálfs- mánaðar fresti eða vörurnar sendar til þeirra. Þessar vörur fengu þeir með 5% afslætti. Auk þess greiddi KRON tekju- afganga eftir ársuppgjör, gegn framvísun kassakvittana. Var þessi arður 7% öll þau ár sem KRON starfaði. Þar af var 4% arðsins borgaður út, en 3% lagður í stofnsjóð. Flestir félagar notuð sér þessi kjör og pöntuðu reglulega. Þessi afgreiðsla útheimti sér- stakt húsrými. Þar við bættist að frá þessari búð gekk sölu- bíll í nágrannabyggðalögin þ.e Leiru, Garð, Innri-Njarð- vík, Ytri-Njarðvík, Hafnir og Grindavík (öll hverfin þrjú). Voru þess ar ferð ir farn ar vikulega. Vörur voru seldar úr bílnum - skilað var pönt- unum og tekið á móti nýjum pöntunum. Um það bil fjórir af hverjum fimm búandi mönnum í Kefla- vík urðu félagsmenn í KRON og það án tillits til þess hvar í stjórnmálum þeir stóðu. Kaupfélag Suðurnesja verður til Þegar Keflavíkurdeildin gekk úr við KRON og Kaupfélag Suðurnesja var stofnað 1945, fluttist stofnsjóður félags- manna til Kaupfélagsins. Saga Pöntunarfélags Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur og nágrennis Upphaf samvinnuverslunar í eitt rit Magnús Haraldsson, stjórnarformaður Kaupfélags Suðurnesja, Kristján Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSFL og Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar. Guðjón Stefánsson, framkvæmdastjóri Samkaupa rýnir í gömul gögn um sögu og upphaf verslunarinnar. Kaupfélag Suðurnesja er í dag rekið sem eignarhaldsfélag og tekur virkan þátt í fjölþættri starfsemi á Suðurnesjum og um land allt. Megin áherslan er á rekstur Samkaupa h.f. sem starfrækja 34 verslanir víða um land og er velta félgs- ins um 10,5 milljarðar. Starfs- mannafjöldi er um 700. Þá er félagið þáttakandi í rekstri Lyfju h.f. sem reka 40 versl- anir. Stjórn Kaupfélagsins í dag er skipuð: Magnús Haraldsson formaður, Birgir Guðnason, Eyjólfur Eysteinsson,Guðbjörg Ingimundardóttir og Sturla Eðvarðsson.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.