Víkurfréttir - 11.08.2005, Page 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
������
�����������������
�������������
������������������������� ���������������������������������������
��������������������������� ���������������
��������������������������� ��������������
����������������������������������������������������������
����������������������������������������������������
���������������������������
������������������������������� ����������������������������
����������������������������������������������
������������������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������������
���������������������
�����������
Í tilefni af 60 ára afmæli Kaupfélags Suðurnesja
þann 13. ágúst 2005 ákvað stjórn Verkalýðs-
og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis að
láta taka saman í eitt rit staðreyndir og minn-
ingar um það sem haldið hefur verið til haga
um fyrstu spor Pöntunarfélags Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur, sem síðar varð hluti
af KRON en fljótlega eftir það Kaupfélag Suð-
urnesja. Afhenti Kristján Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSFK ritið til Kaupfélags Suður-
nesja á fundi á Hótel Keflavík í fyrradag sem
haldin var sérstaklega vegna þessarar afhend-
ingar. Einnig fékk Byggðasafn Reykjanesbæjar
eintak til varðveislu.
„Það er von stjórnar VSFK og nágrennis að saga
þessi varpi ljósi á og varðveiti þá staðreynd að
leiðir VSFK og nágrennis, Pöntunarfélagsins
og Kaupfélags Suðurnesja hafi ætíð verið sam-
liggjandi enda aðalmarkmið og hugsjónir fé-
lagsmanna þau sömu; betri hagur og kjör bæj-
arbúum til handa”, sagði Kristján við þetta tæki-
færi.
Á fundi í hinu tæplega þriggja
ára verkalýðsfélagi í Kefla-
vík 30. september 1935, sem
haldinn var í ungmennafélags-
húsinu Skildi við Kirkjuveg í
Keflavík, var borin upp hug-
mynd frá Guðmundi Péturs-
syni að stofna pöntunarfélag í
Keflavík af svipuðum toga og
stofnuð höfðu verið í Reykja-
vík. Tilgangurinn var sagður
„að útvega félagsmönnum alls
konar vörur, sem bestar að
gæðum og við sem vægustu
verði með pöntunarstarfsemi”.
Var hugmyndinni strax vel
tekið og flutti Þorbergur P.
Sigurjónsson tillögu þess efnis
að stofnað yrði Pöntunarfélag
innan verkalýðsfélagsins. Sú til-
laga var samþykkt af tveimur
þriðja hluta fundarmanna og
kosin bráðabirgðastjórn sem
skipuð var þeim Ragnari Guð-
leifssyni, Þorbergi P. Sigurjóns-
syni og Bjarna Sveinssyni.
Hófst nú undirbúningur að
stofnun pöntunarfélagsins og
á fundi verkalýðsfélagsins 19.
nóvember sama ár var skýrt
frá því að búið væri að skrá
pöntunarfélagið.
Fyrsti pöntunarstjóri félags-
ins Bjarni Sveinsson skýrði
frá því á fundinum að fyrir
lægju vörupantanir að upp-
hæð 300 krónur. Taldi hann
að umræddar vörur væru 80
krónum ódýrari en ef þær
væru keyptar í verslunum á
staðnum.
Á þess um árum þurfti að
sækja um innflutnings- og
gjaldeyrisleyfi fyrir öllum
vörum til stjórnskipaðrar
nefndar, Innflutnings- og gjald-
eyrisnefndar eins og hún var
nefnd. Kom það fram á fund-
inum að búið væri að sækja
um innflutnings- og gjaldeyr-
isleyfi fyrir matvörum að upp-
hæð 6.150 kr.
Aðalviðskipti pöntunarfélag-
ins voru við Pöntunarfélag
verkamanna í Reykjavík, auk
nokkurra viðskipta við heild-
sala s.s. Smjörlíkisgerðina. Var
vöruverð í Keflavík það sama
og í Reykjavík og sagt töluvert
lægra en tíðkaðist í verslunum
í bænum.
Fimm pöntunarfélög sameinast
undir merki KRON
Þann 6. ágúst 1937 var síðan
ákveðið að sameina Pöntun-
arfélagið Ingólf í Sandgerði,
Pöntunarfélag VSFK í Kefla-
vík, Pöntunarfélag Hlífar í
Hafnarfirði, Kaupfélag Reykja-
víkur og Pöntunarfélag verka-
manna í Reykjavík í eitt félag
KRON, þ.e. Kaupfélag Reykja-
víkur og nágrennis. Ingólfur
var stofnað vorið 1936 og var
formaður þess Jóhannes Eiríks-
son, Hlíðarhúsum, en pönt-
unarstjóri Stefán Friðbjörns-
son í Nesjum. Pöntunarfélag
Hlífar hafði verið starfandi í
nokkur ár með góðum árangi
en Kaupfélag Reykjavíkur var
lítið félag og fór hnignandi.
Helsti hvatamaður og frum-
kvöðull að sameiningu félag-
anna fimm mun hafa verið
Hjörtur Helgason í Sandgerði.
KRON sölubúð í Keflavík
Þegar Kaupfélag Reykjavíkur
og nágrennis var stofnað árið
1938 og pöntunarfélag VSFK
varð eitt af stofn fé lögum
þess, var ákveðið að fljótlega
yrði opnuð sölubúð í Kefla-
vík. Stóð sú ákvörðun og 9.
nóvember það ár var opnuð
sölubúð að Aðalgötu 10, í húsi
Þórarins Ólafssonar, trésmiðs.
Hús þetta hafði áður verið
trésmíðaverkstæði Þórarins,
en það var upphaflega byggt
sem verslunarhús. Miðað
við verslanir hér í Keflavík á
þessum tíma var þetta talið
all sæmilegt verslunarhús og
voru allar innréttingar, hillur
og borð af nýjust gerð og hag-
kvæmar á þeirra tíma mæli-
kvarða. En búðin var lítil og
ekki til frambúðar, einkum var
vinnuaðstaða öll við afgreiðslu
ófullnægjandi. Félagsmenn
sóttu pantanir sjálfir á hálfs-
mánaðar fresti eða vörurnar
sendar til þeirra. Þessar vörur
fengu þeir með 5% afslætti.
Auk þess greiddi KRON tekju-
afganga eftir ársuppgjör, gegn
framvísun kassakvittana. Var
þessi arður 7% öll þau ár sem
KRON starfaði. Þar af var 4%
arðsins borgaður út, en 3%
lagður í stofnsjóð.
Flestir félagar notuð sér þessi
kjör og pöntuðu reglulega.
Þessi afgreiðsla útheimti sér-
stakt húsrými. Þar við bættist
að frá þessari búð gekk sölu-
bíll í nágrannabyggðalögin
þ.e Leiru, Garð, Innri-Njarð-
vík, Ytri-Njarðvík, Hafnir og
Grindavík (öll hverfin þrjú).
Voru þess ar ferð ir farn ar
vikulega. Vörur voru seldar
úr bílnum - skilað var pönt-
unum og tekið á móti nýjum
pöntunum.
Um það bil fjórir af hverjum
fimm búandi mönnum í Kefla-
vík urðu félagsmenn í KRON
og það án tillits til þess hvar í
stjórnmálum þeir stóðu.
Kaupfélag Suðurnesja verður til
Þegar Keflavíkurdeildin gekk
úr við KRON og Kaupfélag
Suðurnesja var stofnað 1945,
fluttist stofnsjóður félags-
manna til Kaupfélagsins.
Saga Pöntunarfélags Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og nágrennis
Upphaf samvinnuverslunar í eitt rit
Magnús Haraldsson, stjórnarformaður
Kaupfélags Suðurnesja, Kristján
Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSFL og
Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðumaður
Byggðasafns Reykjanesbæjar.
Guðjón Stefánsson,
framkvæmdastjóri
Samkaupa rýnir
í gömul gögn um
sögu og upphaf
verslunarinnar.
Kaupfélag Suðurnesja er í dag
rekið sem eignarhaldsfélag og
tekur virkan þátt í fjölþættri
starfsemi á Suðurnesjum og
um land allt. Megin áherslan
er á rekstur Samkaupa h.f.
sem starfrækja 34 verslanir
víða um land og er velta félgs-
ins um 10,5 milljarðar. Starfs-
mannafjöldi er um 700. Þá
er félagið þáttakandi í rekstri
Lyfju h.f. sem reka 40 versl-
anir.
Stjórn Kaupfélagsins í dag er
skipuð: Magnús Haraldsson
formaður, Birgir Guðnason,
Eyjólfur Eysteinsson,Guðbjörg
Ingimundardóttir og Sturla
Eðvarðsson.