Víkurfréttir - 15.09.2005, Page 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is, postur@vf.is
Þorgils Jónsson, sími 421 0003, gilsi@vf.is, sport@vf.is
Atli Már Gylfason, sími 421 0014, atli@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0001, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og www.vikurfrettir.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Kallinn á kassanum
Ríkisstjórnin kom færandi hendi til Suðurnesja með Símafé:
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Samhæfni dc 7110.ai 6/29/05 1:32:16 PM
Sam tals verð ur 1.600 milljónum króna af sölu-verðmæti Símans varið
til að ljúka tvöföldun Reykja-
nesbrautar. Símaféð kemur
fyrst til ráðstöfunar árið 2007
þegar 700 milljónir koma til
verksins, árið 2008 koma 600
milljónir og árið 2009 verður
síðustu 300 milljónunum varið
til verksins. Þá eru ótaldar 983
milljónir króna sem koma til
verksins á árunum 2006-2008.
Á síðasta ári var lokið við fyrsta
áfanga breikkunar Reykjanes-
brautar milli Hafnarfjarðar
og Reykjanesbæjar úr tveimur
í fjórar akreinar. Þessi fyrsti
áfangi er um 12 km. frá Hvassa-
hrauni suður á Strandaheiði.
Því sem eftir er af verkinu er
unnt að skipta í þrjá áfanga, þ.e.
Hafnarfjörður (Kaldárselsvegur)
- Krýsuvíkurvegur, Krýsuvíkur-
vegur - Hvassahraun og Stranda-
heiði - Reykjanesbær (Víkna-
vegur). Í gildandi vegaáætlun
eru fjárveit ingar á árunum
2006-2008, samtals 983 m.kr.
og hefur verið við það miðað að
sú upphæð verði notuð í síðast
talda kaflann. Kostnaðaráætlun
fyrir það verk er um 2.000 m.kr.
þannig að um 1.000 m.kr. af
þeim 1.600 m.kr. sem hér eru
ætlaðar til Reykjanesbrautar
þarf til að ljúka kaflanum. Í veg-
áætluninni er einnig gert ráð
fyrir fjárveitingu til að gera mis-
læg gatnamót Reykjanesbrautar
og Krýsuvíkurvegar en með
600 m.kr. viðbót verður unnt
að ráðast í breikkun vegarins
milli Kaldárselsvegar og Krýsu-
víkurvegar. Við það er miðað
að þessum tveimur áföngum af
þremur sem eftir eru verði lokið
árið 2009, segir á vef Forsætis-
ráðuneytisins.
Þá var jafnframt tilkynnt í dag
að 400 milljónum verði varið til
Suðurstrandarvegar á árunum
2008 til 2009 eða 200 milljónum
króna hvort ár.
Nú þeg ar úr val af ís-lensku grænmeti er í hámarki, þá fer Solla
kennd við Grænan kost af stað
með sitt vinsæla námskeið í
Sandgerðisbæ næstkomandi
sunnudag 18. september.
Ef þú vilt fá innblástur í eigin
eldamennsku, gera hana holl-
ari, þá er Solla frábær kennari
fyrir þig. Þetta námskeið hefur
hjálpað fólki virkilega að lífga
upp á matarræðið og bæta það.
Við sem borðum kjöt, kjúkling
og fisk fáum hér hugmyndir að
alls konar hollum hliðardiskum
sem gera m tinn meira spenn-
andi. Þeir sem vilja læra meira
um grænmetisfæðu hitta hér al-
gjöran sérfræðing í þannig mat-
reiðslu. Solla útbýr máltíð á nám-
skeiðinu handa þátttakendum
sem þeir snæða í lokin. Á meðan
Solla útbýr matinn þá fræðir
hún þig og gefur þér ótalmargar
hugmyndir til að koma þér af
stað þegar heim er komið. Nám-
skeið þetta er unnið í samvinnu
við heilsudeild Samkaupa en
þar er úrvalið mjög gott, einnig
í glútenlausum matvörum.
Solla mun einmitt kenna þér
að velja og kaupa heilsuvörur,
hún fjallar t.d. um skaðleg efni
í kryddi eins og MSG. Skráning
er hafin í síma 848 5366.
1.600 milljónir til tvöföldunar Brautarinnar
til viðbótar við milljarð á vegaáætlun
Grænmetisnámskeið með Sollu
Púlsinn, ævintýrahús í Sandgerði:
KALLINN LÝSIR FURÐU SINNI á Hitaveitu Suð-
urnesja hf. gagnvart nauðsynlegum endurbótum
á neysluvatnsmálum í Höfnum. Neysluhæft fersk-
vatn er ein af frumþörfum og forsenda búsetu.
Stjórnendur HS hafa lengi vitað af slæmu og
versnandi neysluvatni í Höfnum, en hafa beðið
um frest til ársins 2007 til að hefja framkvæmdir.
Kallinn veit til þess að íbúar í Höfnum eru að
skrifa Umhverfisstofnun bréf vegna málsins. Kall-
inn hefur eitt slíkt undir höndum og er algerlega
sammála því að íbúar þessa litla samfélags eru
sniðgengnir.
Í EINU BRÉFANNA til Umhverfisstofnunar segir:
„Við Hafnabúar áttum þessa vatnsveitu skuld-
lausa og í lagi þegar sveitarfélagið sameinaðist í
Reykjanesbæ 1994. Síðan þá hefur viðhaldi verið
lítið sinnt og rannsóknir á vegum sveitarfélags-
ins á gæðum vatnsins hafa ekki farið fram þrátt
fyrir kvartanir. Sem sagt: Endurbætur hafa ekki
verið sem skyldi - hvorki á vegum Reykjanes-
bæjar né HS. Þá ber einnig að hafa í huga að HS
hefur engan kostnað borið af þessari vatnsveitu í
Höfnum fyrir eða eftir að það tók við henni 2003
- nema hann hafi verið ,,framleiddur” í bókhaldi.
Með tilliti til þess að uppspretta framtíðartekna
HS er í gamla Hafnahreppi (Reykjanesvirkjun) og
að þetta veitufyrirtæki er ekki á nástrái fjárhags-
lega finnst mér [bréfritara. innsk. Kallsins] maka-
laus viðbrögð þess við bréfi Umhverfisstofnunar,
þ.e. að biðja um frest til ársins 2007 í stað þess
að hefja framkvæmdir án tafar, lýsa einstökum
ómyndarskap, roluhætti og hroka stjórnenda þess.
En því er við þessa athugasemd mína að bæta að
sem Hafnabúi átti ég ekki von á neinum tilþrifum
af hálfu Reykjanesbæjar né HS þótt neysluvatnið
væri hér bæði bragðvont og mengað og selt sama
verði og nothæft neysluvatn í Keflavík - og mun
því áfram verða að sækja mitt drykkjavatn til ann-
arra vatnsveitna”. Undir þetta ritar svo bæjarbúi í
Höfnum.
KALLINN GETUR ENGAN VEGINN SKILIÐ
það af hverju það þarf að draga það til ársins
2007 að hefja endurbætur í vatnsmálum Hafna.
Kallinum barst í hendur brúsi með kranavatni
úr þorpinu og annan eins viðbjóð hefur Kallinn
vart sett inn fyrir sínar varir í langa tíð. Kallinum
datt helst í hug að hann væri að drekka sjó! Krana-
vatnið í Höfnum er ódrekkandi og fyrir hönd
íbúa í Höfnum krefst Kallinn úrbóta strax.
MEÐ BRIMSALTRI kveðju, kallinn@vf.is
Eru Hafnamenn að drekka sjó?