Víkurfréttir - 03.11.2005, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Sandgerðisbær fékk út-hlut að 140 tonn um af byggðakvóta sem sjávar-
útvegsráðuneytið úthlutaði á
dögunum, sem er 5 tonnum
minna en bærinn fékk úthlutað
í fyrra. Sigurður Valur Ásbjarn-
arson, bæjarstjóri í Sandgerði,
segist ánægður með úthlutun-
ina og reiknar með að um 20
sæki um að þessu sinni, sem
er svipað og var í fyrra, en um-
sóknarfrestur rennur út 31.
október.
Hann segir þetta í fjórða skipti
sem sérstök stjórn úthlutar
byggðakvótanum í Sandgerði.
„Að þessu verkefni koma útgerð-
araðilar báta sem skráðir eru í
Sandgerði og fiskvinnslur sem
eru með lögheimili í sveitarfé-
laginu. Það er skilyrði í úthlut-
uninni á byggðakvótanum að
aflanum sé landað í Sandgerðis-
höfn,” segir Sigurður.
Hann segir að með tilkomu
byggðakvótans hafi umsvif Sand-
gerðishafnar aukist til muna.
Rekstur hafnarinnar gengur nú
betur en undanfarin ár og hefur
tekist að snúa 26 milljóna
króna taprekstri niður á núllið.
Hann segir fá byggðafélög hafa
misst eins miklar aflaheimildir
frá sér og Sandgerðisbær gerði
á sínum tíma þegar kvótakerf-
inu var komið á. „Hér í bænum
voru aflaheimildir upp á um 11
þúsund tonna þegar best lét, en
fór síðan niður í 400 tonn. Við
erum aðeins að rétta okkur hlut
aftur og erum nú með um 1.800
tonna kvóta,” sagði Sigurður
Valur.
Hann sagði að íbú um hafi
fjölgað í Sandgerði um rúmlega
100 manns og væru bæjarbúar
nú komnir í 1.507 talsins, en
voru 1.400 um síðustu áramót.
„Hér í Sandgerði hefur aldrei
verið neitt atvinnuleysi sem orð
er á gerandi og njótum við góðs
af nærveru okkar við höfuðborg-
arsvæðið og Keflavíkurflugvöll
í þeim efnum. Frá því að við
misstum mestan hluta kvótans
hefur verið sérstak átak hér í
gangi í atvinnumálum og hefur
það skilað góðum árangri,”
sagði bæjarstjórinn.
Sigurður Valur er ánægður með
þá uppbyggingu sem á sér stað
í Sandgerði og hann segir að
það sé mikill áhugi fyrir lóðum
og í ár hafi 137 lóðum verið út-
hlutað. Ástæðuna segir hann
helst vera þá að í Sandgerði séu
stofngjöld húsnæðis með því
lægsta sem gerist á landinu.
Sandgerði:
Félags eldri borgara er á sunnudaginn kemur, 6. nóvember.
Guðsþjónusta kl. 11, prestur séra Sigfús Baldvin Ingvason.
Eldey, kór eldri borgara leiðir söng ásamt barnakór Keflavíkurkirkju,
organisti er Hákon Leifsson.
Barnastarf á sama tíma.Veitingar að lokinni messu.
Eldri borgarar á Suðurnesjum fjölmennum til messu á sunnudaginn!
Kirkjudagur
Félag eldri borgara á Suðurnesjum.
Keflavíkurkirkja.
Keflavíkurkirkja
„Umsvif Sandgerðishafnar aukast til
muna með tilkomu byggðakvóta“
Dreng ur sem var að renna sér á s leða í brekku við smábáta-
höfnina í Keflavík, féll í smá-
báta höfn ina í Gróf. Hann
náði að synda yfir að smábáta-
bryggju og ná þar landi.
Drengurinn, Dagur Barkarson,
hafði verið að renna sér á snjó-
sleða í brekku sunnan við Bakka-
veg ásamt félaga sínum, Vigni
Blæ Sigurðarsyni, en ekki náð
að stöðva sleðann áður en hann
kom að varnargarði fyrir smá-
bátahöfnina og lenti í sjónum.
Lög regla og sjúkra lið voru
kölluð til en áður en þau komu
á vettvang höfðu nærstaddir
ekið drengnum heim þar sem
hann var kominn í heitt bað.
Drengur hafnaði í
sjónum eftir sleða-
ferð á Berginu
Daglegar fréttir: www.vf.is