Víkurfréttir - 03.11.2005, Blaðsíða 11
VÍKURFRÉTTIR I 44. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 3. NÓVEMBER 2005 I 11
Suð ur flug var val ið úr hópi bjóðenda í rekstur flugstöðvar varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli og af-
greiðslu á herflugvélum sem
um völlinn fara. Útboð vegna
þessa samnings fór fram fyrr á
þessu ári og lauk nú í október.
Suðurflug mun taka við rekstri
flugafgreiðslunnar fyrsta desem-
ber n.k. Ljóst er að með þessum
samningi við Flugher Banda-
ríkjanna hefur starfsemi Suður-
flugs tekið mikla sveiflu uppá
við og sett merki sitt efst í röð
flugafgreiðslufyrirtækja á Kefla-
víkurflugvelli.
Starfsfólki Suðurflugs kemur til
með að fjölga verulega við þetta
nýja verkefni.
„Suðurflug hefur undanfarin
rúm sex ár starfrækt almenna
flugafgreiðslu í flugstöð sinni
(Terminal 2) á Keflavíkurflug-
velli. Fyrr var Suðurflug með
flugkennslu og leiguflug en fyrir
rúmum sex árum var tekin ný
stefna við rekstur félagsins og
hefur Suðurflug haslað sér völl
sem ein fremsta flugagreiðslan á
Keflavíkurflugvelli.
Viðskiptavinir Suðurflugs eru
jafnt smáir sem stórir aðilar
í flugrekstri víða um heim.
Aðal umfangið tengist svo kall-
aðri „General Aviation“ flug-
afgreiðslu, almennt flug utan
venjulegs hefðbundins áætlunar-
flugs, en lýkur samt ekki þar.
Suðurflug hefur tekið að sér af-
greiðslu stórra farþegavéla, nú
síðast Boeing 767 sem fór fimm
sinnum um Keflavíkurflugvöll
í þessum mánuði svo og af-
greiðsla á fraktflutningavélum”,
segir Johan D. Jónsson, mark-
aðsstjóri Suðurflugs í samtali
við Víkurfréttir.
Varnarliðið semur við Suðurflug:
Starfsfólki fjölgar verulega
Daglegar fréttir: www.vf.is