Víkurfréttir - 28.09.2006, Side 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
Starfsmenn Varnarliðsins:
Atvinnuástand hefur verið nokkuð stöðugt yfir sumarmánuðina,
þrátt fyr ir að einn stærsti
vinnu stað ur inn á Suð ur-
nesjum, varnarstöðin á Kefla-
víkurflugvelli, hafi sagt upp
öllu sínu starfsfólki. Þar eru
nú 120 manns sem eiga aðeins
örfáa daga eftir af uppsagnar-
frestinum. Staða þessa fólks er
að hluta til í nokkurri óvissu,
sérstaklega eldri starfsmann-
anna.
Nú í byrjun vikunnar voru 204
einstaklingar skráðir atvinnu-
laus ir á Suð ur nesj um, 142
konur og 62 karlar. Meðalfjöldi
atvinnulausra í júlí var 1,9% eða
176 einstaklingar. Atvinnuleysið
mældist mest í janúar þegar 222
einstaklingar voru skráðir at-
vinnulausir.
„Sumarið er yfirleitt besti tíminn
á vinnumarkaði en svo kemur
alltaf þetta árstíðabundna at-
vinnuleysi seint á haustin. Burt-
séð frá þessum árstíðabundnu
sveiflum má segja að atvinnuá-
stand hafi verið nokkuð stöðugt
síðustu tvö árin,“ sagði Ketill G.
Jósefsson, forstöðumaður Svæð-
isvinnumiðlunar Suðurnesja, í
samtali við VF.
Ketill segir yfirleitt dauflegra
um að litast á atvinnumarkaði
á þessum tíma árs og þess vegna
sé einhverju leyti erfiðara um
vik að finna ný störf. Sumt af
því fólki sem nú er að klára
uppsagnarfrestinn hafi ekki að
neinu að hverfa.
„Reykjanesbær hefur komið vel
inn í þetta mál ásamt stéttarfé-
lögunum og reynt hefur verið
að finna störf hjá bænum, þó
ekki sé nema tímabundið til
að brúa bilið á meðan fólk er
að svipast um eftir öðru. Þá er
verið að tala um 3-6 mánaða
ráðningasamninga í ýmsum til-
fallandi störfum sem oft vantar
mannafla til að sinna,“ segir
Ketill.
Aðspurður um stöðu starfs-
manna VL segir Ketill mesta
áhyggjuefnið hversu stór hluti
þeirra séu eldri starfs menn
með fulla starfsorku og reynt
verði að greiða úr málum þeirra
eftir því sem tök eru á. Þó svo
framboð á störfum sé nægjan-
legt í sumum atvinnugreinum
er ekki allt sem hentar þessum
aldurshópi. Helstu úrræði sem
munu standa atvinnuleitendum
til boða nú á haustdögum eru í
formi námskeiða.
„Ég get nú ekki sagt annað
en að ég sé bjartsýnn en mér
finnst að stjórnvöld mættu sýna
þessu svæði aðeins meiri áhuga.
Mér finnst óskaplega lítið hafa
komið frá þeim, þó svo að við
heimamenn sem stöndum sjálfir
í framlínunni höfum verið að
velta ýmsum hugmyndum upp
á borðið. Hins vegar hefur ýmis-
legt verið tekið til baka af þeim
fyrirheitum sem voru gefin í
vor, t.d. varðandi flutning Land-
helgisgæslunnar til Suðurnesja.
Mér finnst stærstu fjölmiðlar
hingað til ekki hafa sýnt þessu
máli mikinn áhuga. Það væri
t.d. ekki úr vegi að taka viðtöl
við það fólk sem vann á varnar-
svæðinu og leyfa okkur hinum
að heyra þeirra sjónarmið en
í staðinn er verið að fjalla um
dauða hluti eða kakkalakka,“
segir Ketill.
Út séð er með að ís-lensk ir starfs menn Varnarliðsins fái starfs-
lokasaminga. Á meðal þeirra
hefur verið óánægja með að
íslenska samninganefndin hafi
ekki beitt sér fyrir því í við-
ræðunum um viðskilnað VL
að gerðir yrðu starfslokasamn-
ingar við þá.
Sá orðrómur hefur verið á kreiki
að Varnarliðið hafi verið búið að
áætla ákveðna fjárhæð í starfs-
lokasaminga en starfsmanna-
haldið hafi sett sig upp á móti
því og stöðvað málið. Utanrík-
isráðuneytið mun hafa kannað
málið og komist að því að þessi
orðrómur átti ekki við rök að
styðjast.
Stóð aldrei til að gera
starfslokasamninga
„Við í sam ráðs nefnd inni
óskuðum eftir því við Utanríkis-
ráðuneytið að kannað yrði hvort
þessi orðrómur ætti við rök að
styðjast, sem það og gerði. Nið-
urstaðan varð sú að Varnarliðið
hafi ekki áætlað neina fjármuni
í starfslokasamninga umfram
það sem kjarasamningar segja
til um.
Samkvæmt þessu virðist þessi
orðrómur ekki á rökum reistur
og yfirvöld hafa jafnframt vísað
því að bug að það taki að sér að
gera þessa starfslokasaminga.
Geir Haarde gaf það skýrt í skyn
á starfsmannafundinum í Fjöl-
brautaskólanum fyrir kosning-
arnar í vor,“ sagði Guðbrandur
Einarsson, formaður Verslunar-
mannafélags Suðurnesja, í sam-
tali við VF en hann á sæti fyrir
hönd félagsins í samráðsnefnd-
inni sem í sitja fulltrúar sveit-
arstjórna og ríkisvaldsins og
skipuð var í vor þegar ljóst var
að Varnarliðið ætlaði af landi
brott.
Útistandandi launakröfur
verða greiddar
Kristján Gunnarsson, formaður
VSFK, segir að fulltrúi ríkisins
í samráðsnefndinni muni hafa
látið í það skína að möguleiki
væri á starfslokagreiðslum í ein-
hverri mynd en síðar hafi því
verið algjörlega hafnað af hálfu
Banda ríkja manna sem hafi
talið sig vera að greiða meira en
þeim bar skylda til að gera, sam-
kvæmt samningum.
„Starfsmannahaldið hefur ein-
faldlega ekkert um þetta að
segja lengur en hins vegar voru
þeir að fá samþykki fyrir því frá
yfirstjórn fjármála hersins að
greiða upp allar útistandandi
launakröfur. Í því felst meðal
annars 2% starfsmenntagjald
sem við höfðum verið að eltast
við, kauphækkanir sem vantaði
hjá sumum vegna sveitarstjórn-
arsamninganna, 15 þúsund
króna júlí-hækkunin og ýmis-
legt fleira sem við höfum verið
að ýta á eftir. Þeir eru búnir að
samþykka að greiða allar slíkar
kröfur en aðrar greiðslur virð-
ast ekki hafa verið í farvatninu í
viðræðum samninganefnda ríkj-
anna um við viðskilnað Varnar-
liðsins. Ég hélt reyndar að þær
viðræður hefðu átt að snúast um
hvað þeir áttu að greiða okkur Ís-
lendingum en ekki öfugt,“ sagði
Kristján Gunnarsson.
Atvinnuástand helst nokkuð stöðugt
þrátt fyrir brotthvarf Varnarliðsins
Útséð með starfslokasamninga
-þrálátur orðrómur kveðinn niður þess efnis að
starfsmannahald VL hafi stöðvað málið.
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222