Víkurfréttir - 28.09.2006, Qupperneq 9
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 28. SEPTEMBER 2006 9STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Til vandræða horfir á Heilbrigðisstofnun Suð-urnesja vegna skorts
á hjúkrunarfræðingum og
getur jafnvel farið svo að loka
þurfi endurhæfingardeild og
D-álmu. Að hluta til skapast
þessar aðstæður vegna þess
að fimm hjúkrunarfræðingar
eru á leið í barnsburðarleyfi á
sama tíma og ekki hefur tekist
að manna stöðurnar.
„Vissulega sjáum við fram á
erfiðleika við að manna stöður
hjúkrunarfræðinganna sérstak-
lega. Ef til þess kemur að loka
þurfi þessum deildum vegna
manneklu verður það vonandi
tímabundið í stuttan tíma. Hins
vegar er rétt að taka fram að það
er ekkert búið að ákveða endan-
lega í þessum efnum, við erum
að skoða þetta þessa dagana,“
sagði Sigríður Snæbjörnsdóttir,
framkvæmdastjóri HSS, í sam-
tali við VF.
Starfs fólk HSS mun fyr ir
nokkru hafa sent stjórninni bréf
þar sem bent var á það mikil-
væga starf sem fram færi á um-
ræddum deildum. Sigríður segir
engan vafa leika á því að þarna
sé unnið gott starf en það þurfi
eftir sem áður að vera til staðar
starfsfólk til að sinna því.
„Spurningin er hvort við ráðum
við að halda þessum deildum
opnum með ekki fleiri hjúkrun-
arfræðinga en við höfum núna.
Við höfum verið tiltölulega vel
sett með mannahald fram til
þessa, miðað við hvað margar
aðrar heilbrigðisstofnanir hafa
þurft að glíma við. En það hlaut
að koma að því að við lentum í
vandræði og kannski gerði hún
útslagið, þessi mikla frjósemi á
staðnum,“ sagði Sigríður.
Hugsanleg lokun HSS á
deildum vegna manneklu
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja:
Reynir Katrínarson verður með myndlistasýningu í Byggðasafn-inu í Garði en sýningin verður
opnuð sunnudaginn 1. október næstkom-
andi kl. 19:00.
Allar ljósmyndirnar á sýningunni eru af
sama myndefninu eða þurrkuðum þorsk-
hausum sem voru hangandi til þerris á
trönum milli Garðs og Reykjanesbæjar.
Hugmyndin er 11 til 12 ára gömul hjá
Reyni en hann ákvað að halda áfram með
hana í sumar og að þessu sinni hafa mynd-
irnar í lit en síðast voru þær í svart hvítu hjá honum.
Sýningin verður opin frá 1. október á opnunartímum Byggðasafnsin
í Garði.
Þurrkaðir þorskhausar á Garðskaga