Víkurfréttir - 28.09.2006, Blaðsíða 17
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 28. SEPTEMBER 2006 17STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Landsbankinn
Hvetjum okkar menn
– allir á völlinn!
Leikir liðanna í sumar
Kef l v í k ing ar höfðu b e t ur í inn by rð is viðureignum gegn KR í
Landsbankadeildinni í sumar,
5-2. Fyrri leik liðanna á Kefla-
víkurvelli lauk með 3-0 sigri
heimamanna. Mörk Keflavíkur
í þeim leik gerðu Magnús Þor-
steinsson, Daniel Severino
og Símun Samuelsen þar sem
Keflvíkingar voru mun sterk-
ari aðilinn í leiknum.
Á KR velli voru það fyrirliðinn
Guðmundur Steinarsson og
Þórarinn Brynjar Kristjánsson
sem gerðu mörk Keflavíkur í
2-2 jafntefli liðanna. Þessi síðari
viðureign liðanna var öllu jafn-
ari en sú fyrri og var hart barist
á blautum vellinum. Björgólfur
Takefusa og Sandgerðingur-
inn Grétar Ólafur Hjartarson
gerðu sitt markið hvor fyrir KR
í leiknum. Keflvíkingar luku
keppni í 4. sæti Landsbanka-
deildar en KR-ingar náðu 2.
sæti í deildinni eftir hreinan úr-
slitaleik við Val í síðustu umferð
Landsbankadeildarinnar.
Magnús Þorsteinsson
skoraði gegn KR í Keflavík.
Endurtekur hann leikinn á
Laugardalsvelli?
Með popp og kók yfir leiknum
Har ald ur Freyr Guð-mundsson leikur nú með Aalesund í Nor-
egi en hann varð bikarmeist-
ari með Keflavík árið 2004 en
á von á meiri mótspyrnu frá
andstæðingum Keflavíkur að
þessu sinni.
„Það var frekar mikil einstefna
gegn KA,“ sagði Haraldur en
Keflavík vann þann leik 3-0
með tveimur mörkum frá Þór-
arni Kristjánssyni og Hörður
Sveinsson setti eitt mark. „Um
2500 Keflvíkingar mættu á Laug-
ardalsvöll 2004 og KR-ingar
eiga eftir að fjölmenna og eru
sennilega með flesta áhorfendur
á landinu. Ég sjálfur mun fylgj-
ast grannt með leiknum á ruv.
is og tengi tölvuna í sjónvarpið
og fæ mér popp og kók,“ sagði
Haraldur sem var beðinn um
að koma með nákvæma leiklýs-
ingu fyrir laugardaginn. „Þetta
verður jafn leikur, Keflavík
kemst yfir á 19. mínútu með
marki frá Guðmundi Steinars-
syni. KR jafnar leikinn á 63.
mínútu og þar verður að verki
Gunnlaugur Jónsson en hann
mun skora með skalla eftir horn-
spyrnu. Það verður svo enginn
annar en Þórarinn Brynjar Krist-
jánsson sem gerir sigurmarkið
á 80. mínútu leiksins með skoti
úr markteignum,“ sagði Har-
aldur, nokkuð viss í sinni sök.
Haraldur er á því að bikarúrslita-
leikurinn sé jafnan stærsti leikur-
inn á knattspyrnutímabilinu og
man vel eftir leiknum 2004 þar
sem hann var í annarri miðvarð-
arstöðunni. „Sá leikur á eftir
að fylgja mér lengi og ég vona
svo sannarlega að ég hafi ekki
spilað minn síðasta bikarúrslita-
leik, sama hvort það er heima
eða erlendis,“ sagði Haraldur en
Aalesund er í 2. sæti í norsku 1.
deildinni og er fastlega gert ráð
fyrir að liðið vinni sér sæti í úr-
valsdeild fyrir næstu leiktíð.
Haraldur og Zoran, fyrirliði, á Laugardalsvelli 2004.