Víkurfréttir - 28.09.2006, Side 21
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 28. SEPTEMBER 2006 21STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Nú liggur fyrir að Íslend-ingar taka við mann-virkjum varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli og í burða-
liðnum er stofnun hlutafélags í
eigu ríkisins sem á að taka við
þessum eignum og koma þeim
í notkun án þess að það hafi
óásættanleg áhrif á íbúðamark-
aðinn á Suðurnesjum. Það var
kominn tími til þess að hrein
niðurstaða kæmi í þetta mál
þar sem framtíð mannvirkja
í varnarstöðinni skipta okkur
sem búum á svæð inu afar
miklu.
Sá böggull fylgir þó skamm-
rifi að Íslendingar taka að sér
hreinsun eftir varnarliðið og
ekki er nákvæmlega vitað á þess-
ari stundu hversu umfangsmikil
sú mengun er eða hvers eðlis.
Kostnaðurinn við hreinsun
liggur því ekki fyrir, en ef meng-
unin er verulega umfangsmeiri
en ráð er fyrir
gert, eða í ljós
kem ur að hún
ógnar heilbrigði
og öryggi manna
innan 4 ára frá
brotthvarfi varn-
arliðsins, þá er
gert ráð fyrir viðræðum milli
ríkjanna um málið.
Það þarf að hafa hraðar hendur
í því að ákveða fullnægjandi
rannsókn á umfangi mengunar
innan þess tímafrests sem um
ræðir þannig að hægt sé að
kalla bandaríkjamenn að samn-
ingsborðinu varðandi frekari
hreinsun ef þörf krefur.
Það þarf að hafa hraðar hendur
í að rífa þau mannvirki sem fyr-
irsjáanlegt er að nýtast ekki til
framtíðar.
Það þarf að hafa hraðar hendur
í því að stofna hlutafélag um
eignirnar, þannig að sem fyrst
verði gengið í að koma þeim
í rekstur og komið verði í veg
fyrir að þær standi lengi auðar
og engum til gagns.
Þ a ð þ ar f a ð h a f a h r a ð ar
hendur í að nýta þá þekkingu
og mannauð sem býr í fyrrum
starfsfólki varnarliðsins sem
gjörþekkir svæðið og nýtt hluta-
félag sem stofnað verður um
eignirnar ætti að sjá sér mikinn
hag í að láta ekki fara til spillis,
heldur nýta í þágu framtíðar-
starfssemi á vellinum.
Nú verða stjórnvöld að hafa
hraðar hendur en ekki sitja
með hendur í skauti eins og
allt of lengi er búið að gera í mál-
efnum varnarstöðvarinnar. Það
er búið að sóa of miklum tíma
og komið að því að láta verkin
tala.
Jón Gunnarsson,
þingmaður Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi.
Jón Gunnarsson alþingis-maður hefur lýst því yfir að hann sækist eftir að
leiða lista Samfylkingarinnar
í Suðurkjördæmi í næstu kosn-
ingum. Þessa ákvörðun hefur
hann tekið eftir að ljóst var að
oddviti Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi, Margrét Frí-
mannsdóttir myndi að draga
sig í hlé.
Ég er ánægð ur með þann
metnað sem Jón sýnir með
þessu og styð hann heilshugar í
því verkefni að vinna 1. sætið í
prófkjörinu sem verður haldið
4. nóvember nk. Jón sýnir
með þessu að hann er í pólitík
til þess að hafa áhrif og skorast
ekki undan ábyrgð.
Við Jón höfum lengi átt gott sam-
starf á sviði sveitarstjórnarmála
og þar hefur mikill metnaður
og dugnaður til þess að að gera
vel fyrir Suðurnes sem heild
einkennt störf hans. Eftir að
Jón settist á Alþingi eftir síðustu
kosningar hefur hann sýnt að
hagsmunamál Suðurnesja hafa
verið honum ofarlega í huga og
ég man ekki eftir umræðum á
þinginu um mál-
efni svæð is ins
þar sem hann
hefur ekki verið
í fararbroddi og
hald ið fram af
sannfæringu sjón-
armiðum Suður-
nesjamanna. Það hefur einnig
verið afar gott að hafa inni á
þingi mann sem gerþekkir mál-
efni svæðisins og er alltaf reiðu-
búinn til að gera sitt ýtrasta til
að góð mál fyrir svæðið nái
fram að ganga.
Ég átti þess kost fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor að
heimsækja íslenska starfsmenn
varnarliðsins með þingmönnum
Samfylkingarinnar sem komu
til þess að kynna sér stöðu
mála á vellinum. Við fórum
víða um og var vel tekið og al-
veg ljóst að Jón hafði sett sig
afar vel inn í málefni vallarins
og þá stöðu sem við íslenskum
starfsmönnum blasti. Ég vissi
að Jón Gunnarsson hafði barist
af miklum krafti fyrir hags-
munum íslenskra starfsmanna á
vellinum við breytingu á lögum
sem færðu starfssemi slökkviliðs-
ins og snjóruðningsdeildarinnar
undir íslensk stjórnvöld, en
þarna áttaði ég mig fyrst á því
að barátta hans hafði líkast til
skipt sköpum fyrir þessa starfs-
menn varðandi starfsöryggi og
kjör.
Margir halda því fram að það
skipti í raun ekki miklu máli
hverjir sitji sem okkar fulltrúar
á Alþingi, en raunveruleikinn er
samt sá að það getur skipt afar
miklu eins og dæmin sanna.
Við hér á Suðurnesjum þurfum
öflugan málsvara inni á þingi
sem getur haft áhrif til hagsbóta
fyrir okkur öll. Í mínum huga
er Jón Gunnarsson slíkur full-
trúi og það er afar mikilvægt
að við Suðurnesjamenn mætum
í prófkjör Samfylkingarinnar
þann 4. nóvember nk. til þess
að tryggja Jóni 1. sætið á fram-
boðslistanum.
Guðbrandur Einarsson,
Samfylkingarmaður og oddviti
A-listans í bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar.
Suðurnesjamann í forystusætið
Nú verður að hafa hraðar hendur
Guðbrandur Einarsson skrifar um framboðsmál:
Jón Gunnarsson skrifar um Vallarmál: