Víkurfréttir - 28.09.2006, Page 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
Í októbermánuði verður að venju vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á
landi. Þetta er hluti af alþjóð-
legu árveknisátaki og bleik
slaufa er alþjóðlegt tákn átaks-
ins.
Á r h v e r t g r e i n a s t 1 6 0 -
170 ís lensk ar kon ur með
brjóstakrabbamein. Sjö til átta af
hverjum tíu konum geta vænst
þess að læknast. Hér á landi
eru konur á aldrinum 40-69
ára boðaðar til brjóstakrabba-
meinsleitar á tveggja ára fresti.
Konur eru hvattar til að nýta
sér boð um brjóstamyndatöku,
því röntgenmyndataka er örugg-
asta aðferðin til að finna krabba-
mein í brjóstum á byrjunarstigi.
Konur eru einnig hvattar til að
skoða og þreifa brjóst sín reglu-
lega. Þær finna hvað hefur
breyst frá síðustu skoðun og
mikilvægt er að leita læknis ef
einhver breyting finnst. Rétt
er þó að hafa í huga að flestir
hnútar í brjóstum eru góðkynja.
Þann 2. október n.k. verður
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
lýst upp í bleikum lit í eina viku
til að minna á átakið.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar
um brjóstakrabbamein og ár-
veknisátakið má finna á vefnum
krabb.is og bleikaslaufan.is
Krabbameinsfélag Suðurnesja
Dagana 25.-29. septem-ber mun Iðjuþjálfa-félag Íslands standa
fyrir skólatöskudögum víðs
vegar um landið. Skólatösku-
dagar eru haldnir af hálfu
iðjuþjálfa um allan heim um
þessar mundir en hugmyndin
kemur upphaflega frá Banda-
ríkjunum. Alls hafa 45 ís-
lenskir iðjuþjálfar tilkynnt
þátttöku sína og munu þeir
heimsækja um sextíu grunn-
skóla víðsvegar um landið.
Tilgangur dagana er að fræða
nemendur, foreldra þeirra og
kennara um rétta notkun á
skólatöskum. Iðjuþjálfar munu
heimsækja grunnskólabekki
og bjóða nemendum upp á
að vigta skólatöskur þeirra
og nemendurna sjálfa til að
reikna út hvort skólataskan sé
af æskilegri þyngd. Auk þess
að veita almenna fræðslu um
líkamsbeitingu. Rannsóknir
sýna fram á að stoðkerfisvandi
barna og ungmenna sé vax-
andi vandamál í samfélaginu
og hefur þetta framtak forvarn-
argildi fyrir betri líðan barna
og ungmenna. Börnin fá í
hendurnar leiðbeiningar um
hvernig taskan á að vera stillt,
hvernig best sé að raða í hana
og hvaða þætti er mikilvægt
að horfa á þegar ný taska er
keypt.
Iðjuþjálfafélag Íslands, sem er
þrjátíu ára um þessar mundir,
ákvað með svo öflugu framtaki
að upplýsa nemendur og fjöl-
skyldur þeirra um mikilvægi
forvarna gagnvart heilbrigði.
Margir iðjuþjálfar starfa í
tengslum við skóla hér á landi
þó sú vinna sé öflugust utan
höfuðborgarsvæðisins. Iðju-
þjálfar starfa í skólum til að
styðja nemendur í daglegum
athöfnum. Markmið iðjuþjálfa
er samhljóma markmiðum
kennara að því leyti að vinna
að farsælli þátttöku nemenda
í grunnskólastarfinu. Í skólum
aðstoða iðjuþjálfar börn með
víðtæka færnivanda svo sem
varðandi skriftarfærni, þroska
og hegðun. Iðjuþjálfar vinna
að því að styrkja einstaklinga
í daglegum athöfnum svo
frammistaða þeirra og þátt-
taka sé með sem bestu móti í
nútíma samfélagi.
F.h. Iðjuþjálfafélags Íslands
Þórunn Sif Ingvarsdóttir,
iðjuþjálfi
Starfið hjá Sálarrannsókn-arfélaginu er að fara í gang aftur eftir sumarfrí.
Nú í vetur eins og endra nær
verður fjölbreytt efni á dag-
skrá.
Miðlastarfið hefur ætíð verið
stór þátt ur í starf sem inni.
Miðlar gefa fólki tækifæri á
að tengjast sínum framliðnu
ástvinum, læknum og eða leið-
beinendum (sambandsmiðlun).
Auðnast þekkingu á hinum
miklu víddum tilverunnar, geta
miðlað miklum læknisfræði-
legum upplýsingum sem gera
okkur meðvitaðri um okkar
eigin líkama og orkusvið. Eða
ferðast inn í framtíðina (spám-
iðlun) og fengið þaðan skilaboð
og upplýsingar til að flytja inn í
nútíðina, svo eitthvað sé nefnt.
Eins mörg og við erum, eins
misjöfn erum við og höfum mis-
munandi sýn á lífið. Þess vegna
er svo gaman að geta valið mis-
munandi gerð miðlunar. Í vetur
starfa hjá félaginu frábærir
miðlar, sem og alltaf. Það er
María Sigurðardóttir, Guðrún
Hjörleifsdóttir, Þórhallur Guð-
mundsson, Skúli Lórenz, Lára
Halla Snæfells, Ragnheiður
Ólafsdóttir, Valgarður Einarsson
og fl. góðir. Læknamiðlarnir
okkar eru Hrefna Kristjáns-
dóttir, Valgarður Stefánsson og
Erna Lína Alfreðsdóttir .
Skyggnilýsingarfundir eru á
dagskránni og eru haldnir einu
sinni í mánuði að meðaltali.
Bæna- og hugleiðsluhringir eru
starfandi eins og endranær, allar
fyrirbænir eru tekar í síma 421-
3348. Þeir sem hug hafa á að
starfa í bænahringjum hafi sam-
band við Ernu í sama númeri.
Opin hús eru orðin að venju og
verða fyrsta miðvikudag hvers
mán að ar. Að öllu óbreyttu
verður sá háttur hafður á áfram
í vetur. Ýmislegt hefur verið
gert til gamans á þessum góð-
kvöldum eins og farið í hug-
leiðslur, spáð í spil, hlutskyggni,
skipst á skoðunum um andleg
efni (t.d. hvert er markmið lífs
míns eða hvað er ég að gera hér
á jörð?) og frábærir fyrirlesarar
fengnir með gott efni, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Allir félagsmenn og velunnarar
eru ávallt velkomnir á þessi
kvöld .
Höfuðbeina -og spjaldhryggs-
jafnari er á staðnum. Hbs. er
mild og áhrifarík meðferð við
hinum ýmsu kvillum sem há
okk ur mann kyn ið. Má þar
nefna álagseinkenni sem mynda
ósamhverfu í líkama okkar og
sál, svo sem gigt, bakvandamál,
bólg ur, streitu-ein kenni og
margt fleira.
Allar tímapantanir hjá félaginu
eru skráðar af Ernu Línu Al-
freðsdóttur , umsjónarmanni fé-
lagsins, í síma 421 3348 á milli
11 - 16 virka daga vikunnar.
Kæru félagsmenn takið frá tíma
til að vera með í vetur og eiga
góðar stundir á Víkurbraut 13,
mið hæð, Keflavík í „húsi fél-
agsins“.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Bestu kveður,
Stjórnin.
Þann 7. október munu miðlarnir María Sigurðardóttir og Guðrún Hjörleifsdóttir verða með námskeið þar sem verður
farið í helstu atriði andlegra mála svo sem orku-
stöðvar, hugleiðsluaðferðir, aga og einbeitingu
og hvernig hægt er að auka næmni og skilning á
henni. Í lokin verður heilunarstund.
Námskeiðið, sem þær kalla „Eitt lítið skref,“
stendur yfir frá kl. 10 - 17 og verða léttar veitingar
í boði. Skráning er hafin og rétt er að taka fram
fjöldi þátttakenda verður takmarkaður.
Miðlarnir Guðrún Hjörleifsdóttir, Lára Halla Snæ-
fells og Skúli Lórenzson verða starfandi í október
og eru lausir tímar hjá þeim. Opið hús verður í
október og verður það auglýst nánar þegar nær
dregur. Skráning á námskeiðið og tímapantanir
eru í síma 421 3348 og 866 0345.
Októbermánuður helgaður
brjóstakrabbameini
- Heilbrigðisstofnun Suðurnesja lýst bleik
Aðsent:
Skólatöskudagar Iðjuþjálfafélags Íslands
Vetrardagskráin að hefjast
Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja:
Námskeið hjá SRFS
VF-mynd:elg
������������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������
��������������������
�������������������������������
��������������
���������
����������������������������������������������������������
���������������������� �����������������������������
��������������
���������������������������� ���������������������������
���������������������������� �����������������
�������������������������� �����������������������
������������������������