Víkurfréttir - 28.09.2006, Page 23
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 28. SEPTEMBER 2006 23STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Í vetur var bryddað upp á þeirri nýbreytni í skól-an um að kenna stað-
bundna ferðamálafræði sem
valgrein í 9. og 10. bekk. Nem-
endur í valinu að þessu sinni
eru 15 talsins.
Markmið þessarar fræðslu er
að unglingarnir kynnist Reykja-
nesskag an um með nýj um
hætti. Kennslan fer fram bæði
í skólanum með fyrirlestrum,
rannsóknarvinnu nemendanna
sjálfra og vettvangsferðum.
Nú þegar hefur verið farin ein
vettvangsferð. Farin var hring-
ferð um Reykjanesið og komið
við í öllum byggðarlögum. Þar
var saga byggðarlaga rakin í
stórum dráttum og sagt frá því
markverðasta á hverjum stað
svo sem kirkjum, þjóðsögum,
söfnum, orku og atvinnu-
háttum. Þessi ferð gekk með
afbrigðum vel og nemendur
nýttu hana eins og kostur var.
Því miður gafst ekki tími til
safnaskoðunar að þessu sinni,
en verður vonandi síðar.
Ferðamálasamtök Suðurnesja
buðu nemendum í ferðina og
áður en lagt var af stað ræddi
Krist ján Páls son formaður
samtakanna við nemendur í ör-
stutta stund til þess m.a. að upp-
lýsa þá um mikilvægi þekkingar
á því svæði sem þeir búa á. Þess
má geta að Ferðamálasamtök
Suðurnesja hafa komið upp af-
bragðsgóðum vef á netinu með
fjölbreyttum upplýsingum sem
nemendur geta nýtt sér.
Í framhaldi af þessu verða fyr-
irlestrar svo sem um gróður,
dýralíf, veðurfar og annað sem
nauðsynlegt er að kynnast á
svæðinu.
Nemendur afla síðan frekari
upplýsinga á netinu og með
lestri bóka um svæðið. Þegar
líður að lokum þessarar annar
verður farin önnur ferð þar sem
nemendur skipta með sér leið-
sögn og koma þá á framfæri
þeim upplýsingum sem þau
hafa aflað sér. Þau flytja einnig
fyrirlestur um tiltekna þætti í
skólanum.
Framtíðarmöguleikar þessa
svæðis skipta miklu máli og því
er nauðsynlegt að nemendur
velti fyrir sér hvaða möguleika
svæðið hefur og hvernig hægt
er að nýta þá sem allra best.
Martha Ó. Jensdóttir
Staðbundin
ferðamálafræði
í Heiðarskóla
Ókeypis fyrirlestrar
í Íþróttakademíunni
Námskeið
Nuddnámskeið
Örfá sæti laus
Námskeið fyrir byrjendur.
Markmiðið er að þátttakendur öðlist næga grunnþekkingu til að
nudda heilt nudd af öryggi og geti meðal annars létt á vöðvaspennu
í öxlum og hnakka.
Kennari
Ragnar Sigurðsson
Föstudaginn 29. september kl. 19.00 til 22.00,
laugardaginn 30. september 10.00 til 15.00 og
sunnudaginn 1. október kl. 10.00 til 15.00 (3 skipti)
Skráning á akademian.is
og í síma 420 5500
Fyrirlestur
Lífsleikni – Verum sterk!
Ókeypis aðgangur
Fjallað verður um hvaða aðferðir við getum notað til þess að öðlast
sjálfsöryggi og skapa það líf sem við viljum lifa.
Fyrirlesari
Marta Eiríksdóttir
Þriðjudaginn 3. október kl. 20.00 til 22.00
Gunnhildur Erla
Vilbergsdóttir.
VF-mynd: JBO
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222
Íþróttaakademían í Reykja-nesbæ mun bjóða bæj-ar bú um uppá ókeyp is
fyr ir lestra tengda heilsu í
húskynnum sínum í vetur
fyrsta þriðjudag í hverjum
mánuði og hefst fyrirlestrar-
öðin þriðjudaginn 3. október.
Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir,
verkefnastjóri hjá Íþróttaakdem-
íunni, segir fyrirlestrana innlegg
Íþróttaakademíunnar í heilsuefl-
ingu á Suðurnesjum. Fyrirlestr-
arnir eru fyrir alla aldurshópa
og eins og áður segir verður
frítt á fyrirlestrana,“sagði Gunn-
hildur. Marta Eiríksdóttir ríður
á vaðið næst komandi þriðju-
dag klukkan 20-22 og nefnist
erindi hennar Lífsleikni-Verum
sterk! Meðal annarra fyrirlesara
í vetur verða Hildur Guðmunds-
dóttir frá Yggdrasil, Guðjón
Bergmann, Haraldur Magnús-
son, Oesópati og Inga Kristjáns-
dóttir, næringarþerapisti. „Með
því að bjóða upp á fyrirlestrana
ókeypis erum við að veita öllum
tækifæri til að öðlast meiri þekk-
ingu um heilsu og von andi
tileinka sér hollari lífshætti.
Margir líta á Íþróttaakademí-
una eingöngu sem skóla en við
stefnum að því og viljum einnig
vera fræðslumiðstöð,“ sagði
Gunnhildur. Allt að 80 manns
geta sótt hvern fyrirlestur í vetur
og verða þeir haldnir í fyrirlestr-
arsal Akademíunnar. Sjá nánar
á heimasíðu Íþróttaakademí-
unnar, www.akademian.is