Víkurfréttir - 26.10.2006, Qupperneq 19
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 26. OKTÓBER 2006 19STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Næstkomandi föstudags-kvöld, 27. október kl. 20:00 munu stuðn-
ingsmenn Jóns Gunnarssonar
halda opinn fund á Víkinni,
sal VSFK að Hafnargötu 80 í
Reykjanesbæ.
Yfirskrift fundarins er: Vofur for-
tíðar - Vonir framtíðar og munu
Jón Gunnarsson alþingismaður
og Jón Baldvin Hannibalsson
fyrrv. utanríkisráðherra fara
yfir það sem heitast brennur í
hinni pólitísku umræðu.
Suðurnesjamenn eru hvattir til
að fjölmenna á skemmtilegan
og áhugaverðan fund, þar sem
gefst tækifæri til að skiptast á
skoðunum um mörg þau mál
sem skipta miklu fyrir svæðið.
Fundarstjóri verður Ólafur
Thordersen, bæjarfulltrúi.
Lögregla hafði nýverið af sk ipti af tveim ur m ö n n u m á b i f r e i ð
í Keflavík en þeir voru grun-
aðir um fíkniefnamisferli. Í
framhaldinu var farið á heim-
ili þeirra þar sem tveir aðrir
voru handteknir. Lagt var hald
á ætluð fíkniefni, tæplega 50
grömm af hassi, smáræði af
amfetamíni og tvær E-pillur.
Fólkið var allt vistað í fanga-
geymslu og yfirheyrt í morgun
þegar víman var runnin af
þeim. Ein um að ila var þó
sleppt fljótlega.
Nokkuð hefur verið um fíkni-
efnamál síðust tvær vikur eða
samtals 11 tilfelli. Fjórir aðilar
hafa verið handteknir vegna
gruns um sölu á hassi en lög-
regla hefur haldlagt um 200
grömm af hassi á þessum tíma.
Einnig hefur verið haldlagt am-
fetamín, ofskynjunarsveppir, E-
pillur ásamt lyfseðilsskyldum
lyfjum.
Opinn fundur á Víkinni:
Jón Baldvin og Jón Gunnars
með vofur fortíðar og vonir
framtíðar á Víkinni
- á föstudagskvöld kl. 20:00
Fjórir handteknir
vegna fíkniefna
Lögreglan í Keflavík:
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222