Víkurfréttir - 20.02.2014, Side 10
fimmtudagurinn 20. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR10
LESTUR
VINSÆLASTI
FRÉTTAMIÐILL Á
SUÐURNESJUM
www.vf.is+
83%
-viðtal pósturu eythor@vf.is
Okkur vantar kröftuga og skemmtilega
einstaklinga til starfa á kaffihúsum Kaffitárs
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Störfin:
Kaffibarþjónar í sumarafleysingar, bæði
kvöld- og dagvaktir.
Starfssvið:
Störfin felast í framreiðslu á kaffidrykkjum,
veitingum og sölu á úrvalskaffi og
kaffivörum.
Hæfniskröfur:
Við leitum að áhugasömum og
þjónustuljúfum einstaklingum með metnað
og frumkvæði. Starfsmenn munu fá
ómetanlega starfsþjálfun og kennslu í fagi
kaffibarþjónsins.
Ferilskrá ásamt upplýsingum um
meðmælendur má skila með tölvupósti á
guddis@kaffitar.is. Frekari upplýsingar veitir
Guðdís Eiríksdóttir í síma 664-8850.
Kaffitár framleiðir og selur einungis úrvalskaffi.
Við leggjum áherslu á gæði og ferskleika. Við erum
skemmtileg, alúðleg, umhverfisvæn, litaglöð og líka
röff og töff. Við setjum fólk í fyrirrúm og opnum hjarta
okkar til að koma boðskap Kaffitárs til skila og tengjast
viðskiptavinum okkar traustum böndum. Við kaupum
kaffi án krókaleiða til að stuðla að þvi að við fáum
besta kaffi sem völ er á og að bændurnir fái
sanngjarnt verð fyrir vöru sína.
ORLOFSHÚS VS
PÁSKAR 2014
Valmöguleikar:
Akureyri
Hraunborgir
Flúðir
Ölfusborgir
Svignaskarð
Leigutími: 16. apríl - 25. apríl
Leigugjald: kr. 20.000.-
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
félagsins og á heimasíðu vs.is.
Umsóknarfrestur er til hádegis föstudaginn 7. mars nk.
Dregið verður úr innsendum umsóknum.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu félagsins að
Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ, eða í síma 421-2570.
Orlofsnefnd
Fann sína hillu í
gullsmíðinni
- „Frábært fyrir dundara eins og mig,“ segir Keflvíkingurinn Rúnar Jóhannesson
Rúnar Jóhannesson hlaut á dögunum viðurkenningu
fyrir sveinspróf sitt í gullsmíði
en er þetta í fyrsta sinn sem
gullsmiður hlýtur verðlaun frá
Iðnaðarmannafélaginu í Reykja-
vík fyrir afburða námsárangur.
Rúnar þreytti sveinspróf og út-
skrifaðist frá Tækniskólanum
vorið 2013.
Keflvíkingurinn Rúnar sem er 34
ára hafði áður lært myndlist hér-
lendis og á Ítalíu og starfað sem
slíkur um árabil. Hann segist nú
hafa fundið sína hillu í gullsmíðinni
en þar fær dundari eins og hann
virkilega að njóta sín. „Í þessu fagi
er þolinmæðin ofar öllu. Þarna get
ég dundað mér tímunum saman,“
segir Rúnar en hann segir starfið
vera afar áhugavert og í raun hafi
opnast nýr heimur fyrir honum
þegar hann hóf námið. Hann vissi í
raun ekkert um fag gullsmiða þegar
hann fékk þá hugmynd að kynna
sér námið árið 2008. Rúnar fann
fljótlega að námið átti vel við hann
og síðar hóf hann starfsnám hjá
meistaranum Kristni Sigurðssyni
sem rekur verslunina Tímadjásn.
Þar segist Rúnar hafa lært mikið
og þá sérstaklega af viðgerðum á
hinum ýmsu skartgripum.
Gæti hugsað sér að opna
verslun með eigin hönnun
Starf gullsmiðsins er nokkuð fjöl-
breytt en margir vinna við við-
gerðir eða framleiðslu á skart-
gripum, á meðan aðrir vinna að
eigin hönnun. Rúnar segir að hann
hafi örlítið fengist við hönnun og
væntanlega megi eiga von á því
að hönnun hans líti dagsins ljós á
vormánuðum. Í framtíðinni segist
hann vel geta hugsað sér að setja
á laggirnar eigin verslun þar sem
hans eigin hönnun yrði á boð-
stólum. Það verði þó að koma í ljós.
Sveinsprófið fer þannig fram að
nemendur fá teikningu af grip á
mánudegi sem skila skal full-
unnum á föstudegi. Hópur Rúnars
átti að smíða nælu og hlaut Rúnar
verðlaun sín fyrir þá smíð. Hátíðin
var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur
og var það forseti Íslands sem
veitti nýnemunum viðurkenning-
arnar. Forsetinn flutti hátíðarávarp
og einnig menntamálaráðherra
og iðnaðarráðherra. Jón Gnarr
borgarstjóri flutti lokaávarp við at-
höfnina.
Fjóla Gullsmiður - Hafnargötu 29 - Sími: 421 1011
Fermingartilboð á nafnahálsmenum
20% afsláttur
sem gildir til 21. mars
Stál nú kr. 4.980,-
Silfur kr. 9.360,-
Gullhúðað kr. 9.980,-
www.facebook.com/FjolaGullsmidur
Hún er glæsileg
nælan sem
Rúnar smíðaði í
sveinsprófinu.